Villaitana Golf
36 holu golfvellir hannaðir af Jack Nicklaus, 4-5★ hótel og ótakmarkað golf í Alicante

Það er okkar álit að Villaitana, verð og gæði, sé einfaldlega BESTI valkosturinn á öllu Alicante svæðinu.
Villaitana þekkja margir íslenskir kylfingar sem hafa leikið golf á Alicante svæðinu. Upphaflega sem Real de Faula og undanfarin ár sem Villaitana. Melia hótelkeðjan rekur hótelið sem er byggt upp eins og lítið þorp í Miðjarðarhafsstíl. Herbergin eru rúmgóð með svölum eða verönd og öllum helstu þægindum. Á hótelinu er val um ólíka veitingastaði auk þess að úrval veitingastaða í næsta nágrenni er mikið. ATH veitingastaðirnir á hótelinu eru mismikið opnir. Flest kvöld (nær öll) er opið hlaðborð en opnun Casa Nostra, Lima og Papa Mambo fer eftir gestafjölda hverju sinni. Okkar ráðlegging er að kanna við komu á hótelið stöðuna næstu daga og panta þá sem fyrst borð ef áhugi á að snæða á einhverjum þeirra.
Val er um að bóka ferð með eingöngu morgunmat eða með morgun og kvöldmat. Reynslan er að flestir okkar farþega kjósa að bóka einungis með morgunmat og nýta sér að það eru fleiri en einn veitingastaður á hótelinu auk þess að það er örstutt að skreppa niður á Benidorm þar sem er að finna mjög mikið úrval veitingastaða.
Melia hótelin bjóða sum upp á uppfærslu í LEVEL sem er 5★ hluti hótelsins. Á Villaitana er munurinn stærri herbergi og walk in sturtur, sér morgunverðarsalur, upphituð útisundlaug og aðgangur að léttvínsbar (vatn, gos, bjór, léttvín, freyðivín, ýmiskonar snakk og einstaka happy hour þar sem boðið er upp á úrval sterkra drykkja og tapas rétta). Verðið er 12.000kr á dag per herbergi. Til að bóka þarf að senda póst á travel@golfskalinn.is í framhaldi af bókun ferðar og við könnum hvort sé laust til uppfærslu.
Golfvellirnir sem eru hannaðir af Jack Nicklaus eru tveir, LEVANTE par 72 og PONIENTE par 62. Levante völlurinn svipar til links vallar að sumu leyti, mikið af glompum en þó ekki þykka grasið sem víða er á links völlunum. Flatirnar eru flestar fremur stórar með töluverðu landslagi og margar vel varðar af glompum. Fyrir þá sem kjósa að ganga golfið þá hentar Levante mjög vel til þess.
Golfbíll kostar 45€ á hring (22,5€ á mann ef tveir deila bíl). Kerran kostar 7€.
Poniente er blanda af par 3 og 4 brautum og er virkilega vel heppnaður. Liggur í dal sem gefur brautunum mikið landslag og reynir á leikskipulag ef á að skora hann vel þrátt fyrir að vera ekki mjög langur. Golfbíll er innifalinn á Poniente vellinum.
Frá Villaitana er örstutt niður í gamla bæinn í Benidorm þar sem er að finna mikið úrval veitingastaða og verslana auk þess að gaman er að ganga upp á útsýnispallinn yfir strendurnar Poniente og Levante. Fyrir þá sem vilja kíkja út á lífið þá er næturlífið á Benidorm fjörugt öll kvöld vikunnar.
Altea er gaman að heimsækja, rölta um gömlu strætin og fá sér svo kvöldmat á einum af mörgum úrvals veitingastöðunum í Altea.
Hótelið er í 40 mínútna fjarlægð frá flugvellinum í Alicante.
Við erum til taks til að svara öllum spurningum um ferðina og aðstoða við bókun.