Hafðu samband
Við aðstoðum þig með golfbúnað, pantanir, sveiflugreiningu og golfferðir.
Golfferðir
Tölum um næstu golfferð
Spurðu um áfangastað, dagsetningar eða sérsniðna ferð. Ferðateymið aðstoðar við verð og framboð.Segðu okkur frá ferðinni
Þetta form opnar drög í tölvupóstsforritinu þínu. Ekkert er sent af vefsíðunni; þú ferð yfir drögin og sendir póstinn þar.
Ekkert tölvupóstsforrit? Opna fyrirspurnaform á golfskalinn.is.
Þú getur líka skrifað á travel@golfskalinn.is eða hringt í 578 0120.
Gott að vita
Algengar spurningar um golfferðir
Er hægt að kaupa „landpakka“ hjá ykkur á Spáni ef ég sé sjálf(ur) um flugið?
Já í mörgum tilfellum getum við bókað landpakka með hóteli og golfi. Þetta á sérstaklega við um Villaitana þegar flogið er á Alicante.
Fær maki sem spilar ekki golf afslátt frá verði ferðar?
Já, hann fær afslátt. Við bókum þá ekki golf fyrir viðkomandi og afslátturinn er oftast milli 4-5.000 kr. á dag (fer eftir golfvelli/hóteli).
Fæ ég flugfarseðil í hendur fyrir brottför?
Þú færð sendan „voucher“ frá okkur sem staðfestir bókun ferðar. Gott er að hafa þetta plagg með í ferðagögnum en á flugvelli og hóteli er eingöngu beðið um vegabréf.
Hvað er innifalið í verði ferða?
Á vefnum okkar eru upplýsingar um hvað er innifalið í hverri ferð fyrir sig. Í flestum ferðum er eftirfarandi innifalið: Flug með ferðatösku og golfsetti, flugvallarskattar, rúta til og frá flugvelli á Spáni, golf, hótel með morgunmat og kvöldmat, (kvöldmatur oft valkvæður), og íslensk fararstjórn.
Er golfskólinn bara fyrir byrjendur?
Nei. Golfskólarnir eru fyrir byrjendur og lengra komna og kennslu er skipt eftir getu og markmiðum innan viðkomandi skóla. Skólaferðir eru bæði á La Envía og Almerimar. Skoðaðu skólastig og fyrirkomulag á síðu þeirrar skólaferðar sem þú velur; ferðateymið staðfestir rétt skólastig og skólapláss.
Eru íslenskir golfkennarar í golfskólunum ykkar?
Já, allir okkar kennarar eru íslenskir PGA-kennarar. Auk þeirra eru oft kennaranemar og afrekskylfingar til aðstoðar í skólanum.
Bjóðið þið upp á að sérsníða golfferðir fyrir einstaklinga og hópa?
Já við gerum mikið af því að setja upp golfferðir eftir óskum hvers og eins. Ef uppsettar og auglýstar ferðir á vegum Golfskálans henta þér ekki þá gerum við okkar besta til að setja upp ferð að þínu óskum.
Get ég notað gjafabréf í Golfskálanum sem innborgun á ferð?
Já þú getur notað gjafabréf sem eru útgefin af Golfskálanum.
Get ég notað vildarpunkta Icelandair í ferðir með Golfskálanum?
Nei, því miður er það ekki hægt þar sem mestallt flug okkar með Icelandair er leiguflug.