Titleist · Golfvörur

Scotty Studio Style Fastback 1,5 34"

79.900 kr.

Á lager

Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans

Magn
1

Vörunúmer: 9654

Scotty Cameron Studio Style Fastback 1.5 er nettur mallet pútter með I-Beam jet hálsi, sem greinir hann frá hinum Fastback pútterunum. Hann er fyrir kylfinga sem vilja tilfinningu blade pútters og eiginleika netts mallet pútters…

Sjá nánari vörulýsingu
30 daga skilafresturSótt í Bíldshöfða 16Örugg afgreiðsla

Vörulýsing

Scotty Cameron Studio Style Fastback 1.5 pútter séður neðan frá, sóli og höggflötur

Scotty Cameron Studio Style Fastback 1.5 er nettur mallet pútter með I-Beam jet hálsi, sem greinir hann frá hinum Fastback pútterunum. Hann er fyrir kylfinga sem vilja tilfinningu blade pútters og eiginleika netts mallet pútters. Jet hálsinn gefur mikið táarhang (toe flow), nálægt hámarki á kvarða Scotty Cameron, og þú finnur betur fyrir höggfletinum í strokunni. Við eigum pútterinn í 34 tommum.

Helstu kostir

  • Blade tilfinning í mallet pútter. Jet háls gefur táarhang (toe flow) nálægt hámarki.
  • Tvílit miðun. Svart álinnlegg við hæl og tá bætir miðunina og hækkar MOI.
  • Mjúkt hljóð og mjúk tilfinning. Studio Carbon Steel (SCS) innlegg í höggfletinum.
  • Betri rúlla. Chain-link fræsing fækkar snertipunktum við boltann.
  • Situr beint við boltann. Halli sólans var endurhannaður svo pútterinn sitji hornrétt.

Helstu upplýsingar

GerðMallet pútter
Loft3,5°
Lega70°
Staðallengdir33", 34", 35"
Lengdir hjá okkur34 tommur
Efni í haus303 ryðfrítt stál
HöggflöturStudio Carbon Steel (SCS) innlegg með chain-link fræsingu
HálsI-Beam jet háls
Táarhang (toe flow)Nálægt hámarki
Offset3/4 skaft
Lóð í sóla33": 2 x 20 g, 34": 2 x 15 g, 35": 2 x 10 g
GripFull Contact Slim
Framleiddur fyrirRétthenta og örvhenta
Sérpöntun hjá Scotty CameronLengdir í hálfum tommum fyrir rétthenta. Örvhent: 33, 34 og 35 tommur. Loft frá -1° til +1° og lega frá -2° til +2° frá staðli.
KylfuhlífFylgir með

Þetta eru staðalmál frá Scotty Cameron. Táarhang, sem Scotty Cameron kallar toe flow, segir til um hve mikið höggflöturinn vill opnast og lokast í strokunni. Scotty Cameron miðar við að lágmarks táarhang henti stroku sem fer nánast beint aftur og beint fram, miðlungs táarhang stroku með hóflegum boga og mikið táarhang stroku með meiri boga.

Nettur mallet sem auðvelt er að miða með

Scotty Cameron Studio Style Fastback 1.5 pútter séður ofan frá, eins og þegar staðið er yfir boltanum

Studio Style Fastback 1.5 er með nútímalega, ávala lögun. Svart, anódíserað álinnlegg við hæl og tá bætir miðunina og hækkar MOI, og tvílita miðunin sem það myndar, þvert á púttlínuna, hjálpar þér að halda pútternum beinum í gegnum höggið. Halli sólans var endurhannaður til að pútterinn sitji alveg hornrétt þegar þú stillir þér upp.

Studio Carbon Steel (SCS) innlegg

Höggflötur Scotty Cameron Studio Style Fastback 1.5 pútters séður framan frá

Í höggfletinum er nákvæmnisfræst innlegg úr kolefnisstáli, Studio Carbon Steel (SCS). Það gefur mjúka hljóðið og mjúku tilfinninguna sem kolefnisstál er þekkt fyrir. Innleggið er nikkelhúðað (electroless nickel) svo það endist betur.

Smíðaður úr stáli og áli

Scotty Cameron Studio Style Fastback 1.5 pútter séður aftan frá

Studio Style Fastback 1.5 byggir á þeirri aðferð Scotty Cameron að nota saman efni sem bæta hvert annað upp. Nákvæmnisfræst sólaplata úr 6061 flugvélaáli er felld inn í hausinn, sem er úr 303 ryðfríu stáli, og við hæl og tá er svart, anódíserað álinnlegg. Þannig má stýra þyngdardreifingu, jafnvægi og tilfinningu. Í sólanum eru tvö útskiptanleg lóð úr ryðfríu stáli.

Meira um pútterinn

  • Chain-link fræsing á höggfletinum

    Chain-link er keðjumynstur sem er fræst í innleggið. Mynstrið fækkar snertipunktum höggflatarins við boltann, sem mýkir hljóðið og bætir rúlluna, en tilfinningin og svörunin frá höggfletinum halda sér.

Sjáðu pútterinn hjá Scotty Cameron

Scotty Cameron kynnir Studio Style Fastback 1.5 pútterinn í stuttu myndbandi. Myndbandið er á ensku.

Viltu prófa pútterinn?

Komdu við í Golfskálanum og prófaðu pútterinn. Aðrar lengdir og örvhenta útgáfu getum við sérpantað frá Scotty Cameron. Hafðu samband við okkur og við finnum það sem hentar þér.

Fleiri pútterar frá Scotty Cameron

Aðrir pútterar frá Scotty Cameron, með aðra lögun eða annan háls.

Vörunúmer: 9654