Fara beint í efni
Golfskálinn
0
Skilmálar vefverslunar
  • Um Golfskálann
  • Hafa samband
  • Skilmálar vefverslunar
  • Persónuverndarstefna
  • Vafrakökur
  • Allar upplýsingar

Skilmálar netverslunar

Greiðslur og verð

Teya annast kortagreiðslur á eigin greiðslusíðu. Golfskálinn fær ekki kortaupplýsingar viðskiptavina og geymir þær ekki. Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Golfskálinn áskilur sér rétt til að hætta við pantanir eða bakfæra pantanir vegna rangra upplýsinga um verð eða annarra rangra upplýsinga um vöru. Upplýsingar um verð og magntölur á lager eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.

Sendingarmáti

Pantanir sem berast fyrir hádegi eru sóttar af Dropp sama dag og eru þá komnar til viðskiptavina sama dag eða innan tveggja daga, (fer eftir staðsetningu og hvaða sendingarmáti er valinn). Ef viðskiptavinur velur að sækja pöntun í verslun þá getur pöntun verið afgreidd samdægurs (pantanir eru þó ekki teknar saman og afgreiddar á laugardögum). Ef pöntuð vara er ekki til á lager þá verður haft samband við kaupanda og látið vita um áætlaðan afgreiðslutíma.

Dropp sér um okkar sendingar. Kaupandi hefur val um eftirfarandi:

  • Sækja í verslun
  • Dropp heimsending (á milli kl. 17 og 22)
  • Dropp afhendingarstaðir (sjá hér)

Dropp afhendir samdægurs á Höfuðborgarsvæðinu og á Suðvesturhorninu. Annars staðar á landinu eru sendingar afhentar næsta virka dag.

Um allar sendingar gilda almennir afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar.

Meðlimir í klúbbi Golfskálans sem eru skráðir inn á reikninginn sinn hjá Golfskálanum greiða 0 kr. fyrir sendingu á Dropp afhendingarstað eða Dropp heimsendingu, óháð upphæð pöntunar. Aðrir viðskiptavinir greiða 790 kr. fyrir sendingu á Dropp afhendingarstað og 1.350 kr. fyrir Dropp heimsendingu, óháð upphæð pöntunar.

Skilafrestur eða endurgreiðsla

Hægt er að skila vörum innan 30 daga frá afhendingu og skal ósk um skil berast með tölvupósti á vefur@golfskalinn.is. Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar, í upprunalegum umbúðum og í sama ástandi og við afhendingu. Vörum sem keyptar eru í vefverslun, þar með talið útsölu- og outlet-vörum, má skila innan 14 daga frá afhendingu án þess að gefa upp ástæðu, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga, að undanskildum sérpöntuðum kylfum (sjá hér að neðan). Lengri 30 daga skilafrestur gildir ekki um útsölu- og outlet-vörur, en þeim má skipta fyrir aðrar útsöluvörur innan 30 daga. Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur í hendur seljanda.

Hægt er að skila vörum í verslun eða senda þær til baka. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Golfskálinn greiðir þó sendingarkostnað við skil innan 30 daga frá afhendingu þegar viðskiptavinur notar skilaferli Dropp. Það gildir fyrir alla viðskiptavini, óháð aðild að klúbbi Golfskálans.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan þann kostnað sem gæti komið upp við heimsendingu.

Sérpantaðar kylfur

Kylfur sem eru sérpantaðar og smíðaðar eftir vali kaupanda, til dæmis með tilteknu skafti, lofti, lengd, legu eða gripi, eru framleiddar samkvæmt forskrift kaupanda. Ekki er hægt að skila þeim eða skipta, hvorki innan 14 daga né 30 daga, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Réttur kaupanda vegna galla helst óbreyttur: reynist sérpöntuð kylfa gölluð eða ekki í samræmi við pöntun bætum við úr því eins og um aðrar vörur.

Persónuupplýsingar og trúnaður

Golfskálinn notar persónuupplýsingar sem kaupandi gefur upp til að afgreiða pöntun. Nauðsynlegum upplýsingum er miðlað til greiðslu- og afhendingaraðila, eftir því sem við á, svo hægt sé að taka við greiðslu og afhenda pöntun.

Varnarþing

Viðskipti við Golfskalinn.is er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.

OpnunartímiBíldshöfða 16, Reykjavík
  • Útsölumarkaður
  • Hafa samband
  • Skilmálar vefverslunar
  • Persónuverndarstefna
  • Vafrakökur
  • Breyta vefkökustillingum
  • Allar upplýsingar

© 2026 Golfskálinn ehf. · kt. 540610-1500 · VSK-nr. 105202