Bull Vital Suites & Spa
Hótelið ykkar, við Maspalomas-golfvöllinn á milli Ensku strandarinnar og Maspalomas.
Gran Canaria, Spánn
Vika af hreyfingu, hvíld og fræðslu með Unni Pálmarsdóttur á Gran Canaria. Pilates og jóga á morgnana, göngur að sandöldunum og vitanum, fyrirlestrar og heilsulind á 4 stjörnu hóteli við Maspalomas.

Heilsurækt huga, líkama og sálar er endurnærandi heilsu- og lífsstílsnámskeið þar sem Unnur Pálmarsdóttir stýrir fjölbreyttri dagskrá. Dagurinn byrjar á Fusion Pilates og hugleiðslu, síðan taka við göngur meðfram ströndinni, Fitness Yoga, styrktarþjálfun í tækjasal, teygjur og dans.
Unnur heldur fyrirlestra um bætta lýðheilsu, markmiðasetningu og uppbyggingu hugar og sálar. Áherslan er á að njóta líðandi stundar, núllstilla hugann og minnka streitu. Ferðin hentar vel þeim sem vilja hlaða batteríin eftir álag eða kulnun í starfi.
Allir eru velkomnir, á hvaða aldri sem er og hvort sem þú hefur stundað Pilates, jóga eða aðra hreyfingu eða ekki. Ferðin hentar líka þeim sem glíma við slitgigt eða vöðvagigt. Inn á milli eru frjálsir tímar og einn frjáls dagur til að njóta sólarinnar eða skoða eyjuna.
Bull Vital Suites & Spa Boutique Hotel er rólegt hótel eingöngu fyrir fullorðna, á milli Ensku strandarinnar og Maspalomas. Útsýnið er yfir Maspalomas-golfvöllinn, sandöldurnar og vitann. Yumbo-verslunarmiðstöðin er í nokkurra mínútna göngufæri og um korter er gengið niður á strönd.
Á hótelinu eru 56 herbergi, tvíbýli og junior svítur, með útsýni yfir garðinn, golfvöllinn eða hvort tveggja. Herbergin eru björt og nútímaleg, með loftkælingu, smábar, sjónvarpi, öryggishólfi og þráðlausu neti. Junior svítum fylgir lítil eldhúsaðstaða.
Morgunverður er borinn fram á Panorama í sundlaugargarðinum, með útsýni yfir golfvöllinn og sandöldurnar. Í gróðursælum garðinum eru tvær sundlaugar og góð sólbaðsaðstaða.
Heilsulind hótelsins er af bestu gerð. Innilaugin er um 500 fermetrar, með 34 gráðu heitu saltvatni, nuddstútum og fossum. Þar eru líka gufuböð, sána og tyrkneskt bað. Aðgangur að heilsulindinni fylgir ferðinni; nudd, líkams- og snyrtimeðferðir eru í boði gegn aukagjaldi.
Í Vital Flow, líkamsræktarstöð hótelsins, fara styrktaræfingar dagskrárinnar fram. Aðgangur fylgir og jógadýnur eru í boði fyrir alla í hópnum. Á hótelinu er einnig hægt að panta einkaþjálfara, sjúkraþjálfara og nuddara.
Hótelið er á suðurströnd Gran Canaria, þar sem sólin skín nær allt árið. Sandöldurnar á Maspalomas eru friðland og þangað er stutt að ganga. Við enda strandarinnar stendur Faro-vitinn og þaðan liggur strandgatan til Meloneras, með verslunum, kaffihúsum og góðum veitingastöðum.
Playa del Inglés, Enska ströndin, er líflegasti hluti svæðisins með langri strönd, veitingastöðum og kvöldlífi. Í dagskránni er líka valfrjáls skoðunarferð og sigling frá Puerto de Mogán, litlu hafnarþorpi á vesturhluta suðurstrandarinnar.
Mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til námskeiða, fræðslu og endurmenntunar. Kynntu þér réttindi þín hjá þínu félagi og hvort ferðin fellur undir styrkinn. Unnur sendir fylgiskjöl fyrir umsóknina sé þess óskað.
Unnur Pálmarsdóttir er einn reyndasti hóptímakennari og þjálfari landsins og hefur kennt hóptíma í yfir 32 ár. Hún er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og rekur Fusion. Unnur ferðast með hópnum frá Keflavík og er með honum alla ferðina.
Einkunnarorð Unnar eru gleði, hamingja og að við eigum aðeins einn líkama. Spurningar um dagskrána má senda beint á hana.
Ferðin frá degi til dags
Dagskráin er fyrir átta daga ferðina 12.–19. mars. Í janúarferðinni, 2.–12. janúar, er sama dagskrá yfir tíu nætur. Dagskrá getur tekið breytingum.
Gran Canaria, Spánn
Við hjálpum þér að velja
Hafðu samband við ferðaráðgjafa okkar og fáðu aðstoð við dagsetningar, gistingu og golf.
Heilsuferð til Kanarí · 12.–19. mars 2027Síðasta verð frá 339.000 kr.
Bóka ferð