🧘 Pilates og Yoga
💆 Spa heilsulind
📍 Maspalomas
🍽️ Morgunverður
📚 Fyrirlestrar
🚶 Gönguferðir

Bull Vital Suites & Spa ★★★★

Bull Vital Suites & Spa Boutique Hotel er góður kostur á frábærum stað á ensku ströndinni. Útsýni er yfir golfvöllinn í Maspalomas. Einnig er fallegt útsýni yfir sandöldurnar og vitann. Stór innisundlaug og heilsulind. Nokkurra mínútna gangur er að Yumbo-verslunarmiðstöðinni og korter niður á strönd.

Í hótelinu eru 56 herbergi, sem skiptast í junior svítur, tvíbýli deluxe sem eru ýmist með útsýni yfir garðinn, golfvöllinn eða bæði. Innréttingar eru nútímalegar og stílhreinar. Flísar eru á gólfum. Alls staðar er loftkæling, smábar, sími, sjónvarp, öryggishólf og þráðlaus nettenging. Á baðherbergjum er hárþurrka, baðsloppar og baðvörur. Inn á Junior svítum er einnig lítil eldhúsaðstaða þar sem má finna örbylgjuofn, lítinn vask og kæliskáp.

Morgunverður er borinn fram á veitingastaðnum Panorama í sundlaugargarðinum, með útsýni yfir Maspalomas-golfvöllinn og sandöldurnar. Í hótelgarðinum eru 2 sundlaugar og góð sólbaðsaðstaða.

Það sem gerir þetta þægilega hótel enn betra en ella er heilsulindin sem er af bestu gerð. Innilaugin er 500 fermetrar með 34°C saltvatni, nuddtúðum og fossum. Boðið er upp á gufuböð og þurrgufu, leirböð, ilmolíugufuböð og nudd-, líkams- og snyrtimeðferðir af öllum gerðum gegn aukagjaldi. Þar er einnig líkamsræktaraðstaða. Hægt er að panta einkaþjálfara, sjúkraþjálfara og sjúkranuddara. Tvisvar á dag er hægt að fara í Pílates.

Bull Vital Suites henta öllum þeim sem vilja næra líkama og sál, á rólegu svæði, með golfvöllinn á aðra hönd og Ensku ströndina á hina.

Unnur Pálmarsdóttir — fararstjóri

Unnur er einn reyndasti hóptímakennari og þjálfari landsins. Hún hefur kennt hóptíma og þjálfað landsmenn í yfir 32 ár. Hún er með MBA gráðu frá H.Í., diplómanámi í mannauðsstjórnun og M.Sc. gráða í mannauðsstjórnun.

Í ferðinni er lögð áhersla á að njóta lífsins, stunda heilsurækt undir berum himni, Pilates, Yoga, gönguferðir, dans, fyrirlestrar, skoðunarferðir um eyjuna fögur og sameiginlegt borðhald í lok ferðarinnar.

Unnið er með hvernig hægt er byggja upp líkama og sál án streitu og andlegs álags. Allir eru velkomnir í þessa ferð. Þú getur komið með hvort sem þú hefur prófað Pilates, Yoga, dans eða stundað heilsurækt og hreyfingu. Ferðin er einnig upplögð fyrir þá sem hafa lent í kulnun á vinnustað og eru að vinna sig frá streitu og hlaða batteríin í lífinu.

Einkunnarorð Unnar eru gleði, hamingja og við eigum aðeins einn líkama. Því er mikilvægt að huga vel að líkama og sál.

Dagskrá ferðarinnar

Heilsurækt huga, líkama og sálar til Kanarí er endurnærandi heilsu- og líftílsnámskeið og upplifun þar sem Unnur Pálmarsdóttir stýrir fjölbreyttri dagskrá sem inniheldur skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar og fyrirlestra sem endurhlaða líkama, vellíðan og sál.

Við förum morgungöngur meðfram ströndinni, Fusion Pilates, Fitness Yoga, dönsum og njötum. Einnig verður styrktarþjálfun í tækjasal, teygjur og fleira.

DAGSKRÁ

Þriðjudagur, 13. október 2026

Flogið með Icelandair FI 588 – Brottför frá Keflavík klukkan 10:00

Áætluð lending á Las Palmas klukkan 16:20. Fararstjóri ferðast með hópnum út til Kanarí.

Akstur frá flugvelli í Las Palmas að hótelinu Bull Vital Suits and Spa.

17:30 – 18:30 Unnur Pálmarsdóttir fararstjóri verður með kynningarfund og fer yfir dagskrá vikunnar í hótelgarðinum á Bull Vital Suits and Spa.

Birt með fyrirvara um breytingar

Miðvikudagur, 14. október  2026

07:30 – 10:30 Morgunverður

08:30 – 09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla

11:00 – 12:00 Fyrirlestur „Heilsurækt huga, líkama og sálar“

12:00 – 13:30 Gönguferð og svæðið skoðað. Unnur fer með hópinn í góða göngu um Ensku ströndina og niður að Dunas sandöldunum.

17:30 – 18:30 Styrktarþjálfun í tækjasal – TABATA stöðvaþjálfun

Fimmtudagur, 15. október 2026

07:30 – 10:30 Morgunverður

08:30 – 09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla

10:30 – 11:30 Morgunganga niður að Faro Vitanum að ströndinni á Maspalomas

11:30 – 12:30 Yoga og núvitund á Maspalomas ströndinni.

12:30 -14:00 Hádegisverður á góðum veitingastað á Meloneras.

Frjáls tími það sem eftir er dags, tilvalið að njóta sólarinnar

Föstudagur 16. október 2026

Sigling í Puerto De Mogán með Yellow Boat og markaðurinn heimsóttur.

