⛳ 18 holur par 70
♾️ Ótakmarkað golf
🏨 5★ hótel
🚗 Golfbíll innifalinn
💆 Stórt SPA
🏔️ Fallegt útsýni

Hótel La Envia ★★★★★

Glæsilegt 5★ hótel í hlíðum Sierra De Gádor með fallegu útsýni. Aðeins um 30 mínútur frá flugvellinum í Almería og innan við 20 mínútur með leigubíl inní miðbæ Almería borgarinnar.

Öll herbergin sem við bjóðum okkar farþegum eru með sólríkum svölum sem snúa að sundlauginni og golfvellinum.

Aðstaðan á hótelinu er til fyrirmyndar, góð setuaðstaða til að ræða golfið yfir góðum drykk.

Á hótelinu er stórt SPA, innifalið er aðgangur í eitt skipti.

Fyrir utan hótelið er sundlaug með aðstöðu til slökunar í sólinni.

Heimasíða Hotel La Envia Golf
Heimasíða La Envia Golf

La Envia golfvöllurinn — 18 holur, par 70

Golfvöllurinn er 18 holur, par 70 og liggur í dal með Gádor fjöllin á tvo vegu. Heilmikið landslag er í vellinum sem er virkilega skemmtilegur að takast á við. Fyrri 9 eru nokkuð flatar en langar og undirbúa kylfinga vel fyrir heilmikið landslag á seinni 9. Holur 12, 13, 14 eru kallaðar „Amen Corner“ — tækifærin eru mikil en einnig stutt í refsingar.

Æfingasvæði er til staðar þar sem hægt er að æfa alla þætti golfleiksins. Golfverslun er í klúbbhúsinu sem stendur við hlið hótelsins. Þar má geyma golfsettin á milli þess sem golfið er leikið.

Golfbíll er innifalinn 18 holur á dag.

Innifalið í ferðinni

  • Beint leiguflug til og frá Almería með Neos
  • Farangur: Ferðataska 15 kg, golfsett 20 kg, minni handfarangur 8 kg
  • Flugvallarskattar
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Íslensk fararstjórn
  • Gisting með morgun- og kvöldverði
  • Ótakmarkað golf — ATH ekki hægt að panta seinni hring fyrirfram
  • Golfbíll er innifalinn 18 holur á dag
  • Golf á komudegi er ekki innifalið nema það sé sérstaklega tekið fram
  • Verð í betri sæti 8.000 kr., sæti við neyðarútgang 4.500 kr. og almennt sæti 1.500 kr.

Aðrir golfvellir í nágrenninu

Ef það er áhugi á að fara og leika aðra velli þá er best að ræða það við fararstjóra sem aðstoðar við að finna rástíma.

  • Playa Serena Golf — stutt akstur
  • Almerimar Golf — stutt akstur
  • Alborán Golf — stutt akstur

Staðsetning

Hafðu samband

Við erum til taks til að svara öllum spurningum um ferðina og aðstoða við bókun.

La Envia Ferðadagsetningar: 27.09 - 04.10  |  04.10 - 16.10  |  16.10 - 25.10 Verð frá 289.900 kr.