Alicante, Spánn

La Finca

Landpakki á 5 stjörnu hóteli með morgunverði og 18 holum á dag, utan ferðadaga. Flug og akstur eru ekki innifalin.

La Finca golfvöllurinn og hótelið
  • Landpakki
  • 18 holur
  • 5 stjörnu hótel

La Finca: 18 holur eftir Pepe Gancedo

Pepe Gancedo hannaði völlinn sem opnaði árið 2002. Breiðar brautir og flatir af ólíkri lögun gera hann fjölbreyttan. Ferhyrnda flötin á sjöundu holu og djúpa, hringlaga flötin á fjórtándu eru meðal sérkenna vallarins.

La Finca hefur hýst Evrópumeistaramót unglinga og ýmis önnur mót. Gott æfingasvæði er við völlinn. Í ferðapakkanum fylgja 18 holur á dag, utan ferðadaga. Golfbíll er ekki innifalinn. Aukaumferðir þarf að kanna og greiða sérstaklega eftir samkomulagi.

Hótel La Finca 5 stjörnu

La Finca er við 18 holu golfvöll, um 40 mínútna akstur frá Alicante-flugvelli. Hótelið hefur 120 herbergi, veitingastaði, heilsulind, tyrkneskt bað og heita potta.

Herbergin eru um 33 m² með svölum, loftstýringu, þráðlausu neti, sjónvarpi, öryggishólfi, sófa og skrifborðsaðstöðu. Morgunverður fylgir ferðinni. Hádegisverð má kaupa í klúbbhúsinu.

Heilsulind, sundlaug og veitingar

Útisundlaugin í garðinum við hótelið er með sólbekkjum og sólskýlum. Heilsulindin býður innilaug, tyrkneskt bað og heita potta, ásamt nuddi og meðferðum gegn gjaldi, og líkamsræktarsalur er á hótelinu.

Morgunverður er innifalinn. Á hótelinu og í klúbbhúsinu eru veitingastaðir og barir, þar á meðal Frijolino með ítölskum og mexíkóskum réttum, og veröndin við klúbbhúsið snýr að vellinum. Hádegisverð má kaupa í klúbbhúsinu.

Golf á Alicante-svæðinu

Ef þú vilt prófa fleiri velli getur ferðateymi Golfskálans aðstoðað við að kanna rástíma. Golf á öðrum völlum er greitt sérstaklega. Allur akstur er á eigin vegum.

La Finca og nágrenni

Algorfa · Alicante, Spánn

Hótelið, golfið og staðirnir í kring.

Hótel

La Finca Resort

Hótelið ykkar við völlinn, með heilsulind, sundlaug og veitingastöðum.

Avenida Antonio Pedrera Soler, Algorfa

Við hjálpum þér að velja

Viltu vita meira um ferðina?

Hafðu samband við ferðaráðgjafa okkar og fáðu aðstoð við dagsetningar, gistingu og golf.