einstakt golf resort á almería svæðinu á spáni
Almerimar Golf er virkilega flott golfsvæði með 27 holu golfvelli og glæsilegu hóteli staðsettu á vellinum. Almerimar er ákaflega snyrtilegur lítill bær þar sem golfvöllurinn leikur aðalhlutverkið en þar er jafnframt að finna stóra smábátahöfn með fjölda veitingastaða og fallega baðströnd.
Hótelið er staðsett miðsvæðis í stuttu göngufæri við smábátahöfnina og baðströndina.
Jafnframt er matvörumarkaður, Mercadona, í næsta húsi við hótelið. Stutt er að fara með leigubíl (10 mín) í verslunarmiðstöð með ýmsum fataverslunum.
Golfskólar Golfskálans
Skólar fyrir alla, byrjendur sem lengra komna.
Golfskálinn hefur boðið upp á sér skóla fyrir lengra komna undanfarin ár og hafa viðtökur verið virkilega góðar. Margir sem eru komnir með þokkalegan grunn en vantað að komast á næsta stig og svo þeir sem eiga maka eða vin sem er að byrja í golfi en langar ekki í skóla fyrir byrjendur.
Námskrá hvers stigs fyrir sig tekur mið af stöðu nemenda og er því ólík á milli skólastiga. Grunnskólinn kennir fyrstu skrefin. Framhaldsskólinn er hugsaður fyrir þá sem hafa ágætis grunn og tækni og fer því dýpra í aðra þætti leiksins. Ef þú ert ekki viss hvaða skóli hentar þér þá máttu bara bóka annan hvorn þeirra og við finnum út úr því með þér þegar út er komið enda er markmið skólans að skila ánægðum betri kylfingum.
Í þeim tilvika að farþegar í sömu bókun vilji fara í sitthvorn skólann þá er best að bóka báða í sama skólann senda svo línu á travel@golfskalinn.is og við lögum bókunina í samræmi við ykkar óskir.
Kennslan fer fram á morgnana og eftir hádegishlé eigum við frátekna rástíma fyrir þá sem vilja fara út að spila. Alla daga utan ferðadaga eiga nemendur golfskólans frátekna rástíma til að leika golf á Alborán vellinum.
Í kennarateymi golfskólans eru menntaðir PGA golfkennarar og PGA kennaranemar auk þess að afreks/atvinnukylfingar eru stundum til aðstoðar. Fjöldi kennara fer eftir fjölda nemenda og því ekki víst að allir í teymi skólans sé við kennslu í öllum ferðum.
- 27 holu golfvöllur
- Golfkennsla fyrir hádegi
- Golf eftir hádegi
- Smábátahöfn með fjölda veitingastaða í 200 metra fjarlægð
- Baðströnd í göngufæri
- Matvörumarkaður á næsta horni
- Í boði að bóka garð/sundlaugarsýn gegn gjaldi
Hótel AR Almerimar Golf
Glæsilegt hótel staðsett við golfvöllinn.
Á hótelinu eru samtals 112 herbergi. Standard herbergin eru mjög rúmgóð, frá 55 fm, búin öllum helstu þægindum s.s. þráðlausri internettengingu, hitastýringu, flatsjónvarpi, öryggishólfi, sófa, skrifborðsaðstöðu og öll með góðum svölum.
Á hótelinu er heilsulind þar sem hægt er að slaka á eftir golfið.
Hótelið býður farþegum Golfskálans að prófa heilsulindina í eitt skipti án gjalds en annars þarf að greiða fyrir aðganginn. Einnig er í boði að panta nudd og dekurmeðferðir.
Fyrir utan hótelið er svo sundlaug með aðstöðu til slökunar í sólinni.
Í boði er að bóka garð/sundlaugarsýn gegn greiðslu, 2.000 kr. per herbergi per dag. ATH það að bóka sundlaugarsýn er ekki ávísun á sólarsvalir bæði vegna þess hvernig hótelið snýr við sólu auk þess að svalirnar eru töluvert yfirbyggðar og há handrið á svölum skyggja að hluta til á útsýni.
Innifalið í öllum ferðum er morgun- og kvöldverður ásamt léttum drykkjum með kvöldmatnum, vatn, gos, vín, bjór.
Einnig er í boði að bæta við úrvali innlendra drykkja á milli kl. 17:00 og 23:00.
Hádegisverð er hægt að snæða í klúbbhúsinu sem er við hótelið eða rölta niður á smábátahöfnina þar sem finna má fjölda veitingastaða. .
Heimasíða Hotel AR Almerimar GolfHerbergi og aðstaða:
Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.
