Alborán golf og barceló cabo de gata hótelið

Flogið með Icelandair í beinu leiguflugi til Almería og aðeins 10 mín frá flugvellinum er Barceló Cabo de Gata hótelið. Gott 4ra stjörnu strandhótel og Alborán Golf sem er virkilega flottur golfvöllur með góðu æfingasvæði.

Nýtt hjá Golfskálanum:

Betra golf með Derrick Moore

Viltu verða BETRI Í GOLFI?

Golfskálinn býður íslenskum kylfingum einstakt tækifæri!

Æfingar og golf undir handleiðslu PGA golfkennara við bestu aðstæður í sól og blíðu við Miðjarðarhafið.
Ef þig langar að verða BETRI Í GOLFI þá ættir þú að skoða þetta nánar.

Hvað er það sem gerir afrekskylfinga svona góða í golfi? Meðfæddir hæfileikar EÐA eru þau að gera eitthvað öðruvísi en þú? Í ferðunum verður farið yfir alla helstu þætti golfleiksins með það að markmiði að þátttakendur öðlist betri skilning og þekkingu til að verða betri kylfingar.

Ferðirnar eru undir handleiðslu Derrick Moore PGA golfkennara. Derrick sem hefur verið búsettur á Íslandi undanfarin 20 ár hefur áratuga reynslu þegar kemur að þjálfun jafnt afreks sem almennra kylfinga. Derrick er einn fremsti golfkennari landsins og hefur m.a. verið valinn PGA golfkennari ársins a.m.k. fjórum sinnum.

Fyrir hverja?

BETRA GOLF ferðirnar eru ekki hugsaðar fyrir byrjendur heldur kylfinga sem hafa verið í golfi í einhvern tíma. Jafnt einstaklinga sem pör, vini eða jafnvel golfgrúbbuna. Samhliða BETRA GOLFI verður almennur golfskóli og því upplagt fyrir pör þar sem annar aðilinn er að byrja í golfi og hinn er lengra kominn að skella sér saman í ferð.

Fyrirkomulag og markmið

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu þætti golfsins sem við teljum skipta máli auk þess að þátttakendur fá ábendingar/kennslu ef þörf er á en rétt er að taka fram að gert er ráð fyrir að þátttakendur séu með ágætis grunn í golfi. Eftirfarandi eru nokkur af markmiðum námskeiðsins:

•  Að kunna að æfa réttu æfingarnar rétt.
•  Geta greint veikleika og styrkleika í eigin leik.
•  Að taka réttar ákvarðanir á meðan á leik stendur.
•  Undirbúningur fyrir leik.
•  Að kunna að halda og lesa tölfræði yfir leikinn.
•  Á meðan á leik stendur, hvaða þættir hafa áhrif á útkomuna.

Dagskráin er þannig að það eru æfingar og leikið golf alla daga.

Vor 2023

Í boði eru 3 ferðir haustið 2023:

  • 30.09. – 10.10. 10 nátta ferð með 6 kennsludögum
  • 10.10. – 22.10. 12 nátta ferð með 8 kennsludögum
  • 22.10. – 01.11. 10 nátta ferð með 6 kennsludögum

•  10 mín fjarlægð frá flugvellinum í Almeria.
•  Virkilega flottur 18 holu golfvöllur.
•  15 km í miðbæ Almería borgarinnar.
•  Gott 4ra stjörnu strandhótel,
ca. 999 metra frá klúbbhúsinu.
•  Fyrir þá sem treysta sér ekki að ganga er
boðið upp á akstur á milli hótels og klúbbhúss.

Derrick Moore
PGA golfkennari

Hótel Barceló cabo de gata

Mjög gott 4 stjörnu hótel.

Barceló Cabo de Gata er 4ra stjörnu strandhótel staðsett við Playa del Retamar ströndina í Almería. Herbergin eru rúmgóð og búin þessum helstu þægindum sem við þekkjum á 4ra stjörnu hótelum. Baðherbergin með bæði baðkari og sér sturtu. Gert er ráð fyrir að allir okkar gestir séu með eftirmiðdagsólina á svalirnar. Á hótelinu er stór sundlaugargarður með 4 sundlaugum og góð heilsulind sem farþegar Golfskálans hafa aðgang að gegn vægu gjaldi.

