Ping · Golfvörur

Ping GLE4 Louise Pútter

49.900 kr.

Á lager

Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans

Magn
1

Vörunúmer: 10596

Ping G Le4 Louise er mid-mallet pútter, nefndur eftir Louise Solheim, öðrum stofnanda Ping. Þyngd og lögun eru sótt í DS72 pútterinn en hálsinn er útvíður, sem hentar best kylfingum með mikinn boga í púttstrokunni. Helstu kostir Mid-mallet…

Sjá nánari vörulýsingu
30 daga skilafresturSótt í Bíldshöfða 16Örugg afgreiðsla

Vörulýsing

Ping G Le4 Louise pútter

Ping G Le4 Louise er mid-mallet pútter, nefndur eftir Louise Solheim, öðrum stofnanda Ping. Þyngd og lögun eru sótt í DS72 pútterinn en hálsinn er útvíður, sem hentar best kylfingum með mikinn boga í púttstrokunni.

Helstu kostir

  • Mid-mallet. Meiri stöðugleiki en blade, nettari en stór mallet.
  • Fyrir mikinn boga. Útvíður háls fylgir stroku þar sem pútterinn opnast og lokast.
  • Mjúk tilfinning. PEBAX innlegg í höggfleti gefur mjúkt en skýrt högg.
  • Vandað grip. Ping PP58 Tour M Lilac úr mjúku efni.

Helstu upplýsingar

GerðMid-mallet pútter
PúttstrokaMikill bogi
HálsH4, útvíður
Offset3/4 skaft
Efni í hausBúkur úr 17-4 ryðfríu stáli, hlíf úr smíðuðu 6061-T6 áli
HöggflöturPEBAX innlegg í einu lagi
Þyngd hauss355 g
Lengd33 tommur (staðallengd Ping)
Loft3° (stillanlegt +3° / -2°)
Lega20° (stillanleg ±4°)
SkaftKrómað stálskaft án þrepa
GripPING PP58 Tour M Lilac

Þetta eru upplýsingar frá Ping. Loft og legu er hægt að láta stilla að þér.

Mjúkt en svarar vel

Skýringarmynd af PEBAX innlegginu í höggfleti G Le4 púttera

Innleggið í höggfletinum er steypt í einu lagi úr PEBAX elastómer. Það gefur mjúka tilfinningu en svarar samt skýrt, sem auðveldar þér að stjórna lengdinni á púttunum.

Vandað grip

Ping PP58 Tour M Lilac púttgrip

Ping PP58 Tour M Lilac gripið er með lögun sem atvinnukylfingar hafa treyst lengi og er úr mýkra efni sem gefur góða tilfinningu og þægilegt tak.

Meira um pútterinn

  • Stál og ál saman

    Búkurinn er úr 17-4 ryðfríu stáli með perlukrómhúð og ofan á honum er hlíf úr smíðuðu 6061-T6 áli með anodiseraðri Galactic Lilac áferð. Létta álið leyfir þyngdinni að sitja utar í hausnum og gera hann stöðugri.

  • Stillt að þér

    Ping getur smíðað pútterinn með því lofti og þeirri legu sem hentar þér: loft frá 1° til 6° og legu ±4° frá staðli.

Hvaða G Le4 pútter hentar þér?

PútterGerðPúttstroka
OsloMalletBein
Anser 2DBladeLítill bogi
LouiseMid-malletMikill bogi

Bein stroka fer beint aftur og beint fram. Í bogastroku opnast og lokast pútterinn meira á leiðinni.

Viltu aðstoð við valið?

Ekki viss hvaða pútter passar þinni stroku? Hafðu samband við okkur eða komdu við í Golfskálanum og við hjálpum þér að velja.

Aðrir pútterar í G Le4 línunni

Sami höggflötur og grip, önnur lögun.

Vörunúmer: 10596