Titleist · Golfvörur
Titleist T250 Utility

Veldu valkosti hér fyrir neðan
Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans
Titleist T250 Utility er utility járn fyrir kylfinga sem vilja járnalögun og nákvæmni í löngum innáhöggum og af teig. Höggflötur og búkur eru úr hástyrktarstáli og járnið er gert fyrir grafítsköft úr hybrid kylfum, sem gefur hraða, stöðugleika og jöfn högg í…
Sjá nánari vörulýsinguNánari upplýsingar
- Shaft Flex
- Regular, Stiff, X-Stiff
- Loft
- 18°, 20°, 22°
- Club Designation
- 2, 3, 4
- Club Handedness
- Right, Left
Vörulýsing

Titleist T250 Utility er utility járn fyrir kylfinga sem vilja járnalögun og nákvæmni í löngum innáhöggum og af teig. Höggflötur og búkur eru úr hástyrktarstáli og járnið er gert fyrir grafítsköft úr hybrid kylfum, sem gefur hraða, stöðugleika og jöfn högg í hreinni og nettri lögun. Fæst sem 2-járn (18°), 3-járn (20°) og 4-járn (22°), fyrir rétthenta og örvhenta.
Helstu kostir
- Hreint og nett útlit. Höggflötur og búkur alfarið úr hástyrktarstáli.
- Meiri hraði. Smíðaður L-Face höggflötur með V-Taper lögun.
- Jafnari högg. Endurbætt Max Impact Technology.
- Stöðugleiki og stjórn á flughæð. Split High-Density Tungsten.
Helstu upplýsingar
| Gerð | Utility járn (Player's Distance) |
|---|---|
| Smíði | Holur haus, höggflötur og búkur úr hástyrktarstáli, smíðaður L-Face höggflötur og Split High-Density Tungsten |
| Offset | Lítið |
| Skaft | Gert fyrir grafítsköft úr hybrid kylfum (.370 tommu). Hausinn er aðeins þyngri vegna léttara skafts. |
| Staðalskaft | Project X HZRDUS Black 5G HY 80 og 90 (grafít), 6.0 og 6.5 |
| Grip | Titleist Universal 360 |
| Kjarni og þyngd grips | .580: 52 g, .600: 50 g |
| Hönd | Rétthent og örvhent |
Þetta eru upplýsingar frá Titleist.
Einstök hönnun

Höggflötur og búkur T250 Utility eru alfarið úr hástyrktarstáli, svo öflug tækni rúmast inni í hreinni og nútímalegri lögun. Járnið er smíðað fyrir grafítsköft úr hybrid kylfum.
Meiri hraði

Nýr smíðaður L-Face höggflötur með V-Taper lögun gefur meiri boltahraða yfir allan höggflötinn og hærra flug þegar þú hittir neðarlega á hann.
Jafnari högg

Endurbætt Max Impact Technology gefur jafnari fluglengd og dreifingu, svo þú hittir oftar á skotmarkið og heldur boltanum þar.
Hátt flug og stöðugleiki

Split High-Density Tungsten setur þyngdarpunktinn á réttan stað og gefur mikinn stöðugleika í nettum haus, fyrir jafna fluglengd og betri stjórn á flughæð.
Meira um járnið
T250 Utility eða U505?
T250 Utility er nettara og líkara járni, fyrir kylfinga sem vilja járnalögun og stjórn. U505 er aðeins stærra og fyrirgefandi, og leikur meira eins og hybrid.
T250 Utility eða venjulegt T250 járn?
T250 Utility er gert fyrir hærra flug og lengri flugferil og fyrir grafítsköft úr hybrid kylfum. Það nýtist því betur sem driving iron en venjulegt langt T250 járn.
Sjáðu járnið hjá Titleist
Titleist kynnir járnið og tæknina á bak við það. Myndbandið er á ensku.
Tæknilýsing
| Kylfa | Loft | Lega | Lengd | Í boði |
|---|---|---|---|---|
| 2-járn | 18° | 60,5° | 39 3/4" | Rétthent og örvhent |
| 3-járn | 20° | 61° | 39 1/4" | Rétthent og örvhent |
| 4-járn | 22° | 61,5° | 38 3/4" | Rétthent og örvhent |
Þetta eru upplýsingar frá Titleist.
Staðalsköft
| Skaft | Stífleiki | Þyngd | Boltaflug |
|---|---|---|---|
| Project X HZRDUS Black 5G HY 80 (grafít) | 6,0 | 82 g | Lágt til miðlungs |
| Project X HZRDUS Black 5G HY 80 (grafít) | 6,5 | 83 g | Lágt til miðlungs |
| Project X HZRDUS Black 5G HY 90 (grafít) | 6,0 | 90 g | Lágt til miðlungs |
| Project X HZRDUS Black 5G HY 90 (grafít) | 6,5 | 91 g | Lágt til miðlungs |
Í Regular notum við Mitsubishi Tensei 1K Blue HY, sjá sköftin í sérpöntun hér fyrir neðan.
Í boði í sérpöntun hjá okkur
| Lega | Allt að 2° uppréttari eða 2° flatari en staðall, í 0,5° skrefum |
|---|---|
| Sköft | Mitsubishi Tensei 1K Blue HY (65, 75 og 85), Mitsubishi Tensei 1K Black HY (85 og 95) og Project X HZRDUS Black 5G HY (80 og 90) |
| Grip án aukagjalds | Golf Pride Tour Velvet 360 og Titleist Universal 360 |
| Grip gegn aukagjaldi | 2.500 kr. á kylfu: Golf Pride Tour Velvet Align, Tour Velvet BCT Cord Black, MCC (Black, Red, White og Blue), MCC Align White, MCC Plus 4 (Grey, Blue, Orange og Red), MCC Plus 4 Align Grey og Z-Grip Align |
| Gripstærð | Tour Velvet 360: Undersize, Standard, Midsize og Jumbo. Universal 360: Undersize og Standard. Grip gegn aukagjaldi: Standard, og MCC Black, MCC Red og MCC Plus 4 Blue líka í Midsize. |
Mæling og sérpöntun
Ef utility járnið er ekki til á lager hjá okkur sérpöntum við frá Titleist, bæði fyrir rétthentar og örvhentar kylfur. Í sérpöntun er hægt að laga lengd, skaft og grip að þér. Hafðu samband við okkur eða bókaðu mælingu í Golfskálanum og við finnum uppsetninguna sem hentar þér.
Fleiri kylfur frá Titleist
T250 Utility fellur beint að T250 járnunum.






