Ping · Golfvörur

Ping S159 Fleygjárn

29.900 kr.

Veldu valkosti hér fyrir neðan

Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans

Veldu vöru
Bounce
Grind

Magn
1

Ping s159 eru fleygjárn í anda atvinnumanna, þróuð með bestu kylfingum Ping en hönnuð fyrir kylfinga á öllum getustigum. Hausinn er úr mjúku 8620 kolefnisstáli með fræstum rákum sem gefa mikinn spuna…

Sjá nánari vörulýsingu

Nánari upplýsingar

Bounce
10°, 12°, 14°
Loft
52°, 56°, 60°, 50°, 54°, 58°, 46°, 48°
Grind
W, H, S
30 daga skilafresturSótt í Bíldshöfða 16Örugg afgreiðsla

Vörulýsing

Ping s159 fleygjárn í króm og Midnight áferð

Ping s159 eru fleygjárn í anda atvinnumanna, þróuð með bestu kylfingum Ping en hönnuð fyrir kylfinga á öllum getustigum. Hausinn er úr mjúku 8620 kolefnisstáli með fræstum rákum sem gefa mikinn spuna. Við eigum þau í loftum frá 48° upp í 60°, með S, H og W grind.

Helstu kostir

  • Meiri spuni. Fræstar rákir, sniðnar að hverju lofti.
  • Mjúk tilfinning. Haus úr 8620 kolefnisstáli.
  • Betri full högg. Beinni frambrún skilar betri árangri í fullum höggum.
  • Grind sem hentar þér. S fyrir flestar aðstæður, H fyrir mjúkt undirlag, W fyrir mesta fyrirgefningu.

Helstu upplýsingar

Efni í haus8620 kolefnisstál
Offset0,02 tommur
Sveifluþyngd miðast viðZ-Z115 stálskaft. Með grafítskafti er hún 2 til 3 punktum léttari.
SkaftPING Z-Z115
Önnur sköft í sérpöntunTrue Temper Dynamic Gold Mid 100, True Temper Dynamic Gold Mid 115, PING AWT 2.0, True Temper Dynamic Gold, True Temper Dynamic Gold 120, Nippon N.S. Pro Modus 3 Tour 105, KBS Tour, PING ALTA CB Black, PING ALTA Quick, UST Recoil Dart
GripGolf Pride Tour Velvet 360, Lamkin Crossline og Lamkin UTx Lite
HöndRétthent og örvhent

Fleiri rákir, meiri spuni

Rákir Ping s159 fleygjárna bornar saman

Rákirnar eru fræstar í mismunandi stærð eftir lofti. Í 46° til 52° er rúmmál rákanna sem mest, til að gefa stjórn í fullum höggum. Í 54° til 62° eru MicroMax rákir sem liggja þéttar og eru fleiri, til að gefa meiri spuna í stuttu höggunum. Hrjúf, blásin áferð á höggfletinum eykur núninginn enn frekar.

S grind

Sóli Ping s159 fleygjárns með S grind

Hentar flestum kylfingum og flestum aðstæðum. Nægt bounce í miðjum sólanum fyrir full högg, og slípun við hæl og afturbrún gefur fjölhæfni í kringum flatirnar.

H grind

Sóli Ping s159 fleygjárns með H grind

Hálfmánalaga slípun fyrir kylfinga sem koma bratt niður á boltann og vilja geta leikið sér með höggflötinn. Bjargar höggum og virkar best á mjúku undirlagi.

Meira um fleygjárnin

  • W grind

    Breiðasti sólinn og mesta fyrirgefningin í gegnum grasið. Góður kostur ef þú kemur bratt niður á boltann og vilt meiri hjálp í stuttu höggunum.

  • Grip: Golf Pride Tour Velvet 360

    Gripið er úr gúmmíblöndu með mynstri sem rennur ekki í hendi. Plúslaga áferðin dregur raka frá yfirborðinu svo takið helst jafnt.

Fleygjárnin sem eru í boði

KylfaLoftBounceLengdLegaSveifluþyngd
48/S-1248,0°12,0°35 1/2"64,0°D2
50/S-1250,0°12,0°35 1/2"64,0°D2
54/H-1054,0°10,0°35 1/4"64,3°D3
56/S-1256,0°12,0°35 1/4"64,3°D3
58/S-1058,0°10,0°35"64,5°D4
58/W-1458,0°14,0°35"64,5°D4
60/S-1060,0°10,0°35"64,5°D4

Þetta eru staðalmál frá Ping og geta vikið lítillega í framleiðslu. Lega miðast við svartan litakóða Ping í staðallengd.

Skaft

SkaftStífleikiÞyngdBoltaflug
PING Z-Z115 (stál)Wedge111 gLágt til miðlungs

Í boði í sérpöntun hjá okkur

LegaEftir litakóða Ping: Svartur staðall. Upprétt: Blár 1°, Grænn 2°, Hvítur 3°, Silfur 4°, Vínrauður 5°. Flatt: Rauður 1°, Appelsínugulur 2°, Brúnn 3°, Gylltur 4°.
GripstærðEftir litakóða Ping: Rauður -1/32 tommu, Aqua -1/64 tommu, Hvítur staðall, Gylltur +1/32 tommu, Appelsínugulur +1/16 tommu

Mæling og sérpöntun

Önnur loft og grind frá Ping, önnur sköft, lengd, lega og grip fást í sérpöntun, bæði fyrir rétthentar og örvhentar kylfur. Hafðu samband við okkur eða bókaðu mælingu í Golfskálanum og við finnum loft og grind sem passa við hinar kylfurnar þínar.

Nýrri kynslóð

s259 tekur við af s159 með fleiri loftum og nýju gripi.

Vörunúmer: 8284