Golfskálinn meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Golfskálinn safnar aldrei né vinnur persónuupplýsingar nema með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og gætir þess jafnframt að öll meðferð þeirra sé í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga. Að því leyti sem þessum skilmálum sleppir gilda viðeigandi lög og reglur hverju sinni.
Þegar persónuupplýsingar eru skráðar vegna fyrirspurna, ferða, biðlista, póstlista eða viðskipta notar Golfskálinn þær til að veita umbeðna þjónustu. Nauðsynlegum upplýsingum er miðlað til þjónustuaðila, þar á meðal greiðslu- og afhendingaraðila, eftir því sem þarf til að veita þjónustuna.
Teya annast kortagreiðslur á eigin greiðslusíðu. Golfskálinn fær ekki kortaupplýsingar viðskiptavina og geymir þær ekki.
Við heimsókn á vefsíðu okkar eru skráðar ýmsar nauðsynlegar upplýsingar um aðgengi og notkun. Þessar upplýsingar kunna að innihalda IP-tölur notanda. Þessum upplýsingum er einungis safnað af öryggisástæðum og fyrir bilanagreiningu. Þessi síða notar einnig vafrakökur fyrir nauðsynlega virkni, söfnun tölfræðiupplýsinga og fyrir deilingu á samfélagsmiðla.
Vinnsla gagna fer fram svo lengi sem notandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef notandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga á framfæri eða óskar eftir að persónuupplýsingum sínum verði eytt úr grunninum, skal athugasemdum komið til Golfskálans í tölvupósti á info(hjá)golfskalinn.is
Bilanagreining
Við notum Sentry til að greina villur, mæla hleðslutíma og bæta upplifunina. Tilviljunarkennt auðkenni í vafraflipa tengir tæknilegar villur við heimsókn; það er ekki tengt við viðskiptamannareikning. Villu- og afkastagögn geta innihaldið villutexta, vefslóðir með fyrirspurnarbreytum, upplýsingar um vafra og netbeiðnir. Sentry notar sjálfgefna síun fyrir tiltekin viðkvæm gögn, en hún fjarlægir ekki endilega allar persónuupplýsingar sem kunna að birtast í þessum gögnum.
Hluti heimsókna á opinberar vöru- og ferðasíður er endurgerður til bilanagreiningar. Sentry hylur texta, innslátt og myndefni sjálfgefið, en upptökur geta innihaldið upplýsingar um samskipti við síðuna og netbeiðnir. Upptaka stöðvast áður en farið er í körfu, greiðslu eða innskráningu. Sentry-upptökur virða Do Not Track og Global Privacy Control í vafranum. Ábendingar sem sendar eru með „Tilkynna vandamál“ fara einnig í Sentry. Ekki setja persónu- eða greiðsluupplýsingar í þær.