Alicante, Spánn

Villaitana

Levante og Poniente, tveir ólíkir 18 holu vellir eftir Jack Nicklaus, við Meliá Villaitana á Alicante-svæðinu.

Meliá Villaitana og golfvellirnir við Benidorm
  • 2×18 holur
  • 4/5 stjörnu hótel
  • Fararstjóri: Ingibergur Jóhannsson

Golfvellir

Tveir vellir eftir Jack Nicklaus

Báðir vellir Villaitana eru hannaðir af Jack Nicklaus og liggja við hótelið með Benidorm og Miðjarðarhafið í baksýn. Golfið er ótakmarkað alla golfdaga, samkvæmt lausum rástímum, og rástímum er dreift á báða velli.

Við klúbbhúsið eru æfingasvæði, golfverslun og golfskóli. Levante hentar þeim sem vilja ganga hringinn og Poniente er styttri völlur þar sem golfbíll fylgir í almennu ferðinni.

Levante: 18 holur, par 72

Jack Nicklaus hannaði báða velli Villaitana. Levante er að hluta í anda strandvalla, með mörgum glompum og stórum flötum sem hafa töluvert landslag. Völlurinn hentar vel þeim sem vilja ganga.

Golfbílar og handkerrur eru í boði á Levante gegn aukagjaldi. Staðfestu verð við bókun.

Poniente: 18 holur, par 62

Poniente liggur í dal og samanstendur af par 3 og par 4 holum. Þótt hann sé styttri reynir landslagið á leikskipulag. Golfbíll er innifalinn á Poniente í almennu ferðinni; staðfestu sérstaklega fyrirkomulagið í hátíðarferðinni.

Landpakki án flugs

Hægt er að óska eftir gistingu og golfi án flugs. Hafðu samband um dagsetningar, fæði, framboð og verð.

Landpakkar og sérferðir eru bókaðar hjá ferðaskrifstofunni. Staðfesta þarf akstur, framboð og heildarverð sérstaklega; flugvallarakstur fylgir ekki sjálfkrafa sérferð.

Meliá Villaitana 4/5 stjörnu

Meliá Villaitana er byggt eins og lítið þorp í Miðjarðarhafsstíl. Herbergin eru rúmgóð, með svölum eða verönd. Ferðin er fáanleg með morgunverði einum eða morgun- og kvöldverði.

Á hótelinu eru nokkrir veitingastaðir. Hlaðborð er yfirleitt opið á kvöldin en aðrir staðir, meðal annars Casa Nostra, Lima og Papa Mambo, opna eftir gestafjölda. Kannaðu opnun við komu og bókaðu borð snemma. Benidorm býður einnig marga veitingastaði í næsta nágrenni.

Hægt er að óska eftir uppfærslu í 5 stjörnu LEVEL fyrir 13.000 kr. á nótt fyrir herbergið. Henni fylgja stærri herbergi, sturta sem gengið er beint inn í, sér morgunverðarsalur, upphituð útisundlaug og aðgangur að léttvínsbar. Sendu póst á travel@golfskalinn.is eftir að ferðin er bókuð; ferðaskrifstofan kannar framboð áður en uppfærsla er staðfest.

Sundlaugar, heilsulind og veitingar

Sex sundlaugar eru á hótelsvæðinu, þar á meðal lón með sandströnd, og tvær þeirra eru fráteknar fyrir gesti á LEVEL. YHI-heilsulindin býður vatnsleið, nudd og meðferðir gegn gjaldi, og líkamsræktarsalur er opinn gestum.

Mosaico er hlaðborðsveitingastaður hótelsins með morgun- og kvöldverði. Casa Nostra býður ítalska rétti í Patio de los Naranjos, Papamambo og Lima opna eftir árstíð og gestafjölda, og Canalla er afslappaður strandbar með mexíkóskum götumat við lónið.

Benidorm og Altea

Villaitana er um 40 mínútur frá Alicante-flugvelli og stutt frá gamla bænum í Benidorm. Þar eru verslanir, veitingastaðir og útsýnispallur milli Poniente- og Levante-strandanna. Í Altea má rölta um gömul stræti og setjast niður yfir kvöldverði.

Fararstjóri: Ingibergur Jóhannsson

Ingibergur Jóhannsson er fararstjóri Golfskálans á Villaitana. Hann er með hópnum á staðnum og aðstoðar farþega í ferðinni, hvort sem það snýr að golfinu, rástímum eða öðru.

Villaitana og nágrenni

Benidorm · Costa Blanca, Spánn

Hótelið, golfið og staðirnir í kring.

Hótel

Meliá Villaitana

Hótelið ykkar, með sundlaugum og veitingastöðum við golfvellina.

Av. Alcalde Eduardo Zaplana 7

Myndband

Kynntu þér áfangastaðinn

Kynntu þér vellina og umhverfið með hljóði og mynd.
Villaitana

Við hjálpum þér að velja

Viltu vita meira um ferðina?

Hafðu samband við ferðaráðgjafa okkar og fáðu aðstoð við dagsetningar, gistingu og golf.

Villaitana · 4.–11. maí 2027Frá 314.900 kr.

Bóka ferð