Áramótaferðirnar okkar hafa verið mjög vinsælar síðustu árin og eftir pásu síðustu áramót vegna covid þá stefnum við aftur til Spánar næstu áramót.
Við bjóðum upp á 10 nátta ferð á Bonalba 27.desember til 6.janúar.
Verð frá 279.900 kr. í tvíbýli.
INNIFALIÐ:
Beint flug með Icelandair
Akstur milli flugvallar og hótels
Gisting á Hótel Bonalba 4*
Morgun-og kvöldmatur
Áramótadinner á gamlárskvöld
Ótakmarkað golf
Íslensk fararstjórn
Hægt er að bæta við drykkjum með kvöldmat og drykkjum á barnum milli kl. 17-23.
Þessi ferð er bókanleg á vefnum okkar HÉRNA og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um Bonalba og þessa ferð.
Við hvetjum áhugasama til að bóka tímanlega því það er takmarkaður fjöldi sæta í boði. Staðfestingargjald er 50.000 kr á mann.
Hafir þú fyrirspurn þá getur þú sent póst á travel@golfskalinn.is eða hringt í okkur í síma 578-0120.