⛳ 18 holur
♾️ Ótakmarkað golf
🏨 5★ hótel
🚗 Golfbíll innifalinn
💆 Heilsulind
✈️ 40 mín frá flugvelli

Hótel La Finca ★★★★★

La Finca er virkilega flott golfsvæði með 18 holu golfvelli og 5 stjörnu hóteli staðsettu við völlinn. Golfvöllurinn er hannaður af Pepe Gancedo og var opnaður 2002.

La Finca er staðsett í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá flugvellinum í Alicante og þegar þangað er komið þarftu ekki að fara neitt annað. Hótelið með 120 rúmgóðum herbergjum, 33m², veitingastöðum, tyrknesku baði, nuddpottum og öllu sem til þarf til að gestum líði vel.

Á hótelinu eru samtals 120 herbergi. Herbergin eru mjög rúmgóð, 33m², búin öllum helstu þægindum s.s. þráðlausri internettengingu, hitastýringu, flatsjónvarpi, öryggishólfi, sófa, skrifborðsaðstöðu og öll með góðum svölum.

Á hótelinu er heilsulind þar sem hægt er að slaka á eftir golfið.

Innifalið í öllum ferðum er morgunverður. Hádegisverð er hægt að snæða í klúbbhúsinu.

Heimasíða Hotel La Finca
Heimasíða La Finca Golf

La Finca golfvöllurinn — 18 holur

Þessi völlur er með breiðum brautum og fallegum flötum. Sannarlega einn besti golfvöllur Spánar að mati margra og er völlurinn vinsæll hjá mörgum Íslendingum. Mjög gott æfingasvæði.

Flatirnar á La Finca eru gjörólíkar hver annarri, mismunandi lögun, sumar þeirra eru þekktar fyrir sína lögun s.s. 7. holan sem er ferningslaga og á holu 14 er flötin kringlótt og djúp, sem minnir á lögun kínverskrar wok pönnu.

La Finca golfvöllurinn hefur verið vettvangur nokkurra virtra móta frá opnun hans, svo sem: Evrópumeistaramót unglinga, spænska unglingameistaramótið og úrslitakeppni Audi Class og Audi Quattro fyrir áhugakylfinga.

Golfbíll er innifalinn með golfinu á La Finca.

Innifalið í ferðinni

  • Beint flug til og frá Alicante með Neos
  • Farangur: Ferðataska 15 kg, golfsett 20 kg, minni handfarangur 8 kg
  • Gisting með morgunverði
  • 18 holur á dag með golfbíl nema ferðadaga
  • Akstur til og frá Alicante flugvelli
  • Íslensk fararstjórn

Aðrir golfvellir í nágrenninu

Ef það er áhugi á að fara og leika aðra velli þá er best að ræða það við fararstjóra sem aðstoðar við að finna rástíma.

Staðsetning

Hafðu samband

Við erum til taks til að svara öllum spurningum um ferðina og aðstoða við bókun.

La Finca Ferðadagsetningar: 02.10 - 09.10  |  09.10 - 17.10  |  23.10 - 03.11 Verð frá 365.900 kr.