⛳ 27 holu golfvöllur
♾️ Ótakmarkað golf
⛵ Smábátahöfn
🏖️ Baðströnd
🏨 5★ hótel
💆 Heilsulind

Hótel AR Almerimar ★★★★★

Almerimar er ákaflega snyrtilegur lítill bær þar sem golfvöllurinn leikur aðalhlutverkið en þar er jafnframt að finna stóra smábátahöfn með fjölda veitingastaða og fallega baðströnd. Hótelið er staðsett miðsvæðis í stuttu göngufæri við smábátahöfnina og baðströndina. Jafnframt er matvörumarkaður, Mercadona, í næsta húsi við hótelið.

Hótel AR Almerimar Golf er glæsilegt 5-stjörnu hótel staðsett við golfvöllinn. Í hótelinu eru samtals 112 herbergi. Standard herbergin eru mjög rúmgóð, frá 55 fm, búin öllum helstu þægindum s.s. þráðlausri internettengingu, hitastýringu, flatsjónvarpi, öryggishólfi, sófa, skrifborðsaðstöðu og öll með góðum svölum.

Í hótelinu er heilsulind þar sem hægt er að slaka á eftir golfinu. Hótelið býður farþegum Golfskálans að prófa heilsulindina í eitt skipti án gjalds en annars þarf að greiða fyrir aðganginn. Einnig er í boði að panta nudd og dekurmeðferðir. Fyrir utan hótelið er sundlaug með aðstöðu til slökunar í sólinni.

Í boði er að bóka garð/sundlaugarsýn gegn greiðslu, 2.000 kr. per herbergi per dag.

Innifalið í öllum ferðum er morgun- og kvöldverður ásamt léttum drykkjum með kvöldmatnum — vatn, gos, vín, bjór. Einnig er í boði að bæta við úrvali innlendra drykkja á milli kl. 17:00 og 23:00.

Hádegisverð er hægt að snæða í klúbbhúsinu sem er við hótelið eða rölta niður á smábátahöfnina þar sem finna má fjölda veitingastaða.

Heimasíða Hótel AR Almerimar
Heimasíða Almerimar Golf

Golfvöllurinn — 27 holur

Völlurinn sem er hannaður af Rob Kirby og Gary Player er virkilega flottur valkostur þegar velja á góða golfferð. Völlurinn sem samanstendur af þrisvar sinnum 9 holum, stendur á rúmlega 80 hektara svæði og er skemmtileg blanda af ólíkum holum með víðum brautum, stórum flötum og nokkrum vötnum. Þar sem eyjuholan, 3. braut á rauðu slaufunni, reynir á hæfni fæstu kylfinga.

Mjög gott æfingasvæði er til staðar þar sem hægt er að æfa alla þætti golfleiksins. Klúbbhúsið er glæsilegt og stendur við hlið hótelsins. Þar má geyma golfsettin á milli þess sem golfið er leikið auk þess að þar er að finna flottan veitingastað.

Fyrir þá sem velja að ganga golfið hentar Almerimar Golf mjög vel til þess. Engar stórar brekkur er að fara þrátt fyrir að það sé landslag í vellinum að hluta. Innifalið í verði ferða eru 3hjóla handkerrur en jafnframt er hægt að leigja golfbíl fyrir þá sem það kjósa. Verð á bíl ef greiddur á staðnum er 35 evrur. Ef forbókaður og greiddur fyrir ferð alla dagana kostar hann kr. 4.500 per skipti.

Innifalið í ferðinni

  • Beint leiguflug til og frá Almería með Neos
  • Farangur: Ferðataska 15 kg, golfsett 20 kg, minni handfarangur 8 kg
  • Flugvallarskattar
  • Íslensk fararstjórn
  • Gisting á Hótel AR Almerimar Golf ★★★★★
  • Morgunverður og kvöldverður ásamt léttum drykkjum
  • Ótakmarkað golf á Almerimar Golf (27 holur)
  • 3hjóla handkerra á öllum umferðum
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Æfingasvæði til umráða
  • Golf á komudegi er ekki innifalið nema það sé sérstaklega tekið fram

Aðrir golfvellir í nágrenninu

Ef það er áhugi á að fara og leika aðra velli er best að ræða það við fararstjóra sem aðstoðar við að finna ráðstíma.

  • Playa Serena Golf — 18 holur, stutt akstur
  • La Envia Golf — 18 holur, stutt akstur
  • Alborán Golf — 18 holur, stutt akstur

Staðsetning

Hafðu samband

Við erum til taks til að svara öllum spurningum um ferðina og aðstoða við bókun.

Almerimar Golf Ferðadagsetningar: 27.09 - 04.10  |  04.10 - 16.10  |  16.10 - 25.10 Verð frá 314.900 kr.