Cobra · Golfvörur

Cobra King járnasett 5-PW

Frá 137.400 kr.

Veldu valkosti hér fyrir neðan

Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans

Veldu vöru
Shaft Material
Shaft Flex
Club Handedness

Magn
1
Afgreiðslutími

Ef þessi vara er ekki til á lager munum við hafa samband varðandi áætlaðan afgreiðslutíma.

Cobra KING eru járn sem auðvelt er að spila með, hönnuð til að hjálpa þér að hitta fleiri flatir og lækka skorið. Cobra nýtir þar háþróaða verkfræði, fínstillta þyngdardreifingu og 3D prentun…

Sjá nánari vörulýsingu

Nánari upplýsingar

Shaft Material
Steel, Graphite
Shaft Flex
Regular, Stiff, Soft Regular
Club Handedness
Left, Right
30 daga skilafresturSótt í Bíldshöfða 16Örugg afgreiðsla

Vörulýsing

Tvö Cobra KING járn, annað sýnir bakið og hitt höggflötinn

Cobra KING eru járn sem auðvelt er að spila með, hönnuð til að hjálpa þér að hitta fleiri flatir og lækka skorið. Cobra nýtir þar háþróaða verkfræði, fínstillta þyngdardreifingu og 3D prentun. Járnin eru með hefðbundna lögun og sterk loft og henta kylfingum sem slá bratt niður á boltann og vilja sem mesta lengd. Fæst sem 5-PW, með stálskafti eða grafítskafti, fyrir rétthenta og örvhenta.

Helstu kostir

  • Lægri þyngdarpunktur. 3D prentað merki í hausnum færir þyngdina neðar.
  • 80 g catapult lóð. Fljótandi lóð sem eykur sveigju höggflatarins, boltahraða og flug.
  • SKID SOLE sóli. Rennur vel í gegnum grasið, hvort sem þú slærð bratt eða flatt.
  • Fyrirgefning yfir allan höggflötinn. 360 SPEEDSHELL með H.O.T Face skilar lengri og beinni feilhöggum.
  • Hefðbundin lögun og sterk loft. Fyrir kylfinga sem slá bratt niður á boltann og vilja lengd.

Helstu upplýsingar

Höggflötur360 SPEEDSHELL með H.O.T Face tækni
LóðFljótandi 80 g catapult lóð, hjúpað mjúku fjölliðuefni (polymer)
SóliSKID SOLE
SveifluþyngdD2.5 með stálskafti. Með grafítskafti D3 í Stiff, D2.5 í Regular og D1.5 í Lite.
Staðalsett CobraStál: 4-PW eða 5-GW. Grafít: 5-PW og GW.
SköftKBS TOUR LITE (stál), KBS PGI 85, 75 og 65 (grafít)
GripSuperStroke Crossline 360 Black, staðalstærð

Catapult lóð fyrir sem mestan kraft

Sundurliðuð mynd af Cobra KING járni: höggflötur, búkur, merki í baki og catapult lóðið litað blátt

Nýtt, fljótandi 80 g catapult lóð eykur sveigju höggflatarins, boltahraða og flug yfir allan höggflötinn. Lóðið er hjúpað mjúku fjölliðuefni (polymer) svo hvert járn hljómi sem best og tilfinningin verði sem mýkst.

Hreinni og jafnari snerting

Sólar á 5-járni, 7-járni og PW úr Cobra KING línunni, fremri hluti sólans litaður blár

Nýr SKID SOLE sóli er með meira bounce við fremri brúnina og flatari miðhluta með minni sveigju. Kylfan rennur því betur í gegnum grasið, hvort sem þú slærð bratt niður á boltann eða sópar honum af grasinu.

Hraði í hverju höggi

Stakur höggflötur úr Cobra KING járni sem nær niður undir sólann

360 SPEEDSHELL með H.O.T Face tækni skilar lengri og beinni höggum þótt þú hittir ekki miðjan höggflötinn. Höggin verða jafnari yfir allan flötinn, svo þú hittir fleiri flatir og getur sótt að pinnanum af öryggi.