Almerimar golfvöllurinn
27 holu golfvöllur
Völlurinn sem er hannaður af Rob Kirby og Gary Player er virkilega flottur valkostur þegar velja á góða golfferð. Völlurinn sem samanstendur af þrisvar sinnum 9 holum, stendur á rúmlega 80 hektara svæði og er skemmtileg blanda af ólíkum holum með víðum brautum, stórum flötum og nokkrum vötnum. Þar sem eyjuholan, 3 braut á rauðu slaufunni reynir á hæfni færustu kylfinga.
Mjög gott æfingasvæði er til staðar þar sem hægt er að æfa alla þætti golfleiksins. Klúbbhúsið er glæsilegt og stendur við hlið hótelsins. Þar má geyma golfsettin á milli þess sem golfið er leikið auk þess að þar er að finna flottan veitingastað.
Fyrir þá sem velja að ganga golfið þá hentar Almerimar Golf mjög vel til þess. Engar stórar brekkur er að fara þrátt fyrir að það sé landslag í vellinum að hluta. Innifalið í verði ferða eru 3hjóla handkerrur en jafnframt er hægt að leigja golfbíl fyrir þá sem það kjósa. Verð á bíl ef greiddur á staðnum er 35 evrur. Ef forbókaður og greiddur fyrir ferð alla dagana kostar hann kr. 4.500 per skipti.
Heimasíða Hotel AR Almerimar GolfGolfvöllur og klúbbhús:
Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.
VOR 2026
Best að snúa símanum á hlið til að sjá alla töfluna.
| DAGSETNING | FLUG ÚT | FLUG HEIM | FÆÐI | TVÍBÝLI | EINBÝLI | ÞRÍBÝLI | BÓKA |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| GOLFSKÓLI | |||||||
| 31.03 - 10.04 | 09:00 / 15:45 | 16:45 / 19:55 | Mv. og kvöldv. m/drykkjum | 429.900 kr. | 499.900 Kkr. | 419.900 kr. | UPPSELT |
| 10 nætur / 9 golfd. 7 skólad. | NEOS leiguflug til Almería | NEOS leiguflug frá Almería | Mv. og kvöldv og drykkir 17:00-23:00 | 453.900 kr. | 523.900 kr. | 443.900 kr. | UPPSELT |
| GOLFSKÓLI | |||||||
| 10.04 - 19.04 | 09:00 / 15:45 | 16:45 / 19:55 | Mv. og kvöldv. m/drykkjum | 374.900 kr. | 444.900 kr. | 367.900 kr. | UPPSELT |
| 9 nætur / 8 golfd. 6 skólad. | NEOS leiguflug til Almería | NEOS leiguflug frá Almería | Mv. og kvöldv og drykkir 17:00-23:00 | 392.900 kr. | 464.900 kr. | 388.900 kr. | UPPSELT |
- Beint leiguflug til og frá Almería með Neos.
- Farangur: Ferðataska 15 kg. Golfsett 20 kg. Minni handfarangur 8kg sem passar undir sæti.
- Flugvallarskattar.
- Íslensk fararstjórn.
- Gisting með morgun og kvöldverði ásamt léttum drykkjum með kvöldmatnum, vatn, gos, vín, bjór.
- Í boði er að innifela úrval innlendra drykkja á bilinu 17:00 – 23:00.
- Akstur milli flugvallar og hótels.
- Ótakmarkað golf. ATH ekki hægt að panta seinni hring fyrirfram.
- 3hjóla handkerra er innifalinn. Golfbíll kostar kr. 4.500 (2.250 á mann ef tveir um bílinn) per 18 holur. 3.000kr ef farið er seinnihring, 1.500kr ef 9holur.
- Golf á komudegi er ekki innifalið nema það sé sérstaklega tekið fram.
- Ekki er mögulegt að innrita sig í flugið vorið 2026 á vefnum þar sem um leiguflug er að ræða. Fyrir sætapantanir í almenn sæti og betri sæti er hægt að hafa samband við Golfskálann í síma 578-0120 eða senda póst á travel(at)golfskalinn.is.
Verð í betri sæti 6.000 kr., sæti við neyðarútgang 3.500 kr. og almennt sæti kr. 1.450 kr., hver leggur. Betri sæti eru fremst í vélinni og er þá miðjusætið ekki setið.
Ef það er áhugi á að fara og leika aðra velli þá er best að ræða það við fararstjóra sem aðstoðar við að finna rástíma.
Næstu vellir eru Playa Serena, La Envia og Alborán.

Scotty Studio Style Fastback 1,5 34"