Titleist · Golfvörur
Titleist Vokey SM10

Frá 30.900 kr.
Veldu valkosti hér fyrir neðan
Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans
Íslenska
Hönnun SM10 raufanna má skipta í tvo hluta, lágar gráður (46°-54°) eru hannaðar þannig að þær eru mjórri og eru skornar aðeins dýpri á meðan hærri gráðurnar (56°-62°) eru örlítið víðari og ekki eins djúpar…
Sjá nánari vörulýsinguNánari upplýsingar
- Club Handedness
- Right
- Grind
- S, D, F, K, M, T
- Karla/kvenna
- Karla, Kvenna
- Loft
- 52°, 56°, 60°, 50°, 54°, 58°, 46°, 48°
- Bounce
- 10°, 12°, 14°, 8°, 4°
30 daga skilafresturSótt í Bíldshöfða 16Örugg afgreiðsla
Vörulýsing
ÍslenskaHönnun SM10 raufanna má skipta í tvo hluta, lágar gráður (46°-54°) eru hannaðar þannig að þær eru mjórri og eru skornar aðeins dýpri á meðan hærri gráðurnar (56°-62°) eru örlítið víðari og ekki eins djúpar.
Meira tungsten er sett í tánna á SM10 til að minnka líkurnar á að kylfan lokist í gegnum höggið og minnkar þar með líkurnar á að kylfingur dragi höggið.
Ný kylfa er kynnt til leiks í SM10, 54.08M. Ástæðan fyrir því er að 54.08M hefur verið mjög vinsæl hjá atvinnumönnum og var því ákveðið að bæta henni inní línuna.
Gott er að hafa í huga að æskilegt er að hafa ekki meira en 4°-6° bil á milli fleygjárna.
Eitt af því sem skiptir hvað mestu máli í vali á fleygjárnum eru svokölluð GRIND eða botninn á hausnum. Á SM10 eru 6 mismunandi GRIND.
F GRIND
- Sérstaklega hannað fyrir þau fleygjárn sem eru oftast notuð í full högg. Einnig mjög góð fyrir þá sem taka miklar torfur.
- Hannað fyrir þá kylfinga sem vilja eiga möguleika á að opna og loka kylfuhausnum í höggunum í kringum flatirnar. Kjörin Grind fyrir þá sem koma flatt á boltann og sópa honum upp í loftið. (kylfingar sem taka ekki mikla torfu)
- Kjörin fyrir kylfinga sem leika á miðlungs eða mjög hörðu undirlagi. Einnig er það hugsað fyrir þá sem vilja hafa hendurnar fyrir framan eða aftan boltann þegar hann er hittur.
- Sérstaklega hannað fyrir þá sem koma mjög bratt á boltann (taka djúpar torfur)
- Fyrir þá kylfinga sem eru að leika á mjög hörðu undirlagi og hafa mikla og góða stjórn á kylfuhausnum þegar boltinn er hittur. T GRIND er með minnsta bounce-inu og minnstu fyrirgefningunni.
- Þykkasti botninn og mesta bounce-ið sem gerir hana mjög fyrirgefandi á mjúku undirlagi og af mörgum talin vera besta fleygjárnið úr mjúkum sandi.



