⛳ 18 holur par 70
🏨 4★ hótel
🏖️ Við ströndina
🍽️ Morgun- og kvöldverður
🏔️ Sierra Nevada
💆 Heilsulind

Impressive Playa Granada ★★★★

Þetta fallega golfsvæði er staðsett við Playa de Granada ströndina í Andalúsíu. Hér er virkilega gott 4★ hótel með rúmgóðum herbergjum (öll með walk in sturtum) og góðum hótelgarði sem teygir sig niður að sjálfri ströndinni.

Hótelið er staðsett á ströndinni umlukið golfvellinum. Herbergin eru rúmgóð og vel búin og öll með „walk in“ sturtu sem hentar mörgum mun betur en ef sturtan er í baðkarinu. Þau eru öll með góðum svölum eða veröndum.

Hótelgarðurinn er mjög stór og nær niður að baðströndinni og því auðvelt að finna sér aðstöðu ef fólk vill slaka á í góðu næði. Sundlaug með sólarbekkjum og sólhlífar fyrir þá sem vilja hvíla sig á sólinni. Á hótelinu er nokkuð stór bíó/leikhússalur þar sem er skemmtidagskrá öll/flest kvöld ársins. Einnig er stór heilsulind með öllu sem tilheyrir og fullkominn líkamsræktarsalur.

Innifalið í verði ferða er morgun- og kvöldverður ásamt drykkjum með kvöldverð. Einnig er í boði að velja allt innifalið og þá bætist við hádegisverður og snakk matseðill á bilinu 11:30–18:30 og úrval innlendra drykkja á bilinu 10:00–24:00.

Það er okkar álit að hér sé um afskaplega góðan valkost að ræða þegar kemur að góðri golfferð. Aslappað andrúmsloftið og staðsetningin er einstök en bestu meðmælin eru þó hugsanlega þau að tveir af fararstjórum okkar sögðu einfaldlega „pant vera hérna“ við fyrstu skoðun.

Einnig býður hótelið upp á gegn aukagjaldi sjávarsýn — herbergi sem snúa í suður með útsýni út á sjóinn, kostar 12 evrur nóttin á mann, og Junior svítur sem kosta aukalega 60 evrur nóttin per herbergi.

Þorsteinn Hallgrímsson er fararstjóri okkar á Los Moriscos.

Heimasíða Impressive Playa Granada
Heimasíða Los Moriscos Golf

Los Moriscos golfvöllurinn — 18 holur, par 70

Los Moriscos er 18 holu völlur, par 70 og er tæplega 5.100 metrar af gulum teigum og tæplega 4.700 af rauðum. Fjölbreyttar brautir og þrátt fyrir að vera ekki mjög langur, sem reyndar hentar meðal kylfingnum bara betur, þá er hann skemmtileg áskorun.

Völlurinn hentar vel til að ganga en fyrir þá sem vilja þá er hægt að leigja golfbíl.

Klúbbhúsið er rétt um 700 metra, 5–10 mínútna rölt, frá hótelinu. Staðsett í flæðirmálinu með einstöku útsýni yfir hafið þegar setið á veitingastaðnum og mælum við með því að allir prófi sjávarréttina þeirra.

Það er ekki amalegt útsýnið á Los Moriscos með hafið á aðra hönd og snæviþakta tinda Sierra Nevada fjallanna á hina.

Reynslan er að langflestir okkar farþega á Los Moriscos leika ekki meir en 18 holur á dag. Fyrir þá sem vilja þá er hægt að forbóka ótakmarkað golf fyrir aðeins 16 evrur á dag en það þarf að panta fyrir alla dagana. Ef ekki pantað fyrirfram kostar einstakur hringur 50 evrur og greitt í klúbbhúsinu fyrir leik, 9 holur 30 evrur.

Innifalið í verði ferða eru 3hjóla handkerrur en jafnframt er hægt að leigja golfbíl (30 evrur per 18 holur, 15 á mann ef tveir deila bíl).

Innifalið í ferðinni

  • Beint leiguflug til og frá Almería með Neos
  • Farangur: Ferðataska 15 kg, golfsett 20 kg, minni handfarangur 8 kg
  • Flugvallarskattar
  • Íslensk fararstjórn — fararstjóri Þorsteinn Hallgrímsson
  • Gisting með morgun- og kvöldverði ásamt drykkjum með kvöldmat (vatn, vín, gos, bjór)
  • Einnig er val um allt innifalið (hádegismatur, snakk 11:30–18:30, drykkir 10:00–24:00)
  • Matur og drykkir eru innifaldir á hótelinu, ekki í klúbbhúsinu
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Golf 18 holur alla daga nema ferðadaga
  • 3hjóla handkerra innifalin — rafmagnskerra 15€, golfbíll 30€ per 18 holur
  • Hægt er að bóka ótakmarkað golf gegn vægu aukagjaldi (16€/dag) fyrir brottför
  • Verð í betri sæti 8.000 kr., sæti við neyðarútgang 4.500 kr. og almennt sæti 1.500 kr.

Salobreña og nágrenni

Í næsta nágrenni er bærinn Salobreña sem gaman er að heimsækja, skoða kastalann, rölta um gömlu strætin og fá sér að borða á einhverjum af úrvals veitingastöðunum. Það er örstutt að skjótast með leigubíl til Salobreña eða rölta eftir ströndinni og taka svo leigubíl heim.

Aðrir golfvellir í nágrenninu

Ef það er áhugi á að fara og leika aðra velli þá er best að ræða það við fararstjóra sem aðstoðar við að finna rástíma.

  • Granada Golf
  • Anoreta Golf
  • Almerimar Golf

Staðsetning

Hafðu samband

Við erum til taks til að svara öllum spurningum um ferðina og aðstoða við bókun.

Los Moriscos Ferðadagsetningar: 27.09 - 04.10  |  04.10 - 16.10  |  16.10 - 25.10 Verð frá 289.900 kr.