Innifalið í öllum ferðum er morgun- og kvöldverður. Hótelið er staðsett í um 10-15 mín rölti frá klúbbhúsinu á Retamar ströndinni sem er rólegt hverfi í úthverfi Almería borgarinnar

Heimasíða Barceló Cabo de Gata

Herbergi og aðstaða:

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

Alborán golfvöllurinn

Alborán golfvöllurinn.

Alborán völlurinn er alvöru keppnisvöllur, par 72 og 6.278 metrar af öftustu teigum, rétt tæplega 6.000 metrar af gulum og 5.371 af rauðum. Þrátt fyrir að vera byggður á flatlendi þá er heilmikið landslag í vellinum en þó ekki þannig að hann sé ekki góður til að ganga. Það eru aðeins 2 vötn á vellinum en þau koma þó við sögu á 5 brautum.

Á vellinum er gott æfingasvæði, slegið af grasi og æfingaflatir fyrir stutta spilið. Kúbbhúsið lætur ekki mikið yfir sér en 2-3 tapas og drykkur með að loknum góðum golfhring svíkur engan. Klúbbhúsið er í um 10 mín göngufjarlægð frá hótelinu og hægt er að geyma golfsettið þar á meðan á dvöl stendur.

Fyrir þá sem velja að ganga golfið þá hentar Alborán Golf mjög vel til þess. Engar stórar brekkur er að fara þrátt fyrir að það sé töluvert landslag í vellinum. Innifalið í verði ferða eru 3hjóla handkerrur en jafnframt er hægt að kanna með að leigja golfbíl fyrir þá sem það kjósa.

Heimasíða Alborán Golf

Golfvöllurinn:

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

Verðlisti

HAUST 2023 – BETRA GOLF með Derrick Moore

Best að snúa símanum á hlið til að sjá alla töfluna.

DAGSETNINGFLUG ÚTFLUG HEIMFÆÐITVÍBÝLIEINBÝLIBÓKA
30.09 - 10.1009:00 /15:4016:40/19:35Morgun og kvöldmatur289.900 kr.319,900 kr.BÓKA NÚNA
10 nætur / 9 golfd.IcelandairIcelandair
10.10 - 22.1009:00/15:4016:40/19:35Morgun og kvöldmatur
319.900 kr.348.900 kr.
BÓKA NÚNA
12 nætur / 11 golfd.IcelandairIcelandair
22.10 - 01.1109:00/15:4015:40/19:35Morgun og kvöldmatur289.900 kr.319.900 kr.BÓKA NÚNA
10 nætur / 9 golfd.IcelandairIcelandair
Innifalið í verði ferðar
  • Beint flug til og frá Almería með Icelandair. 
  • Flugvallarskattar.
  • Íslensk fararstjórn
  • Farangur: handfarangur 10 kg, ferðataska 23 kg,  og golfsett 17 kg.
  • Gisting með morgunverði og kvöldverði.
  • Akstur milli flugvallar og hótels.
  • Þátttaka í BETRA GOLF
  • Ótakmarkað golf. ATH flesta daga eru æfingar fyrir hádegi og rástími í hádeginu.
  • 3hjóla handkerra er innifalinn, golfbíll kostar 12 evrur per 18 holur, miðað við hádegis rástímann, almennt verð 30 evrur.
  • Golf á ferðadögum er ekki innifalið nema það sé sérstaklega tekið fram.
  • Aðgangur að heilsulind er 6 evrur fyrir 70 mínútur.
  • Ath. Ekki er mögulegt að innrita sig í flugið á vefnum þar sem um leiguflug er að ræða. Fyrir sætapantanir í almenn sæti og betri sæti er hægt að hafa samband við golfskálann í síma 578-0120 eða senda póst á travel(at)golfskalinn.is.
    Verð í betri sæti 14.900 kr., sæti við neyðarútgang 3.500 kr. og almennt sæti kr. 1.450 kr., hver leggur. Betri sæti eru fremst í vélinni og aðeins tvö sæti í röð (Business Class – ath. þó að ekki er um „Business Class“ þjónustu að ræða).
  • Ekki er hægt að nýta vildarpunkta Icelandair í þessar ferðir þar sem um er að ræða leiguflug með Icelandair.
Spil á öðrum völlum

Ef það er áhugi á að fara og leika aðra velli þá er best að ræða það við fararstjóra sem aðstoðar við að finna rástíma.

Næstu vellir eru Playa Serena, La Envia og Almerimar.

Skoða verðlista allra ferða / Panta ferð