Benidorm hefur verið einn vinsælasti ferðamannastaður á Spáni frá 1922 þegar höfnin var stækkuð og fyrstu hótelin byggð. Það má svo segja að það hafi orðið sprenging í ferðamannaiðnaðinum eftir 1950 þegar Benidorm varð vinsæll hjá innfæddum og þá sérstaklega Madridarbúum. Í dag er Benidorm þekkt fyrir ferðamannaiðnaðinn, strandlíf og háhýsi og má segja að fólk flykkist til Benidorm til að njóta strandlífsins.
Tveir golvellir hannaðir af Jack Nicklaus
Golfvellirnir sem eru hannaðir af Jack Nicklaus eru tveir, LEVANTE par 72 og PONIENTE par 62. Levante völlurinn svipar til links vallar að sumu leyti, mikil af glompum en þó ekki þykka grasið sem víða er á links völlunum. Flatirnar eru flestar fremur stórar með töluverðu landslagi og margar vel varðar af glompum. Fyrir þá sem kjósa að ganga golfið þá hentar Levante mjög vel til þess. Poniente er blanda af par 3 og 4 brautum og er virkilega vel heppnaður. Liggur í dal sem gefur brautunum mikið landslag og reynir á leikskipulag ef á að skora hann vel þrátt fyrir að vera ekki mjög langur.
- Hótelið er staðsett við golfvellina.
- Val um ólíka veitingastaði á hóteli
- Örstutt niður á Benidorm með baðströndum, veitingastöðum, verslunum og fjörugu næturlífi.
- 40 mínútna fjarlægð frá flugvellinum.
LEVANTE par 72
Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.
PONIENTE par 62
Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.
Villaitana Melia hótelið

Hótelið er staðsett við golfvellina
Villaitana þekkja margir íslenskir kylfingar sem hafa leikið golf á Alicante svæðinu. Upphaflega sem Real de Faula og undanfarin ár sem Villaitana. Melia hótelkeðjan rekur hótelið sem er byggt upp eins og lítið þorp í Miðjarðarhafsstíl. Herbergin eru rúmgóð með svölum eða verönd og öllum helstu þægindum. Á hótelinu er val um ólíka veitingastaði auk þess að úrval veitingastaða á Benidorm er mikið.
Örstutt í Benidorm
Frá Villaitana er örstutt niður á Benidorm með baðströndum, veitingastöðum, verslunum og fjörugu næturlífi.
Val um kvöldmáltíð
Val er um að bóka ferð með eingöngu morgunmat eða með morgun og kvöldmat. Reynslan er að flestir okkar farþega kjósa að bóka einungis með morgunmat og nýta sér að það eru fleiri en einn veitingastaður á hótelinu auk þess að það er örstutt að skreppa niður á Benidorm þar sem er að finna mjög mikið úrval veitingastaða.
Heimasíða Meliá VillaitanaHerbergi og aðstaða:
Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.
Haust 2023
Best að snúa símanum á hlið til að sjá alla töfluna.
DAGSETNING | FLUG ÚT | FLUG HEIM | FÆÐI | TVÍBÝLI | EINBÝLI | BÓKA |
---|---|---|---|---|---|---|
26.09 - 03.10 | 14:50 / 21:25 | 22:50 / 01:10 | Morgunverður | 219.900 kr. | 256.900 kr. | UPPSELT |
7 nætur / 6 golfdagar | PLAY GO604 | PLAY GO605 | Morgun og kvöldv. | 249.900 kr. | 288.900 kr. | UPPSELT |
03.10 - 12.10 | 14:50 / 21:25 | 22:50 / 01:10 | Morgunverður | 259.900 kr. | 307.900 kr. | BÓKA NÚNA |
9 nætur / 8 golfdagar | PLAY GO604 | PLAY GO605 | Morgun og kvöldv. | 299.900 kr. | 347.900 kr. | BÓKA NÚNA |
12.10 - 21.10 | 14:50 / 21:25 | 22:50 / 01:10 | Morgunverður | 259.900 kr. | 307.900 kr. | BÓKA NÚNA |
9 nætur / 8 golfdagar | PLAY GO604 | PLAY GO605 | Morgun og kvöldv. | 299.900 kr. | 347.900 kr. | BÓKA NÚNA |
21.10 - 31.10 | 14:50 / 21:25 | 15:40 / 19:30 | Morgunverður | 279.900 kr. | 332.900 kr. | BÓKA NÚNA |
10 nætur / 9 golfdagar | PLAY GO604 | PLAY GO601 | Morgun og kvöldv. | 324.900 kr | 377.900 kr | BÓKA NÚNA |
31.10 - 07.11 | 09:00 / 14:40 | 15:40 / 19:30 | Morgunverður | 219.900 kr. | 256.900 kr. | UPPSELT |
7 nætur / 6 golfdagar | PLAY GO600 | PLAY GO601 | Morgun og kvöldv. | 249.900 kr. | 288.900 kr. | UPPSELT |
- Beint flug til og frá Alicante með PLAY.
- Ferðataska 20 kg, golfsett 23 kg, handfarangur hæð 42 cm, breidd 32 cm, þykkt 25 cm, þyngd 10 kg.
- Gisting með morgunverði (og kvöldverði fyrir þá sem það kjósa).
- Akstur til og frá Alicante flugvelli. ATH í sérferðum er akstur ekki innifalinn nema þess sé sérstaklega getið
- Ótakmarkað golf alla daga nema ferðadaga.
- Golfbíll kostar 40€ á hring, (20€ á mann ef tveir deila bíl). Kerran kostar 6€. Golfbíll er innifalinn á Poniente vellinum.
- ATH það er í boði að kaupa einungis landpakkann, gistinguna og golfið ef þú/þið viljið bóka flugið á eigin vegum.
- Íslensk fararstjórn.
Benidorm

Meðalhitastig á svæðinu mælist 24 gráður yfir árið. Yfir vetrarmánuði er sjaldgæft að hiti fari niður fyrir fimmtán gráður en sumrin eru mjög heit og er meðalhiti þá 33 gráður.
Gott úrval verslana er á Benidorm svæðinu, allt frá ódýrum kínamörkuðum til fínnar merkjavöru. Einnig er vinsælt að fara í La Marina „mollið“ sem er c.a. 5 mín með leigubíl frá hótelinu. Þar er að finna allra þessar helstu verslanir sem flestir eru að leita að.
Fyrir ferðir til og frá Benidorm er einfaldast að taka leigubíl. Ef það er áhugi á að skjótast til Alicante borgarinnar þá er hægt að taka lest/sporvagn í Benidorm. Bílaleigubílar eru gjarnan hagstæðir í leigu, hægt að fá aðstoð á hótelinu til að leigja bíl.
Mikið úrval veitingastaða er á Benidorm og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Gott ráð er að spyrja starfsfólk hótelsins varðandi hvaða staðir eru að fá bestu dóma hverju sinni. Einnig má skoða Tripadvisor og sjá hverju þeir mæla með.
Aðalstaðurinn fyrir næturlífið er “the strip of Levante Beach Boulevard“ sem liggur meðfram ströndinn, torgið hjá Avenida Mallorca, gamli bærinn Benidorm og svo eru stórir skemmtistaðir á aðalgötunni rétt utan við Benidorm sem liggur í áttina að Valencia.