Andalúsía, SpánnAlmería, Spánn
Almerimar
27 holur, rúmgóð 5 stjörnu gisting og ótakmarkað golf í bæ þar sem höfnin og ströndin eru í göngufæri.

- 27 holur
- 5 stjörnu hótel
- 6 brottfarir í boði
Myndir
Skoðaðu hótelið, vellina og umhverfið. Smelltu á mynd til að stækka og fletta myndasafninu.Dagsetningar og verð
Valin brottför
24. mars–3. apríl 2027
10 nætur og 9 golfdagar
Verð á mann
- EinbýliEinn einstaklingur í einu herbergiMorgunverður og kvöldverður með drykkjum519.900 kr.
- TvíbýliBesta verðTveir einstaklingar í einu herbergiMorgunverður og kvöldverður með drykkjum429.900 kr.859.800 kr. fyrir tvo
Börn með í för, fleiri saman eða aðrar óskir? Hafðu samband og við hjálpum þér að útfæra ferðina.
Flug
- Út 24. marsKEF → AGP06:00–11:45
- Heim 3. apr.AGP → KEF14:45–17:30
Tryggðu sætið með 75.000 kr. á mann. Eftirstöðvar greiðast fyrir 2. febrúar 2027.
Aukaþjónusta sem hægt er að bæta við
- drykkjarpakka | 17:00-23:0036.000 kr. á mann
- Golfbíll20.250 kr. á mann
- Golfskóli30.000 kr. á mann
- Herbergi með garðsýn10.500 kr. á mann
Verð á mann miðað við tvo saman í herbergi alla ferðina.
Þú velur herbergi og aukaþjónustu í næsta skrefi og greiðir á öruggri greiðslusíðu.
Viðbætur
- Beint flug með Neos ásamt flugvallarsköttum: til Almería haustið 2026 og Málaga vorið 2027. Sjá flugtíma við hverja brottför.
- Farangur með Neos: 15 kg ferðataska, 20 kg golfsett og 8 kg lítill handfarangur sem passar undir sæti.
- Akstur milli flugvallar og hótels.
- Íslensk fararstjórn.
- Gisting á Hótel AR Almerimar Golf, 5 stjörnu.
- Morgun- og kvöldverður ásamt léttum drykkjum með kvöldmat.
- Ein heimsókn í heilsulind hótelsins.
- Ótakmarkað golf á Almerimar Golf, utan ferðadaga og samkvæmt lausum rástímum.
- Þriggja hjóla handkerra á golfhringjum.
- Aðstaða til æfinga.
Ekki innifalið
- Golf á komudegi nema sérstaklega sé samið um það.
- Golfbíll, herbergisuppfærsla og viðbótardrykkjapakki.
- Nudd, aukaheimsóknir í spa og annað persónulegt aukaval.
Gisting
Hótel AR Almerimar Golf 5 stjörnu
AR Almerimar Golf er við golfvöllinn í miðjum Almerimar. Smábátahöfn með veitingastöðum og baðströnd eru í göngufæri, og Mercadona-matvöruverslun er við hlið hótelsins.
Á hótelinu eru 112 herbergi. Standard-herbergin eru frá 55 m², með svölum, loftstýringu, þráðlausu neti, sjónvarpi, öryggishólfi, sófa og skrifborði. Hægt er að óska eftir garð- eða sundlaugarsýn gegn aukagjaldi; staðfestu verð við bókun.
Útisundlaug og sólbaðsaðstaða eru í garðinum. Ein heimsókn í heilsulind fylgir dvölinni; nudd og aðrar meðferðir eru greidd sérstaklega. Morgun- og kvöldverður fylgja ásamt vatni, gosi, víni eða bjór með kvöldmat. Hægt er að bæta við drykkjapakka kl. 17:00–23:00.

Golf
27 holur eftir Rob Kirby og Gary Player
Þrjár níu holu lykkjur liggja um rúmlega 80 hektara svæði. Breiðar brautir, stórar flatir og vötn skapa fjölbreytni; eyjuflötin á þriðju holu rauðu lykkjunnar er meðal þeirra áskorana sem standa upp úr.
Völlurinn hentar vel til göngu. Þriggja hjóla handkerra fylgir golfinu. Golfbíll er aukaval; staðfestu verð og fyrirkomulag við bókun.
Æfingasvæði er fyrir alla þætti leiksins. Klúbbhúsið er við hótelið, með veitingastað og aðstöðu fyrir golfsett milli hringja. Ótakmarkað golf er háð lausum rástímum; seinni hring er ekki hægt að panta fyrirfram.

Golfskóli
Nýttu ferðina til að vinna í golfleiknum. Golfskólinn er valfrjáls viðbót við ferðina og kennslugjald bætist við ferðaverðið. Verð golfskóla miðast við tvo saman í herbergi.
Sjá brottfarir og kennslugjaldStaðsetning og samgöngur
Smábátahöfn, strönd og fleiri vellir
Við höfnina er fjölbreytt úrval veitingastaða og gott að rölta meðfram ströndinni. Ef þú vilt leika aðra velli aðstoðar fararstjóri við að kanna rástíma og viðbótarkostnað.
- Playa Serena Golf
- La Envia Golf
- Alborán Golf

Flug og akstur
Akstur milli flugvallar og hótels er innifalinn. Flugvellir og flugtímar fara eftir brottför. Sjá flug fyrir valda brottför.
Myndband frá Almerimar
Lengd: 1:51 · Með hljóði
Hagnýtar upplýsingar
Við hjálpum þér
Spurningar um ferðina?
Ferðaráðgjafar okkar aðstoða við dagsetningar, herbergi, golf og séróskir.
- RM
Rögnvaldur Magnússon
Umsjón með golfferðum
- KE
Kolbrún Ellý Björgvinsdóttir
Eða sendu póst á travel@golfskalinn.is
Almerimar · 24. mars–3. apríl 2027Frá 429.900 kr.
Bóka ferð

