Scotty Cameron · Golfvörur

Scotty Cameron Phantom 7 DB

79.900 kr.

Á lager

Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans

Veldu vöru
Lengd

Magn
1

Vörunúmer: 10870

Scotty Cameron Phantom 7 er kantaður mallet pútter með langa, hvassa vængi og efri brún sem minnir á blade pútter. Hann er fyrir kylfinga með lítinn boga í púttstrokunni: tvíbeygt skaft (double bend, DB í vöruheitinu) hentar stroku sem fer nánast beint aftur…

Sjá nánari vörulýsingu

Nánari upplýsingar

Lengd
34 tommur
30 daga skilafresturSótt í Bíldshöfða 16Örugg afgreiðsla

Vörulýsing

Scotty Cameron Phantom 7 pútter séður neðan frá, sóli og höggflötur

Scotty Cameron Phantom 7 er kantaður mallet pútter með langa, hvassa vængi og efri brún sem minnir á blade pútter. Hann er fyrir kylfinga með lítinn boga í púttstrokunni: tvíbeygt skaft (double bend, DB í vöruheitinu) hentar stroku sem fer nánast beint aftur og beint fram. Pútterinn gefur tilfinningu, stöðugleika og skýra miðun. Við eigum pútterinn í 34 tommum.

Helstu kostir

  • Fyrir beina stroku. Tvíbeygt skaft gefur lágmarks táarhang (toe flow).
  • Stöðugleiki og skýr miðun. Langir, hvassir vængir og efri brún í blade stíl.
  • Mýkra hljóð og mýkri tilfinning. Nýtt SCS innlegg með chain-link fræsingu nær yfir allan höggflötinn.
  • Sest eins við boltann í hvert sinn. Dýpri höggflötur, ávöl efri brún og endurhönnuð sólaplata.

Helstu upplýsingar

GerðMallet pútter
Loft3,5°
Lega70°
Staðallengdir33", 34", 35"
Lengdir hjá okkur34 tommur
Efni í hausBúkur úr 303 ryðfríu stáli, sóli og flans úr 6061 flugvélaáli
HöggflöturStudio Carbon Steel (SCS) innlegg yfir allan höggflötinn, með chain-link fræsingu
SkaftTvíbeygt (double bend)
Táarhang (toe flow)Lágmark
OffsetHeilt skaft
Lóð í sóla33": 2 x 20 g, 34": 2 x 15 g, 35": 2 x 10 g
GripFull Contact, grátt
Framleiddur fyrirRétthenta og örvhenta
Sérpöntun hjá Scotty CameronLengdir í hálfum tommum fyrir rétthenta. Örvhent: 33, 34 og 35 tommur. Loft frá -1° til +1° og lega frá -2° til +2° frá staðli.
KylfuhlífFylgir með

Þetta eru staðalmál frá Scotty Cameron. Táarhang, sem Scotty Cameron kallar toe flow, segir til um hve mikið höggflöturinn vill opnast og lokast í strokunni. Scotty Cameron miðar við að lágmarks táarhang henti stroku sem fer nánast beint aftur og beint fram, miðlungs táarhang stroku með hóflegum boga og mikið táarhang stroku með meiri boga.

Hreinni og jafnari uppstilling við boltann

Scotty Cameron Phantom 7 pútter séður ofan frá, eins og þegar staðið er yfir boltanum

Phantom 7 er með dýpri höggflöt, ávala efri brún og endurhannaða sólaplötu. Pútterinn sest því hreinna við boltann og eins í hvert sinn, sem vekur traust þegar þú stillir þér upp.

Nýtt SCS innlegg yfir allan höggflötinn

Höggflötur Scotty Cameron Phantom 7 pútters séður framan frá

Studio Carbon Steel (SCS) innleggið var endurhannað sérstaklega fyrir Phantom og nær nú yfir allan höggflötinn. Það er með chain-link fræsingu og gefur mýkra hljóð, mýkri tilfinningu og nákvæmari stjórn á lengd púttanna.

Tvíbeygt skaft fyrir beina stroku

Scotty Cameron Phantom 7 pútter séður aftan frá

Phantom 7 er með tvíbeygðu skafti (double bend) sem gefur lágmarks táarhang (toe flow), fyrir stroku sem fer beint aftur og beint fram.

Meira um pútterinn

  • Fræstur úr ryðfríu stáli og áli

    Búkurinn er fræstur úr 303 ryðfríu stáli og sóla- og flanshlutinn er úr 6061 flugvélaáli. Í sólanum eru tvö lóð og þyngd þeirra fer eftir lengd púttersins. Pútternum fylgja grátt Full Contact grip og kylfuhlíf.

Sjáðu pútterinn hjá Scotty Cameron

Scotty Cameron kynnir Phantom 7 hausinn, nýju miðunina og hálsana sem hann fæst með. Phantom 7 er útgáfan með tvíbeygðu skafti. Myndbandið er á ensku.

Viltu prófa pútterinn?

Komdu við í Golfskálanum og prófaðu pútterinn. Aðrar lengdir og örvhenta útgáfu getum við sérpantað frá Scotty Cameron. Hafðu samband við okkur og við finnum það sem hentar þér.

Fleiri pútterar frá Scotty Cameron

Aðrir pútterar frá Scotty Cameron, með aðra lögun eða annan háls.

Vörunúmer: 10870