Cobra · Golfvörur
Cobra OPTM X Brautartré

Veldu valkosti hér fyrir neðan
Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans
Ef þessi vara er ekki til á lager munum við hafa samband varðandi áætlaðan afgreiðslutíma.
Cobra OPTM X brautartréð sameinar hraða og fyrirgefningu í sígildri lögun sem vekur traust, bæði af teig og af braut. Það gefur beinna flug, auðveldar þér að koma boltanum á loft og er áreiðanlegt högg eftir högg. Fæst sem 3-tré, 3 HF, 5-tré, 7-tré og 9-tré…
Sjá nánari vörulýsinguNánari upplýsingar
- Club Handedness
- Left, Right
- Shaft Flex
- Regular, Stiff, X-Stiff, Soft Regular
- Loft
- 3, 5, 7, 9, 3 HF
Vörulýsing

Cobra OPTM X brautartréð sameinar hraða og fyrirgefningu í sígildri lögun sem vekur traust, bæði af teig og af braut. Það gefur beinna flug, auðveldar þér að koma boltanum á loft og er áreiðanlegt högg eftir högg. Fæst sem 3-tré, 3 HF, 5-tré, 7-tré og 9-tré.
Helstu kostir
- Hraði og fyrirgefning. Sígild lögun sem vekur traust af teig og braut.
- Stöðugur haus. Lögun og þyngd lágmarka POI og draga úr snúningi í höggum utan miðju.
- Stillanlegt flug. 11 g lóð að aftan fyrir hærra flug eða í tá fyrir lægra flug og minni spuna.
- 33 stillingar á lofti og legu. FutureFit33 stillir um ±2° í hvaða átt sem er.
Helstu upplýsingar
| Höggflötur | Smíðað innlegg með H.O.T. Face tækni |
|---|---|
| Lóð | Tvö færanleg, 11 g og 3 g. Þyngra lóðið fer að aftan (hærra flug) eða í tá (lægra flug, minni spuni). |
| Stilling á hálsi | FutureFit33: 33 stillingar á lofti og legu, ±2° í hvaða átt sem er |
| Staðalsköft, 3-tré | MCA Kai'li Dark Waves Blue 60 (X-Stiff, Stiff, Regular) |
| Staðalsköft, 3 HF, 5-tré, 7-tré og 9-tré | MCA Kai'li Dark Waves Blue 60 (Stiff, Regular) |
| Skaftendi (tip) | 0,335 tommur |
| Grip | SuperStroke Crossline 360 Black, staðalstærð |
Meira um brautartréð
Mótað fyrir sem mestan stöðugleika
Í OPTM brautartrjánum vinna lögun haussins og staðsetning þyngdar saman að því að lágmarka POI (Products of Inertia) og draga verulega úr snúningi haussins í höggum utan miðju. Þyngdin liggur jafnar í kringum þyngdarpunktinn og verkfræðingar Cobra notuðu ofurtölvur til að finna þá lögun og þyngdardreifingu sem gefur bestu blöndu af fyrirgefningu, dreifingu og stjórn. Útkoman er stöðugri og nákvæmari haus sem hjálpar þér að hitta fleiri brautir.
Stilltu boltaflugið
OPTM X brautartréð er með tvö færanleg lóð, 11 g og 3 g. Með 11 g lóðið að aftan færðu hærra flug og meiri fyrirgefningu. Í tánni gefur það lægra og kraftmeira flug með minni spuna.
Heldur hraðanum í höggum utan miðju
Smíðað innlegg í höggfletinum með H.O.T. Face tækni lætur höggflötinn sveigjast betur. Það gefur traustari lengd og boltahraða í hverju höggi.
Fínstilltu loft og legu með FutureFit33
FutureFit33 býður 33 stillingar á lofti og legu, fyrir betra boltaflug, þéttari dreifingu og meiri lengd. Stilla má um ±2° í hvaða átt sem er og SMARTPAD heldur höggfletinum beinum í hverri stillingu.
Sjáðu OPTM línuna
Cobra kynnir OPTM driverana og brautartrén í einnar mínútu myndbandi. Myndbandið er á ensku.
Kylfurnar sem eru í boði
| Kylfa | Loft | Loft með FutureFit33 | Lega | Lega með FutureFit33 | Stærð hauss | Lengd | Sveifluþyngd | Í boði |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 3-tré | 15° | 13° til 17° | 58° | 56° til 60° | 180 cc | 43 1/4" | D2.5 | Rétthent og örvhent |
| 3 HF | 16,5° | 14,5° til 18,5° | 58° | 56° til 60° | 182 cc | 43 1/4" | D2 | Rétthent og örvhent |
| 5-tré | 18° | 16° til 20° | 58,8° | 56,8° til 60,8° | 169 cc | 42 1/2" | D3 | Rétthent, örvhent í sérpöntun |
| 7-tré | 21° | 19° til 23° | 58,8° | 56,8° til 60,8° | 163 cc | 42" | D4 | Rétthent, örvhent í sérpöntun |
| 9-tré | 24° | 22° til 26° | 58,8° | 56,8° til 60,8° | 159 cc | 41 1/2" | D4 | Rétthent |
Þetta eru staðalmál frá Cobra. Loft og lega stillast um ±2° með FutureFit33.
Skaft
| Skaft | Stífleiki | Þyngd | Boltaflug | Spuni |
|---|---|---|---|---|
| MCA Kai'li Dark Waves Blue 60 | X-Stiff | 68,5 g | Miðlungs | Miðlungs |
| MCA Kai'li Dark Waves Blue 60 | Stiff | 66,5 g | Miðlungs | Miðlungs |
| MCA Kai'li Dark Waves Blue 60 | Regular | 64,5 g | Miðlungs | Miðlungs |
Hvaða stífleikar fást staðlað fer eftir lofti. Önnur sköft fást í sérpöntun.
Í boði í sérpöntun hjá okkur
| Stilling á hálsi | FutureFit33 hálsinn er stilltur í þá stillingu sem þú velur, 33 stillingar í boði |
|---|---|
| Sköft gegn aukagjaldi | Fujikura Ventus, Graphite Design Tour AD og Anti Gravity og Mitsubishi Diamana: 37.900 kr. |
| Grip | SuperStroke Crossline 360 Black, Golf Pride Tour Velvet 360, Golf Pride Tour Velvet Plus4, SuperStroke REVL Player og SuperStroke REVL Comfort |
| Grip gegn aukagjaldi | Golf Pride MCC Black/White og MCC Plus 4 Grey: 2.000 kr. á kylfu. Golf Pride MCC Align Max og MCC Plus 4 Align Max: 2.500 kr. á kylfu. |
| Gripstærð | SuperStroke Crossline 360 Black og REVL Comfort: Undersize, Standard, Midsize og Jumbo/Oversize. REVL Player: Undersize, Standard og Midsize. Tour Velvet 360 og Tour Velvet Plus4: Standard og Midsize. |
Mæling og sérpöntun
Ef brautartréð er ekki til á lager hjá okkur sérpöntum við frá Cobra, bæði fyrir rétthentar og örvhentar kylfur. 9-tréð framleiðir Cobra aðeins fyrir rétthenta. Í sérpöntun er hægt að laga lengd, skaft og grip að þér. Hafðu samband við okkur eða bókaðu mælingu í Golfskálanum og við finnum uppsetninguna sem hentar þér.
Fleiri kylfur í OPTM línunni
Sama tækni í öðrum kylfum úr línunni.






