Golfskóli á La Envia
Golfskólar fyrir alla — byrjendur sem lengra komna — 5★ hótel í Almería

Skólar fyrir alla, byrjendur sem lengra komna. Golfskálinn hefur boðið upp á sér skóla fyrir lengra komna undanfarin ár og hafa viðtökur verið virkilega góðar. Margir sem eru komnir með þokkalegan grunn en vantað að komast á næsta stig og svo þeir sem eiga maka eða vin sem er að byrja í golfi en langar ekki í skóla fyrir byrjendur.
Námskrá hvers stigs fyrir sig tekur mið af stöðu nemenda og er því ólík á milli skólastiga. Grunnskólinn kennir fyrstu skrefin. Framhaldsskólinn er hugsaður fyrir þá sem hafa ágætis grunn og tækni og fer því dýpra í aðra þætti leiksins. Ef þú ert ekki viss hvaða skóli hentar þér þá máttu bara bóka annan hvorn þeirra og við finnum út úr því með þér þegar út er komið enda er markmið skólans að skila ánægðum betri kylfingum.
Í þeim tilvika að farþegar í sömu bókun vilji fara í sitthvorn skólann þá er best að bóka báða í sama skólann og senda svo línu á travel@golfskalinn.is — við lögum bókunina í samræmi við ykkar óskir.
Kennslan fer fram á morgnana og eftir hádegishlé eigum við frátekna rástíma fyrir þá sem vilja fara út að spila. Alla daga utan ferðadaga eiga nemendur golfskólans frátekna rástíma til að leika golf á La Envia vellinum.
Í kennarateymi golfskólans eru menntaðir PGA golfkennarar og PGA kennaranemar auk þess að afreks/atvinnukylfingar eru stundum til aðstoðar. Fjöldi kennara fer eftir fjölda nemenda og því ekki víst að allir í teymi skólans sé við kennslu í öllum ferðum.
Glæsilegt 5★ hótel í hlíðum Sierra De Gádor með fallegu útsýni. Aðeins um 30 mínútur frá flugvellinum í Almería.
Öll herbergin sem við bjóðum okkar farþegum eru með sólríkum svölum sem snúa að sundlauginni og golfvellinum.
Aðstaðan á hótelinu er til fyrirmyndar, góð setuaðstaða til að ræða golfið yfir góðum drykk. Á hótelinu er stórt SPA, innifalið er aðgangur í eitt skipti.
Fyrir utan hótelið er sundlaug með aðstöðu til slökunar í sólinni.
Golfvöllurinn er 18 holur, par 70 og liggur í dal með Gádor fjöllin á tvo vegu. Heilmikið landslag er í vellinum sem er virkilega skemmtilegur að takast á við. Fyrri 9 eru nokkuð flatar en langar og undirbúa kylfinga vel fyrir heilmikið landslag á seinni 9. Holur 12, 13, 14 eru kallaðar „Amen Corner“ — tækifærin eru mikil en einnig stutt í refsingar.
Æfingasvæði er til staðar þar sem hægt er að æfa alla þætti golfleiksins. Golfverslun er í klúbbhúsinu sem stendur við hlið hótelsins. Þar má geyma golfsettin á milli þess sem golfið er leikið.
Golfbíll er innifalinn 18 holur á dag.
Ef það er áhugi á að fara og leika aðra velli þá er best að ræða það við fararstjóra sem aðstoðar við að finna rástíma.
Við erum til taks til að svara öllum spurningum um ferðina og aðstoða við bókun.