Meira um járnin

  • 3D prentun fyrir lægri þyngdarpunkt

    Cobra notaði 3D prentun og Ai verkfæri til að hanna járn með meiri stöðugleika, enn lægri þyngdarpunkt og mýkri tilfinningu. 3D prentað merki (medallion) í hausnum lækkar þyngdarpunktinn og bætir þyngdardreifinguna, svo höggin inn á flöt verða lengri, beinni og jafnari. Útkoman er fleiri hittar flatir á hring, fleiri fuglafæri og lægra skor.

Sjáðu KING járnin

Cobra kynnir KING járnin í stuttu myndbandi. Myndbandið er á ensku.

Tæknilýsing

KylfaLoftLegaOffset (mm)LengdÍ boði
419°62°5,439 1/4"Rétthent og örvhent
521,5°62,5°4,638 1/2"Rétthent og örvhent
624,5°63°3,937 3/4"Rétthent og örvhent
727,5°63,5°3,237 1/4"Rétthent og örvhent
832°64°2,736 3/4"Rétthent og örvhent
937°64,5°2,136 1/4"Rétthent og örvhent
PW42,5°65°1,636"Rétthent og örvhent
GW48°65°1,135 3/4"Rétthent og örvhent
SW54°65°1,135 1/2"Rétthent og örvhent

Þetta eru staðalmál frá Cobra. Settið hjá okkur er 5-PW, önnur járn úr töflunni fást í sérpöntun.

Sköft

SkaftStífleikiÞyngdBoltaflugSpuni
KBS TOUR LITE (stál)Stiff105 gMiðlungs til háttMiðlungs til hátt
KBS TOUR LITE (stál)Regular105 gMiðlungs til háttMiðlungs til hátt
KBS PGI 85 (grafít)Stiff85 gMiðlungs til háttMiðlungs
KBS PGI 75 (grafít)Regular75 gMiðlungs til háttMiðlungs
KBS PGI 65 (grafít)Lite (A)65 gMiðlungs til háttMiðlungs

KBS TOUR LITE er létt stálskaft sem gefur hærra flug, meiri spuna og þétta dreifingu. KBS PGI grafítsköftin gefa sömu dreifingu og stjórn í léttara skafti sem auðveldara er að sveifla. Önnur sköft fást í sérpöntun.

Í boði í sérpöntun hjá okkur

LegaStaðall, allt að 4° upprétt eða allt að 2° flatt, í 1° þrepum
SkaftendiSköft með .370 parallel enda
GripSuperStroke Crossline 360 Black, Golf Pride Tour Velvet 360, Golf Pride Tour Velvet Plus4, SuperStroke REVL Player og SuperStroke REVL Comfort
Grip gegn aukagjaldiGolf Pride MCC Black/White og MCC Plus 4 Grey: 2.000 kr. á kylfu. Golf Pride MCC Align Max og MCC Plus 4 Align Max: 2.500 kr. á kylfu.
GripstærðSuperStroke Crossline 360 Black og REVL Comfort: Undersize, Standard, Midsize og Jumbo/Oversize. REVL Player: Undersize, Standard og Midsize. Tour Velvet 360 og Tour Velvet Plus4: Standard og Midsize.

Mæling og sérpöntun

Ef járnin eru ekki til á lager hjá okkur sérpöntum við frá Cobra, bæði fyrir rétthentar og örvhentar kylfur. Í sérpöntun er hægt að laga lengd, legu, skaft og grip að þér og velja hvaða járn eru í settinu. Hafðu samband við okkur eða bókaðu mælingu í Golfskálanum og við finnum uppsetninguna sem hentar þér.

Fleiri járn frá Cobra

Önnur járn sem við seljum frá Cobra.