Alicante, SpánnVillaitana jól og áramót
Jól og áramót4/5 stjörnu hótel
- Verð á mann frá
- 395.900 kr.
- Brottfarir
- 2 brottfarirNæst 17. des.
Almería, Spánn
18 holu par 70 völlur í fjalladal, 5 stjörnu hótel og golfbíll fyrir 18 holur á dag í Almería.

Gádor-fjöllin ramma inn völlinn á tvo vegu. Fyrri níu holurnar eru fremur flatar og langar, en á seinni níu tekur við meira landslag. Holur 12, 13 og 14 eru kallaðar Amen Corner.
Æfingasvæði nær til allra þátta golfleiksins. Í klúbbhúsinu við hótelið eru golfverslun og geymsla fyrir golfsett. Golfbíll fylgir fyrir 18 holur á dag. Ótakmarkað golf er í boði en ekki má forbóka seinni hring.
La Envia stendur í hlíðum Sierra de Gádor, innan við 20 mínútna akstur frá miðbæ Almería. Í haustferðum er flogið til Almería, um 30 mínútna akstur frá hótelinu, en í vorferðum er flogið til Málaga og aksturinn þaðan tekur um tvær klukkustundir. Herbergin sem Golfskálinn býður eru með sólríkum svölum að sundlaug og golfvelli.
Á hótelinu er rúmgóð setuaðstaða, útisundlaug og stór heilsulind. Aðgangur að spa í eitt skipti fylgir ferðinni. Morgun- og kvöldverður er innifalinn.
Heilsulindin er um 5.000 fermetrar, með nuddlaug, sánu, heitum potti og tyrknesku gufubaði, og þar er líka boðið upp á nudd og meðferðir. Úti bíður sundlaugin í pálmagarðinum. Sundhetta er skylda í heilsulindinni.
Morgunverðurinn er hlaðborð á St. Andrews og kvöldverðurinn er borinn fram á El Mirador, þar sem áherslan er á Miðjarðarhafsmat og rétti úr héraðinu. Á veröndinni Murfiel er hægt að fá sér kaffi eða drykk utandyra og Casa Mendoza, tapas- og bjórstaður, snýr að golfvellinum.
Fararstjóri getur aðstoðað við að finna rástíma á öðrum völlum og upplýst um akstur og kostnað.
Myndband