Odyssey · Golfvörur
Odyssey Chipper

Veldu valkosti hér fyrir neðan
Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans
Odyssey Chipper er fyrir kylfinga sem eiga erfitt með stuttu höggin í kringum flatirnar. Odyssey segir þetta besta chipperinn sinn til þessa og hann getur verið svarið við betri vippum og lægra skori. Helstu kostir Lögun í anda hybrid…
Sjá nánari vörulýsinguNánari upplýsingar
- Lengd
- 34,5 tommur, 35,5 tommur
Vörulýsing

Odyssey Chipper er fyrir kylfinga sem eiga erfitt með stuttu höggin í kringum flatirnar. Odyssey segir þetta besta chipperinn sinn til þessa og hann getur verið svarið við betri vippum og lægra skori.
Helstu kostir
- Lögun í anda hybrid. Vekur meira traust yfir boltanum.
- Hreinni snerting. Step Sole sóli snertir jörðina minna.
- Mjúk tilfinning. Innlegg úr fjölliðu með endingargóðum rákum.
- Lengra grip. Haltu ofar eða neðar eftir því hvaða högg þú slærð.
Helstu upplýsingar
| Gerð | Chipper með lögun í anda hybrid |
|---|---|
| Loft | 37° |
| Lega | 66° |
| Lengd | 34,5 og 35,5 tommur hjá okkur. Staðallengd Odyssey er 35,5 tommur. |
| Sóli | Step Sole |
| Höggflötur | Innlegg úr fjölliðu með rákum |
| Skaft | Odyssey Stepped 2.0, krómað stálskaft |
| Grip | Lengra Odyssey grip |
| Hönd | Rétthent og örvhent |
Þetta eru staðalmál frá Odyssey.
Ný lögun og Step Sole sóli

Nýja lögunin minnir meira á hybrid og vekur meira traust. Sólinn er stallaður (Step Sole), að fyrirmynd nýlegra UW kylfa og brautartrjáa. Minni hluti sólans snertir jörðina, svo kylfan fer betur í gegnum grasið og snertingin við boltann verður hreinni.
Lengra grip

Með lengra gripi getur þú haldið á kylfunni á mismunandi stöðum, eftir því hvaða högg þú ætlar að slá og úr hvaða legu.
Meira um kylfuna
Innlegg í höggfleti
Innlegg úr fjölliðu rammar boltann inn þegar þú stendur yfir honum og gefur mjúka tilfinningu, með endingargóðum rákum.
Sjáðu kylfuna hjá Odyssey
James Oh prófar nýja Odyssey chipperinn. Myndbandið er á ensku.
Viltu aðstoð við valið?
Ekki viss hvort chipper hentar þínu stutta spili eða hvaða lengd passar? Hafðu samband við okkur eða komdu við í Golfskálanum og við hjálpum þér að velja.
Fleiri kylfur í stutta spilið
Fyrirgefandi CB 12 fleygjárn frá Callaway.





