Gran Canaria, Spánn

Nýársheilsuferð til Kanarí

Byrjaðu nýja árið á tíu nóttum af hreyfingu, hvíld og fræðslu með Unni Pálmarsdóttur á Gran Canaria, 2.–12. janúar 2027. Pilates og jóga á morgnana, göngur að sandöldunum og vitanum, fyrirlestrar og heilsulind á 4 stjörnu hóteli við Maspalomas.

Sundlaugargarður Bull Vital Suites & Spa á Maspalomas séður úr lofti
  • Með Unni Pálmarsdóttur
  • 2.–12. janúar, 10 nætur
  • Flug með Icelandair
  • 1 brottför í boði
Unnur Pálmarsdóttir

Heilsurækt huga, líkama og sálar

Heilsurækt huga, líkama og sálar til Kanarí er endurnærandi heilsu- og lífsstílsnámskeið og upplifun. Unnur Pálmarsdóttir stýrir fjölbreyttri dagskrá með skemmtilegum æfingum og fyrirlestrum sem endurhlaða líkama og sál.

Morgnarnir byrja á Fusion Pilates og hugleiðslu í hótelgarðinum. Svo taka við göngur meðfram ströndinni og að sandöldunum, Fitness Yoga, dans, styrktarþjálfun og teygjur. Unnur heldur fyrirlestra um bætta lýðheilsu, markmiðasetningu og uppbyggingu hugar og sálar, og inn á milli gefst nægur tími til að njóta sólarinnar og heilsulindarinnar.

Ferðin er fyrir alla aldurshópa, hvort sem þú stundar heilsurækt reglulega eða ert að byrja, og hentar líka þeim sem hafa greinst með slit- og vöðvagigt.

Ummæli um ferðina

Ég mæli svo sannarlega með heilsuferðum Unnar Pálmarsdóttur. Maður kemur heim endurnærður bæði á sál og líkama. Ég hef farið þrisvar og ætla svo sannarlega í fleiri ferðir.

Dagskráin samanstendur af hreyfingu, hvíld, fyrirlestrum, göngum, góðum félagskap og frjálsum tíma eins og hver vill. Unnur heldur vel utan um alla hluti og leiðir dagskrána af mildi og jákvæðni. Unnur er líka frábær þjálfari. Í ferðinni býður hún meðal annars upp á pílates og tabatatíma í góðum tækjasal með allskonar tilbrigðum fyrir þá sem vilja.

Hótelið er lítið og notalegt með góðum sundlaugargarði og spai þar sem hægt er að láta líða úr sér. Þar er einnig hægt að panta alls konar nudd.

Unaðsstundir ferðarinnar eru að mínu mati morgunjóga/pílates úti í hótelgarðinum sem Unnur leiðir svo frábærlega. Þar njótum við útsýnis og fuglasöngs.

Kristín SverrisdóttirUm Heilsurækt huga, líkama og sálar á Kanarí, 13.–20. október 2026

Bull Vital Suites & Spa 4 stjörnu

Bull Vital Suites & Spa Boutique Hotel er rólegt hótel eingöngu fyrir fullorðna, á milli Ensku strandarinnar og Maspalomas. Útsýnið er yfir Maspalomas-golfvöllinn, sandöldurnar og vitann. Yumbo-verslunarmiðstöðin er í nokkurra mínútna göngufæri og um korter er gengið niður á strönd.

Morgunverður er borinn fram á Panorama í sundlaugargarðinum, með útsýni yfir golfvöllinn og sandöldurnar. Í gróðursælum garðinum eru tvær sundlaugar og góð sólbaðsaðstaða.

Herbergin

Á hótelinu eru 56 herbergi og svítur, með útsýni yfir garðinn, golfvöllinn eða hvort tveggja. Herbergin eru björt og nútímaleg, með flísum á gólfum, loftkælingu, smábar, síma, sjónvarpi, öryggishólfi og þráðlausu neti. Á baðherbergjum eru hárþurrka, baðsloppar og baðvörur.

Flest herbergin eru með verönd eða svölum út í gróðursælan garðinn eða að golfvellinum.

Heilsulind, sundlaug og líkamsrækt

Heilsulind hótelsins er af bestu gerð. Innilaugin er um 500 fermetrar, með 34 gráðu heitu saltvatni, nuddstútum og fossum. Þar eru líka gufuböð, sána og tyrkneskt bað. Aðgangur að heilsulindinni fylgir ferðinni; nudd, líkams- og snyrtimeðferðir eru í boði gegn aukagjaldi.

