Bull Vital Suites & Spa
Hótelið ykkar, við Maspalomas-golfvöllinn á milli Ensku strandarinnar og Maspalomas.
Gran Canaria, Spánn
Byrjaðu nýja árið á tíu nóttum af hreyfingu, hvíld og fræðslu með Unni Pálmarsdóttur á Gran Canaria, 2.–12. janúar 2027. Pilates og jóga á morgnana, göngur að sandöldunum og vitanum, fyrirlestrar og heilsulind á 4 stjörnu hóteli við Maspalomas.

Við förum morgungöngur meðfram ströndinni, Fusion Pilates, Fitness Yoga, dönsum og njótum. Einnig verður styrktarþjálfun í tækjasal, teygjur og fleira. Unnur verður með fyrirlestra sem fjalla um bætta lýðheilsu, markmiðasetningu, uppbyggingu sálar og huga. Í ferðinni er lögð áhersla á að njóta líðandi stundar, núllstilla hugann, minnka streituna og lifa í núinu.
Tilgangur er einnig að fræðast um bætt lífsgæði og stunda heilsurækt og líkamsrækt undir berum himni. Ávinningur starfsmanna er endurmenntun á sviðið starfsþróunar, heilsuræktar, fræðslu og hvernig er hægt að minnka streitu í lífi og starfi. Unnið er með hvernig hægt er byggja upp líkama og sál án streitu og andlegs álags og bæta samskipti á vinnustað. Ferðin er upplögð fyrir þá sem hafa lent í kulnun á vinnustað og eru að vinna sig frá streitu, núllstilla sig. Fyrirlestrar eru fræðandi og fjalla um bætta heilsu og vellíðan til að auka fræðslu og skilning á efninu.
Ferðin er fyrir alla aldurshópa, heilsuræktarunnendur og einnig þá sem hafa greinst með slit- og vöðvagigt og fleira.
Ég mæli svo sannarlega með heilsuferðum Unnar Pálmarsdóttur. Maður kemur heim endurnærður bæði á sál og líkama. Ég hef farið þrisvar og ætla svo sannarlega í fleiri ferðir.
Dagskráin samanstendur af hreyfingu, hvíld, fyrirlestrum, göngum, góðum félagskap og frjálsum tíma eins og hver vill. Unnur heldur vel utan um alla hluti og leiðir dagskrána af mildi og jákvæðni. Unnur er líka frábær þjálfari. Í ferðinni býður hún meðal annars upp á pílates og tabatatíma í góðum tækjasal með allskonar tilbrigðum fyrir þá sem vilja.
Hótelið er lítið og notalegt með góðum sundlaugargarði og spai þar sem hægt er að láta líða úr sér. Þar er einnig hægt að panta alls konar nudd.
Unaðsstundir ferðarinnar eru að mínu mati morgunjóga/pílates úti í hótelgarðinum sem Unnur leiðir svo frábærlega. Þar njótum við útsýnis og fuglasöngs.
Bull Vital Suites & Spa Boutique Hotel er rólegt hótel eingöngu fyrir fullorðna, á milli Ensku strandarinnar og Maspalomas. Útsýnið er yfir Maspalomas-golfvöllinn, sandöldurnar og vitann. Yumbo-verslunarmiðstöðin er í nokkurra mínútna göngufæri og um korter er gengið niður á strönd.
Morgunverður er borinn fram á Panorama í sundlaugargarðinum, með útsýni yfir golfvöllinn og sandöldurnar. Í gróðursælum garðinum eru tvær sundlaugar og góð sólbaðsaðstaða.
Á hótelinu eru 56 herbergi og svítur, með útsýni yfir garðinn, golfvöllinn eða hvort tveggja. Herbergin eru björt og nútímaleg, með flísum á gólfum, loftkælingu, smábar, síma, sjónvarpi, öryggishólfi og þráðlausu neti. Á baðherbergjum eru hárþurrka, baðsloppar og baðvörur.
Flest herbergin eru með verönd eða svölum út í gróðursælan garðinn eða að golfvellinum.
Heilsulind hótelsins er af bestu gerð. Innilaugin er um 500 fermetrar, með 34 gráðu heitu saltvatni, nuddstútum og fossum. Þar eru líka gufuböð, sána og tyrkneskt bað. Aðgangur að heilsulindinni fylgir ferðinni; nudd, líkams- og snyrtimeðferðir eru í boði gegn aukagjaldi.
Í Vital Flow, líkamsræktarstöð hótelsins, fara styrktaræfingar dagskrárinnar fram. Aðgangur fylgir og jógadýnur eru í boði fyrir alla í hópnum. Á hótelinu er einnig hægt að panta einkaþjálfara, sjúkraþjálfara og nuddara.
Hótelið er á suðurströnd Gran Canaria, þar sem sólin skín nær allt árið. Sandöldurnar á Maspalomas eru friðland og þangað er stutt að ganga. Við enda strandarinnar stendur Faro-vitinn og þaðan liggur strandgatan til Meloneras, með verslunum, kaffihúsum og góðum veitingastöðum.
Playa del Inglés, Enska ströndin, er líflegasti hluti svæðisins með langri strönd, veitingastöðum og kvöldlífi. Í dagskránni er líka valfrjáls skoðunarferð og sigling frá Puerto de Mogán, litlu hafnarþorpi á vesturhluta suðurstrandarinnar.
Mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til námskeiða, fræðslu og endurmenntunar. Kynntu þér réttindi þín hjá þínu félagi og hvort ferðin fellur undir styrkinn. Unnur sendir fylgiskjöl fyrir umsóknina sé þess óskað.
Unnur Pálmarsdóttir er einn reyndasti hóptímakennari og þjálfari landsins og hefur kennt hóptíma í yfir 32 ár. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og rekur Fusion. Unnur ferðast með hópnum frá Keflavík og er með honum alla ferðina.
Einkunnarorð Unnar eru gleði, hamingja og að við eigum aðeins einn líkama.
Spurningar um ferðina? Unnur veit mest um hana og svarar öllum fyrirspurnum sjálf.
Ferðin frá degi til dags











Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Gran Canaria, Spánn
Fararstjórinn svarar
Unnur þekkir ferðina best og svarar sjálf öllum spurningum um dagskrána, hótelið og ferðina.
Nýársheilsuferð til Kanarí · 2.–12. janúar 2027Síðasta verð frá 379.900 kr.
Bóka ferð