  08:45 – 16:00 Við byrjum daginn á að vera sótt á hótelið kl. 08:45 og ferðinni er heitið til Puerto De Mogán. Við byrjum á því að skoða fræga markaðinn sem liggur meðfram þorpinu niður að höfninni. Þart taka á móti okur hjónin Marta og Ruben og við förum í dásamlega siglingu með Yellow Boat. Skoðunarferðin kostar aðeins 60 Evrur.

Innifalið er akstur fram og tilbaka, léttir drykkir, tapas réttir og sigling. Hægt er að fá lánað snorkl græjur. Við siglum með ekta kanarískum bát, Yellow Boat sem er þekktur og vinsæll. Í bátnum eru mjög góð sæti og borð fyrir alla. Siglt er meðfram ströndinni að sveitaþorpinu Tasarte. Á leiðinni sjáum við klettabelti með litskrúðugum jarðlögum. Þaðan er snúið við og siglt að El Perchel víkinni sem er aðeins hægt að komast að frá sjó. Þar er hægt að fara í sjóinn, snorkla fyrir þá sem vilja, en sjórinn er einstaklega tær á þessu svæði. Við víkina eru bornar fram léttar veitingar, drykkir eru í boði alla ferðina. Skráning og upplýsingar hjá fararstjóra í ferðinni.

Laugardagur 17. október, 2026

07:30 – 10:30 Morgunverður

08:30 – 9:30  Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla

11:00 – 12:00 Fyrirlestur ,,Sjálfstraust & sigurvissa“

12:00 – 13:00 Stöðvaþjálfun í tækjasal og teygjur

19:00 – 20:00 Kvöldganga að Dunas Maspalomas sandöldunum þar sem við horfum á sólina setjast. Upplifun sem er yndisleg og engin má missa af.

Sunnudagur 18. október 2026

07:30 – 10:30 Morgunverður

Frjáls dagur. Upplagt er að skella sér til höfuðborgarinnar Las Palmas, Firgas, Amadores eða Puerto Rico.

Það er gaman að skoða eyjuna fögru. Upplýsingar um eyjuna veitir fararstjóri.

Mánudagur 19. október, 2026

07:30 – 10:30 Morgunverður

08:30 – 09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla

11:00 – 12:00 Fyrirlestur ,,Lífsgæði, næring og núvitund“

12:00 – 13:00 Styrktarþjálfun í tækjasal og góðar teygjur

13:00 – 13:30 Létt ganga niður að sandöldunum Dunas

18:30 – 21:30 Lokakvöldverður á vel völdum veitingastað nánari upplýsingar veitir fararstjóri

Þriðjudagur 20. október, 2026

Heimferð með Icelandair FI 589 frá Las Palmas brottför er klukkan 17:20 og lending í Keflavík klukkan 21:50

07:30 – 10:30 Morgunverður

08:30 – 09:30. Fusion Pilates morgunæfing fyrir flugið

Brottför frá hóteli og út á flugvöll, nánari tímasetning síðar hjá fararstjóra

Styrkveitingar stéttarfélaga

Fjöldi stéttarfélaga veita styrki til félagsmanna sinna fyrir námskeiðum og fræðslu eða endurmenntun. Kynntu þér þín réttindi, kannaðu styrkveitingar sem þitt stéttarfélag veitir og athugarðu hvort þá sé fyrir þessa ferð. Sendu á unnur@fusion.is til að fá fylgiskjöl til að sækja um styrk.

Innifalið í ferðinni

  • 8 daga ferð
  • Flug með Icelandair, 23 kg ferðataska, handfarangur og flugvallaskattar
  • 7 nætur á Bull Vital Suites & Spa Boutique Hotel 4★
  • Morgunverður
  • Íslensk fararstjórn
  • Akstur til og frá flugvelli
  • Aðgangur að glæsilegri Spa heilsulind
  • Aðgangur að líkamsræktarstöð Vital Flow á hótelinu
  • Jógadýnur í boði fyrir alla í heilsuferðinni
  • Dagskráin öll með Unni Pálmarsdóttur
  • Fyrirlestrar um bætta heilsu og vellíðan
  • Yogatímar, Pilates, styrktarþjálfun og dans

Svæðið

Playa Del Ingles

Þekktasti áfangastaðurinn á Kanarí er án efa Playa del Ingles eða „enska ströndin“. Líflega Playa del Ingles hefur upp á svo margt að bjóða, fallega strönd, huggulega veitingastaði og úrval verslana. Fyrir þá skemmtanaþyrstu er af nægu að taka í næturlífinu, hvort sem það er töff næturklúbbar, lifandi tónlist eða kabarett.

Meloneras

Sjarmi Meloneras er óneitanlegur. Á suðausturhluta eyjunnar er þessi fallegi staður þar sem flottar verslanir, framúrskarandi veitingastaðir og gullfallegar strendur standa fyrir sínu. Hótelin eru glæsileg og mikið er um lúxus fjölskylduhótel.

Maspalomas

Maspalomas er vel þekkt nafn vegna fallega vitans El Faro við enda strandarinnar og fallegu sandhólanna sem liggja að bænum. Maspalomas er rólegri en Playa del Ingles. Þar eru verslanir með merkjavöru og fyrsta flokks veitingastaðir, margir staðsettir við fallega ströndina.

Staðsetning

Hafðu samband

Allar upplýsingar um ferðina veitir Unnur Pálmarsdóttir — unnur@fusion.is — sími: 844-8707

Heilsuferð Maspalomas Ferðadagsetningar: 13.10 - 20.10 Verð frá 269.900 kr.