JÓLA OG ÁRAMÓTAFERÐIR GOLFSKÁLANS 2024, VAL UM 7-14 DAGA FERÐIR

Áramótaferðir Golfskálans hafa verið gríðarlega vinsælar undanfarin ár enda ekki amalegt að skella sér í góða golfferð yfir áramótin.

Villaitana er að okkar áliti flottasti golf áfangastaðurinn á Alicante svæðinu og þó víðar væri leitað. Tveir frábærir golfvellir og gisting sem á sér fáar hliðstæður. Örstutt niður á Benidorm með verslanir, veitingar og fjörugt næturlíf.

Flogið er í beinu flugi með PLAY. Morgunflug út og kvöldflug heim. Innifalið í verði er Galadinner á gamlárskvöld og að sjálfsögðu golf alla daga, líka heimferðadaginn. Það er almennt gott veður á Alicante svæðinu yfir vetrartímann. Í desember er meðalhiti í Alicante 18°, það getur verið kalt á nóttunni en virkilega notalegt í sólinni á daginn. Þeir sem þekkja til segja gjarnan að veðrið sé eins og virkilega gott íslenskt golfveður. 

Tveir golvellir hannaðir af Jack Nicklaus

Golfvellirnir sem eru hannaðir af Jack Nicklaus eru 2, LEVANTE par 72 og PONIENTE par 62. Levante völlurinn svipar til links vallar að sumu leyti, mikil af glompum en þó ekki þykka grasið sem víða er á links völlunum. Poniente er blanda af par 3 og 4 brautum og virkilega vel heppnaður. Liggur í dal sem gefur brautunum mikið landslag og reynir á leikskipulag ef á að skora hann vel þrátt fyrir að vera ekki mjög langur.

  • Hótelið er staðsett við golfvellina.
  • Val um ólíka veitingastaði á hóteli
  • Örstutt niður á Benidorm með baðströndum, veitingastöðum, verslunum og fjörugu næturlífi.
  • 40 mínútna fjarlægð frá flugvellinum.

LEVANTE par 72

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

PONIENTE par 62

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

Villaitana Melia hótelið

Hótelið er staðsett við golfvöllinn

Villaitana þekkja margir íslenskir kylfingar sem hafa leikið golf á Alicante svæðinu. Upphaflega sem Real de Faula og undanfarin ár sem Villaitana. Melia hótelkeðjan rekur hótelið sem er byggt upp eins og lítið þorp í Miðjarðarhafsstíl. Herbergin eru rúmgóð með svölum eða verönd og öllum helstu þægindum. Á hótelinu er úrval veitingastaða auk þess að úrval veitingastaða á Benidorm er mikið.

Örstutt í Benidorm

Frá Villaitana er örstutt niður á Benidorm með baðströndum, veitingastöðum, verslunum og fjörugu næturlífi.

Val um morgunmat eða morgun og kvöldmat

Það eru 5 veitingastaðir á hótelinu en þar sem áramótin eru ekki háannatími þá er mismikið opið á veitingastöðunum.

Heimasíða Meliá Villaitana

Herbergi og aðstaða:

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

DAGSETNINGFLUG ÚTFLUG HEIMFÆÐITVÍBÝLIEINBÝLIBÓKA
21.12 - 28.1215:50 / 21:2522:25 / 02:15Morgunverður269.900 kr.311.900 kr.
BÓKA NÚNA
7 nætur / 7 golfd.PlayPlayMorgun og kvöldv.312.900 kr.353.900 kr.BÓKA NÚNA
2 sæti laus
21.12 - 04.0115:50 / 21:2522:25 / 02:15Morgunverður389.900 kr.473.900 kr.
UPPSELT
14 nætur / 14 golfd.PlayPlayMorgun og kvöldv.469.900 kr.553.900 kr.UPPSELT
28.12 - 04.0115:50 / 21:2522:25 / 02:15Morgunverður269.900 kr.311.900 kr.UPPSELT
7 nætur / 7 golfd.PlayPlayMorgun og kvöldv.306.900 kr.348.900 kr.UPPSELT
28.12 - 07.0115:50 / 21:2515:35 / 19:25Morgunverður329.900 kr.382.900 kr.BÓKA NÚNA
10 nætur / 9 golfd.PlayPlayMorgun og kvöldv.389.900 kr.442.900 kr.BÓKA NÚNA
FÁ SÆTI EFTIR
  • Beint flug með Play til og frá Alicante.
  • Ferðataska 20 kg, golfsett 20 kg, minni handfarangurs 42x32x25 cm 10 kg.
  • Akstur til og frá Alicante flugvelli.
  • Gisting með morgunverði (og kvöldverði fyrir þá sem það kjósa).
  • Galakvöldverður og áramótaskemmtun á gamlárskvöld. 
  • Ótakmarkað golf
  • Golfbíll er innifalinn á Poniente vellinum en kostar 43 evrur á Levante.
  • ATH það er í boði að kaupa einungis landpakkann, gistinguna og golfið ef þú/þið viljið bóka flugið á eigin vegum.
  • Íslensk fararstjórn
Skoða Verðlista allra ferða / Panta ferð

Benidorm

Benidorm hefur verið einn vinsælasti ferðamannastaður á Spáni frá 1922 þegar höfnin var stækkuð og fyrstu hótelin byggð. Það má svo segja að það hafi orðið sprenging í ferðamannaiðnaðinum eftir 1950 þegar Benidorm varð vinsæll hjá innfæddum og þá sérstaklega Madridarbúum. Í dag er Benidorm þekkt fyrir ferðamannaiðnaðinn, strandlíf og háhýsi og má segja að fólk flykkist til Benidorm til að njóta strandlífsins.

Meðalhitastig á svæðinu mælist 24 gráður yfir árið. Yfir vetrarmánuði er sjaldgæft að hiti fari niður fyrir fimmtán gráður en sumrin eru mjög heit og er meðalhiti þá 33 gráður.

Mikið er af litlum verslunum í miðænum og má þar meðal annars finna eina bestu Polo skyrtubúð Spánar. Best er að rölta um göturnar skoða úrvalið.

Benidorm er ekki stór og að strandsvæðinu og gamla bænum frátöldu eru fyrst og fremst íbúðabyggingar og hótel. Einfaldast er að taka leigubíl frá hótelinu í gamla miðbæinn og þar er hægt að komast allra sinna ferða fótgangandi.

Mikið úrval veitingastaða er í borginni og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Gott ráð er að spyrja starfsfólk hótelana varðandi hvaða staðir eru að fá bestu dóma hverju sinni. Einnig má skoða Tripadvisor og sjá hverju þeir mæla með.

Aðalstaðurinn fyrir næturlífið er “the strip of Levante Beach Boulevard“ sem liggur meðfram ströndinn, torgið hjá Avenida Mallorca, gamli bærinn Benidorm og svo eru stórir skemmtistaðir á aðalgötunni rétt utan við Benidorm sem liggur í áttina að Valencia.