Odyssey · Golfvörur
Odyssey Ai-One Double Wide Cruiser

Veldu valkosti hér fyrir neðan
Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans
Odyssey Ai-ONE Double Wide Cruiser er breiðari blade pútter í lengri og þyngri uppsetningu. Hausinn er 380 grömm, pútterinn er 38 tommur og gripið 17 tommur, ætlað til að halda neðar á því. Cruiser uppsetningin er mjög stöðug og hentar mörgum kylfingum…
Sjá nánari vörulýsinguNánari upplýsingar
- Club Length
- 38 in
Vörulýsing

Odyssey Ai-ONE Double Wide Cruiser er breiðari blade pútter í lengri og þyngri uppsetningu. Hausinn er 380 grömm, pútterinn er 38 tommur og gripið 17 tommur, ætlað til að halda neðar á því. Cruiser uppsetningin er mjög stöðug og hentar mörgum kylfingum. Ai-ONE innleggið gefur jafnari boltahraða, líka þegar þú hittir ekki miðjuna.
Helstu kostir
- Stöðug Cruiser uppsetning. 38 tommur, 380 gramma haus og 17 tommu grip.
- Jafnari boltahraði. Ai-ONE innleggið skilar púttunum nær holu.
- White Hot tilfinning. Úretan lag með rákum í höggfletinum.
- Stillanleg þyngd. Skiptanleg lóð að framan, 5 til 20 grömm.
Helstu upplýsingar
| Gerð | Blade pútter með breiðari búk (Double Wide) |
|---|---|
| Uppsetning | Cruiser: lengri og þyngri pútter |
| Háls | Crank háls (CH) |
| Táarhang | 37° |
| Innlegg | Ai-ONE: álbak með White Hot úretan lagi með rákum |
| Áferð | Dökkblá PVD áferð |
| Þyngd hauss | 380 g. Lóðin að framan má skipta um: 5, 10, 15 eða 20 g. |
| Lengd | 38 tommur |
| Loft | 3° |
| Lega | 70° |
| Skaft | SL 140 Stroke Lab stálskaft |
| Grip | 17 tommu grip, ætlað til að halda neðar á því |
| Hönd | Aðeins rétthent |
Táarhang segir til um hve mikið táin á pútternum vísar niður þegar skaftið liggur í jafnvægi. Því meira táarhang, því betur hentar pútterinn stroku með boga.
Ai-ONE innleggið

Innleggið er hannað með Ai. Álbakið er mótað með útlínum sem jafna boltahraðann yfir allan höggflötinn, og í það er steypt White Hot úretan lag með rákum sem gefur sígildu White Hot tilfinninguna sem atvinnukylfingar og áhugakylfingar þekkja.
Ai gluggi og dökkblá áferð

Aftan á hausnum er gluggi úr Panlite, fjölliðu sem er notuð í bílaiðnaði, og í gegnum hann sést mótað bakið á innlegginu. Dökkblá PVD áferð gefur pútternum vandað og sérstakt útlit.
SL 140 Stroke Lab stálskaft

Nýja SL 140 Stroke Lab stálskaftið er þyngra og hannað til að passa við þyngri hausa, lengri grip og meiri heildarlengd Cruiser pútteranna. Cruiser línan fæst í þremur uppsetningum fyrir þrjá púttstíla: Cruiser, Arm Lock og Broomstick.
Meira um pútterinn
Skiptanleg lóð að framan
Lóðin framan á sólanum má skipta um. Þau fást 5, 10, 15 og 20 gramma, svo þú getur stillt þyngd haussins nákvæmlega eftir þínum smekk.
Sjáðu Cruiser pútterana hjá Odyssey
Odyssey kynnir Ai-ONE Cruiser pútterana. Myndbandið er á ensku.
Viltu aðstoð við valið?
Ekki viss hvaða pútter passar þinni stroku? Hafðu samband við okkur eða komdu við í Golfskálanum og við hjálpum þér að velja.
Fleiri pútterar frá Odyssey
Ai-DUAL 2-Ball og breiðari blade úr DFX línunni.





