Ping · Golfvörur
Ping S259 Midnight Fleygjárnasett

Veldu valkosti hér fyrir neðan
Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans
Þrjú Ping s259 fleygjárn í dökkri Midnight áferð, saman í einu setti. Veldu 50°, 54° og 58° eða 52°, 56° og 60°, eftir því hvaða loft passa við járnin þín…
Sjá nánari vörulýsinguNánari upplýsingar
- Loft
- 52°+56°+60°, 50°+54°+58°
Vörulýsing

Þrjú Ping s259 fleygjárn í dökkri Midnight áferð, saman í einu setti. Veldu 50°, 54° og 58° eða 52°, 56° og 60°, eftir því hvaða loft passa við járnin þín. Þú færð jafnt bil á milli kylfa frá fullu innáhöggi niður í stutt högg við flötina, með spuna, tilfinningu og útliti sem atvinnukylfingar kjósa.
Helstu kostir
- Þrjú fleygjárn, jafnt bil. 50°+54°+58° eða 52°+56°+60° ná yfir öll stuttu höggin.
- Midnight áferð. Dökk Hydropearl 2.0 áferð á haus úr 8620 kolefnisstáli.
- Meiri spuni. Fræstar rákir og hrjúf áferð á höggfleti gefa stjórn á flugi og spuna.
- Skaft og grip fyrir fleygjárn. Z-Z115 stálskaft og Dyla-Grip með merkingum.
Helstu upplýsingar
| Efni í haus | 8620 kolefnisstál |
|---|---|
| Áferð | Midnight (Hydropearl 2.0) |
| Grind | S |
| Sveifluþyngd | D2 (50° og 52°), D3 (54° og 56°) og D4 (58° og 60°) |
| Offset | 0,02 tommur |
| Skaft | PING Z-Z115 |
| Grip | PING Dyla-Grip |
Spuni og stjórn af öllum vegalengdum

Rákirnar eru fræstar af nákvæmni og höggflöturinn er blásinn til að auka núning milli kylfu og bolta. Saman gefur þetta stöðugt flug og spuna sem stoppar boltann á flötinni, hvort sem höggið er fullt eða stutt vipp.
Skaft og grip sem vinna saman

Z-Z115 stálskaftið er létt með lágan jafnvægispunkt, sem gefur betri tilfinningu fyrir hausnum. Dyla-Grip er um 2 cm lengra en hefðbundið grip, mjókkar minna og er með merkingum sem hjálpa þér að grípa neðar, halla skaftinu og opna höggflötinn.
Sjáðu s259 í höndum atvinnukylfinga Ping
Leikmenn í Team PING prófa s259 fleygjárnin í fyrsta sinn. Myndbandið er á ensku.
Kylfurnar í settunum
| Loft | Sett | Lengd | Lega |
|---|---|---|---|
| 50° | 50°+54°+58° | 35 1/2" | 64,0° |
| 52° | 52°+56°+60° | 35 1/2" | 64,0° |
| 54° | 50°+54°+58° | 35 1/4" | 64,3° |
| 56° | 52°+56°+60° | 35 1/4" | 64,3° |
| 58° | 50°+54°+58° | 35" | 64,5° |
| 60° | 52°+56°+60° | 35" | 64,5° |
Þetta eru staðalmál frá Ping og geta vikið lítillega í framleiðslu. Lega miðast við svartan litakóða Ping í staðallengd.
Skaft
| Skaft | Stífleiki | Þyngd | Boltaflug |
|---|---|---|---|
| PING Z-Z115 (stál) | Wedge | 111 g | Lágt til miðlungs |
Stök s259 fleygjárn
Viltu önnur loft eða krómáferð? Stök fleygjárn fást hér.




