Villaitana – Jól og áramót
Beint flug með Icelandair, Galakvöldverður á gamlárskvöld og golf alla daga í Alicante

Það er okkar álit að Villaitana, verð og gæði, sé einfaldlega BESTI valkosturinn á Alicante svæðinu yfir jól og áramót.
Innifalið í verðinu er Galakvöldverður á gamlárskvöld — hátíðlegt áramótakvöld í hlýlegum Miðjarðarhafsveðri. Golf er innifalið alla daga nema ferðadaga.
Villaitana þekkja margir íslenskir kylfingar sem hafa leikið golf á Alicante svæðinu. Melia hótelkeðjan rekur hótelið sem er byggt upp eins og lítið þorp í Miðjarðarhafsstíl. Herbergin eru rúmgóð með svölum eða verönd og öllum helstu þægindum.
Val er um að bóka ferð með eingöngu morgunmat eða með morgun og kvöldmat. Ath. þar sem áramótin eru ekki háannatími þá er mismikið opið á veitingastöðunum á hótelinu.
Melia hótelin bjóða sum upp á uppfærslu í LEVEL sem er 5★ hluti hótelsins. Á Villaitana er munurinn stærri herbergi og walk in sturtur, sér morgunverðarsalur, upphituð útisundlaug og aðgangur að léttvínsbar. Verðið er 13.000 kr á dag per herbergi. Til að bóka þarf að senda póst á travel@golfskalinn.is í framhaldi af bókun ferðar.
Heimasíða Meliá Villaitana
Golfvellirnir sem eru hannaðir af Jack Nicklaus eru tveir, LEVANTE par 72 og PONIENTE par 62. Levante völlurinn svipar til links vallar að sumu leyti, mikið af glompum en þó ekki þykka grasið sem víða er á links völlunum. Flatirnar eru flestar fremur stórar með töluverðu landslagi og margar vel varðar af glompum. Fyrir þá sem kjósa að ganga golfið þá hentar Levante mjög vel til þess.
Golfbíll kostar 45€ á hring (22,5€ á mann ef tveir deila bíl). Kerran kostar 7€.
Poniente er blanda af par 3 og 4 brautum og er virkilega vel heppnaður. Liggur í dal sem gefur brautunum mikið landslag og reynir á leikskipulag ef á að skora hann vel þrátt fyrir að vera ekki mjög langur.
| DAGSETNING | FLUG ÚT | FLUG HEIM | FÆÐI | TVÍBÝLI | EINBÝLI | BÓKA |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Allt tímabilið | Eigin vegum | Eigin vegum | Morgunverður | Frá kr. 26.000 per dag | Frá kr. 31.000 per dag | Í síma 578 0120 eða |
| Allt tímabilið | Eigin vegum | Eigin vegum | Morgun og kvöldverður | Frá kr. 31.000 per dag | Frá kr. 36.000 per dag | travel@golfskalinn.is |
| 17.12 - 27.12 | 15:25 / 20:55 | 15:10 / 19:00 | Morgunverður | 395.900 kr. | 485.900 kr. | BÓKA NÚNA |
| 10 nætur / 9 golfd. | ICELANDAIR FI988 | ICELANDAIR FI987 | Morgun og kvöldverður | 440.900 kr. | 530.900 kr. | BÓKA NÚNA |
| 27.12 - 05.01 | 08:30 / 14:10 | 21:55 / 01:45 | Morgunverður | 398.900 kr. | 479.900 kr. | BÓKA NÚNA |
| 9 nætur / 8 golfd. | ICELANDAIR FI986 | ICELANDAIR FI989 | Morgun og kvöldverður | 443.900 kr. | 524.900 kr. | BÓKA NÚNA |
Frá Villaitana er örstutt niður í gamla bæinn í Benidorm þar sem er að finna mikið úrval veitingastaða og verslana auk þess að gaman er að ganga upp á útsýnispallinn yfir strendurnar Poniente og Levante. Fyrir þá sem vilja kíkja út á lífið þá er næturlífið á Benidorm fjörugt öll kvöld vikunnar.
Altea er gaman að heimsækja, rölta um gömlu strætin og fá sér svo kvöldmat á einum af mörgum úrvals veitingastöðunum í Altea.
Hótelið er í 40 mínútna fjarlægð frá flugvellinum í Alicante.