Í Vital Flow, líkamsræktarstöð hótelsins, fara styrktaræfingar dagskrárinnar fram. Aðgangur fylgir og jógadýnur eru í boði fyrir alla í hópnum. Á hótelinu er einnig hægt að panta einkaþjálfara, sjúkraþjálfara og nuddara.

Maspalomas, Playa del Inglés og Meloneras

Hótelið er á suðurströnd Gran Canaria, þar sem sólin skín nær allt árið. Sandöldurnar á Maspalomas eru friðland og þangað er stutt að ganga. Við enda strandarinnar stendur Faro-vitinn og þaðan liggur strandgatan til Meloneras, með verslunum, kaffihúsum og góðum veitingastöðum.

Playa del Inglés, Enska ströndin, er líflegasti hluti svæðisins með langri strönd, veitingastöðum og kvöldlífi. Í dagskránni er líka valfrjáls skoðunarferð og sigling frá Puerto de Mogán, litlu hafnarþorpi á vesturhluta suðurstrandarinnar.

Styrkir stéttarfélaga

Tilgangur er einnig að fræðast um bætt lífsgæði og stunda heilsurækt og líkamsrækt undir berum himni. Ávinningur starfsmanna er endurmenntun á sviðið starfsþróunar, heilsuræktar, fræðslu og hvernig er hægt að minnka streitu í lífi og starfi. Unnið er með hvernig hægt er byggja upp líkama og sál án streitu og andlegs álags og bæta samskipti á vinnustað. Ferðin er upplögð fyrir þá sem hafa lent í kulnun á vinnustað og eru að vinna sig frá streitu, núllstilla sig. Fyrirlestrar eru fræðandi og fjalla um bætta heilsu og vellíðan til að auka fræðslu og skilning á efninu.

Mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til námskeiða, fræðslu og endurmenntunar. Kynntu þér réttindi þín hjá þínu félagi og hvort ferðin fellur undir styrkinn. Unnur sendir fylgiskjöl fyrir umsóknina sé þess óskað.

Unnur Pálmarsdóttir

Fararstjóri: Unnur Pálmarsdóttir

Unnur Pálmarsdóttir er einn reyndasti hóptímakennari og þjálfari landsins og hefur kennt hóptíma í yfir 32 ár. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og rekur Fusion. Unnur ferðast með hópnum frá Keflavík og er með honum alla ferðina.

Einkunnarorð Unnar eru gleði, hamingja og að við eigum aðeins einn líkama.

Spurningar um ferðina? Unnur veit mest um hana og svarar öllum fyrirspurnum sjálf.

