Titleist · Golfvörur

Vokey SM11 Nickel Fleygjárnasett

89.900 kr.

Veldu valkosti hér fyrir neðan

Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans

Veldu vöru
Loft

Magn
1

Þrjú Vokey SM11 fleygjárn í Nickel áferð, seld saman sem eitt sett. Veldu 50°, 54° og 58° eða 52°, 56° og 60°, eftir því hvaða loft passa við járnin þín…

Sjá nánari vörulýsingu

Nánari upplýsingar

Loft
50°+54°+58°, 52°+56°+60°
30 daga skilafresturSótt í Bíldshöfða 16Örugg afgreiðsla

Vörulýsing

Bakhlið Vokey SM11 fleygjárns í Nickel áferð

Þrjú Vokey SM11 fleygjárn í Nickel áferð, seld saman sem eitt sett. Veldu 50°, 54° og 58° eða 52°, 56° og 60°, eftir því hvaða loft passa við járnin þín. Fjórar gráður eru á milli kylfanna og ný tækni gefur hreinni snertingu, stöðugt flug og hæfilegan spuna, svo höggin inn á flöt verða fyrirsjáanleg og nákvæm.

Helstu kostir

  • Þrjú fleygjárn, jafnt bil. Fjórar gráður á milli kylfanna í báðum settunum.
  • Stöðugt flug. Sami þyngdarpunktur í öllum grind fyrir hvert loft.
  • Hæfilegur spuni. Vokey Spin System virkar úr hvaða legu sem er.
  • Endingarbetri rákir. Hitameðhöndlun tvöfaldar endinguna.

Helstu upplýsingar

ÁferðNickel
GrindF, S og D (sjá töflur hér fyrir neðan)
RákirDýpri Spin Milled rákir, lagaðar að höggunum sem hvert fleygjárn er notað í og hitameðhöndlaðar
ÞyngdarpunkturÁ sama stað í öllum grind fyrir hvert loft
SkaftTrue Temper Dynamic Gold stálskaft, staðalskaft Titleist í SM11
GripTitleist Universal 360
Lega64° á öllum fleygjárnunum
HöndRétthent

Þetta eru upplýsingar frá Titleist.

Hreinni snerting

Vokey SM11 fleygjárn slær bolta af grasi

Fyrir hvern kylfing er til grind sem gefur hreina snertingu. SM11 býður breitt úrval af loftum, bounce og grind sem stuðlar að því að þú hittir boltann vel, á milli 2. og 5. rákar, fáir fyrirsjáanleg högg og hafir sjálfstraust í hvaða högg sem er.

Vokey Spin System: hæfilegur spuni

Nærmynd af áferð og rákum á höggfleti Vokey SM11

Nýja Vokey Spin System sameinar þrennt: skáhalla áferð á höggfletinum, rákir sem eru lagaðar að höggunum sem hvert fleygjárn er notað í og dýpri Spin Milled rákir. Saman gefa þær hæfilegan spuna úr hvaða legu sem er og við allar aðstæður.

Rákir sem endast lengur

Höggflötur Vokey SM11 fleygjárns með höggsvæðið litað appelsínugult

Nýjar og skarpar rákir eru lykillinn að góðu stuttu spili. Öll fleygjárn slitna með tímanum, en rákirnar í Vokey eru hitameðhöndlaðar og endast tvöfalt lengur.

Meira um fleygjárnin

  • Stöðugt flug

    Fyrir hvert loft er þyngdarpunkturinn (CG) á sama stað í öllum grind, svo upphafshornið er stöðugt og jafnt. Sama hvaða sóli hentar sveiflunni þinni eða vellinum helst flugið eins, og þú getur valið loft og grind sem henta þér.

  • Bil á milli fleygjárna

    Hafðu 4 til 6 gráður á milli fleygjárnanna þinna og ekki meira. Þá verður jafnt bil í lengd á milli kylfanna og þú átt kylfu fyrir hvert högg inn á flöt.

  • Grip: Titleist Universal 360

    Titleist Universal 360 er grip sem Titleist hannaði sjálft. Það sameinar helstu kosti tveggja vinsælustu gripanna á mótaröðunum.

Sjáðu SM11 fleygjárnin

Titleist fer yfir það helsta sem þú þarft að vita um nýju SM11 fleygjárnin, í tæplega sjö mínútna myndbandi. Myndbandið er á ensku.

Fleygjárnin í settunum

FleygjárnSettLoftBounceGrindLengdSveifluþyngd
50.12 F50°+54°+58°50°12°F35 1/2"D3
52.12 F52°+56°+60°52°12°F35 1/2"D3
54.10 S50°+54°+58°54°10°S35 1/4"D5
56.10 S52°+56°+60°56°10°S35 1/4"D5
58.12 D50°+54°+58°58°12°D35"D5
60.12 D52°+56°+60°60°12°D35"D5

Þetta eru staðalmál frá Titleist. Lega er 64° á öllum fleygjárnunum. Sveifluþyngdin miðast við staðaluppsetningu.

Grind í settunum

GrindBounceFyrir hvern
F12°Heill sóli fyrir full högg. Hefðbundinn sóli sem gefur fyrirgefningu og öryggi af braut og í kringum flatirnar.
S10°Heill sóli sem er mjókkaður að aftan og fer því hraðar í gegnum grasið. Fjölhæfur við ólíkar aðstæður, fyrir þá sem stýra loftinu með hendurnar fyrir framan eða aftan boltann.
D12°Fyrir brattari sveiflur, með fyrirgefningu og fjölhæfni í kringum flatirnar. Bounce framarlega á sólanum hjálpar á mýkra undirlagi og frambrúnin lækkar þegar þú opnar höggflötinn.

Lýsingarnar eru frá Titleist.

Í boði í sérpöntun hjá okkur

ÁferðTour Chrome, Nickel, Jet Black og Raw. Raw er sérpöntun gegn aukagjaldi.
LegaAllt að 2° uppréttari eða 2° flatari en staðall, í 0,5° skrefum
StálsköftTrue Temper Dynamic Gold og Dynamic Gold 105, KBS Tour og KBS Tour Lite, Nippon N.S. Pro Modus 3 Tour 105 og 120, N.S. Pro 880 AMC og N.S. Pro 950GH, Titleist N.S. Pro 105T, Project X og Project X LZ
GrafítskaftMitsubishi MMT AMC Red, í R og í R3 fyrir konur
Grip án aukagjaldsVokey Tour Velvet 360 og Vokey Titleist Universal 360
Grip gegn aukagjaldi2.500 kr. á kylfu: Vokey Multi-Compound (White, Red, Black, Black/Grey, Blue/White og Blue), Vokey MCC Plus 4 Blue, Vokey Platinum Blue og Vokey Tour Velvet Cord Black
GripstærðVokey Tour Velvet 360: Undersize, Standard, Midsize og Jumbo. Vokey Titleist Universal 360: Undersize og Standard. Grip gegn aukagjaldi: Standard.

Mæling og sérpöntun

Stök SM11 fleygjárn í öðrum loftum, bounce og grind, aðrar áferðir, önnur sköft og örvhent fleygjárn getum við sérpantað frá Titleist. Hafðu samband við okkur eða bókaðu mælingu í Golfskálanum og við finnum loft, bounce og grind sem passa við sveifluna þína og hinar kylfurnar þínar.

Fleiri SM11 fleygjárn

Stök SM11 fleygjárn og kvennaútgáfa.

Vörunúmer: 10459