Ferðin frá degi til dags

Dagskrá

Dagur 1, laugardagur 2. janúar
  • Flogið með Icelandair FI 588, brottför frá Keflavík klukkan 10:00. Áætluð lending á Las Palmas klukkan 15:25. Fararstjóri ferðast með hópnum út til Kanarí.
  • Akstur frá flugvelli í Las Palmas að hótelinu Bull Vital Suites & Spa.
  • 17:30–18:30 Unnur Pálmarsdóttir fararstjóri verður með kynningarfund og fer yfir dagskrá vikunnar í hótelgarðinum á Bull Vital Suites & Spa.
Hótelgarðurinn á Bull Vital Suites & Spa
Dagur 2, sunnudagur 3. janúar
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • 08:30–09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla
  • 11:00–12:00 Fyrirlestur „Heilsurækt huga, líkama og sálar“
  • 12:00–13:30 Gönguferð og svæðið skoðað. Unnur fer með hópinn í góða göngu um Ensku ströndina og niður að Dunas sandöldunum.
Sólbekkir við herbergin á hótelinu
Dagur 3, mánudagur 4. janúar
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • 08:30–09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla
  • 10:30–11:30 Morgunganga niður að Faro-vitanum að ströndinni á Maspalomas
  • 11:30–12:30 Yoga og núvitund á Maspalomas ströndinni.
  • 12:30–14:00 Hádegisverður á góðum veitingastað á Meloneras.
  • Frjáls tími það sem eftir er dags, tilvalið að njóta sólarinnar.
Faro-vitinn á Maspalomas
Dagur 4, þriðjudagur 5. janúar
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • 08:30–09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla
  • 11:00–12:00 Fyrirlestur „Lífsgæði, næring og núvitund“
  • 12:00–13:00 Styrktarþjálfun í tækjasal og góðar teygjur
Sundlaugin við hótelið
Dagur 5, miðvikudagur 6. janúar
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • 08:30–09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla
  • 11:00–12:00 Fyrirlestur „Sjálfstraust & sigurvissa“
  • 12:00–13:00 Stöðvaþjálfun í tækjasal og teygjur
  • 19:00–20:00 Kvöldganga að Dunas Maspalomas sandöldunum þar sem við horfum á sólina setjast. Upplifun sem er yndisleg og enginn má missa af.
Innilaug heilsulindarinnar á hótelinu
Dagur 6, fimmtudagur 7. janúar
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • 08:30–09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla
  • 11:30–12:15 Styrktarþjálfun í tækjasal og góðar teygjur
Innilaug heilsulindarinnar með saltvatni
Dagur 7, föstudagur 8. janúar: Sigling í Puerto de Mogán með Yellow Boat, skoðunarferð
  • 08:45–16:00 Við byrjum daginn á að vera sótt á hótelið kl. 08:45 og ferðinni er heitið til Puerto de Mogán. Við byrjum á því að skoða fræga markaðinn sem liggur meðfram þorpinu niður að höfninni. Þar taka á móti okkur hjónin Marta og Ruben og við förum í dásamlega siglingu með Yellow Boat. Skoðunarferðin kostar aðeins 65 evrur.
  • Innifalið er akstur fram og til baka, léttir drykkir, tapasréttir og sigling. Hægt er að fá lánaðar snorklgræjur. Við siglum með ekta kanarískum bát, Yellow Boat, sem er þekktur og vinsæll. Í bátnum eru mjög góð sæti og borð fyrir alla. Siglt er meðfram ströndinni að sveitaþorpinu Tasarte. Á leiðinni sjáum við klettabelti með litskrúðugum jarðlögum. Þaðan er snúið við og siglt að El Perchel-víkinni sem er aðeins hægt að komast að frá sjó. Þar er hægt að fara í sjóinn og snorkla fyrir þá sem vilja, en sjórinn er einstaklega tær á þessu svæði. Við víkina eru bornar fram léttar veitingar og drykkir eru í boði alla ferðina.
  • Skráning og upplýsingar hjá fararstjóra í ferðinni.
Höfnin í Puerto de Mogán
Dagur 8, laugardagur 9. janúar
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • 08:30–09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla
  • 11:30–12:15 Styrktarþjálfun í tækjasal, TABATA stöðvaþjálfun
Jóga á ströndinni í sólarlaginu
Dagur 9, sunnudagur 10. janúar
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • Frjáls dagur. Upplagt er að skella sér til höfuðborgarinnar Las Palmas, Firgas, Amadores eða Puerto Rico.
  • Það er gaman að skoða eyjuna fögru. Upplýsingar um eyjuna veitir fararstjóri.
Dómkirkjan í Las Palmas
Dagur 10, mánudagur 11. janúar
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • 08:30–09:30 Fusion Pilates morgunæfing og hugleiðsla
  • 11:00–12:00 Fyrirlestur „Lífsgæði, næring og núvitund“
  • 12:00–13:00 Styrktarþjálfun í tækjasal og góðar teygjur
  • 18:30–21:30 Lokakvöldverður á vel völdum veitingastað, nánari upplýsingar veitir fararstjóri.
Hótelgarðurinn á Bull Vital Suites & Spa
Dagur 11, þriðjudagur 12. janúar
  • Heimferð með Icelandair FI 589 frá Las Palmas, brottför klukkan 16:30 og lending í Keflavík klukkan 22:00.
  • 07:30–10:30 Morgunverður
  • 08:30–09:30 Fusion Pilates morgunæfing fyrir flugið
  • Brottför frá hóteli og út á flugvöll, nánari tímasetning síðar hjá fararstjóra.
Sandöldurnar á Maspalomas

Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.

Maspalomas og nágrenni

Gran Canaria, Spánn

Hótelið, golfið og staðirnir í kring.

Hótel

Bull Vital Suites & Spa

Hótelið ykkar, við Maspalomas-golfvöllinn á milli Ensku strandarinnar og Maspalomas.

Avenida de Gran Canaria

Fararstjórinn svarar

Viltu vita meira um ferðina?

Unnur þekkir ferðina best og svarar sjálf öllum spurningum um dagskrána, hótelið og ferðina.

Nýársheilsuferð til Kanarí · 2.–12. janúar 2027Frá 379.900 kr.

Bóka ferð