Ping · Golfvörur

Ping G440 SFT Driver

97.900 kr.

Veldu valkosti hér fyrir neðan

Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans

Veldu vöru
Shaft Flex
Loft
Club Handedness

Magn
1
Afgreiðslutími

Ef þessi vara er ekki til á lager munum við hafa samband varðandi áætlaðan afgreiðslutíma.

Ping G440 SFT (Straight Flight) er driverinn fyrir þá sem berjast við slice. Stillanlegt lóð aftast ýtir undir draw og skilar lengri og beinni höggum. Hraðari höggflötur, léttari kylfa og 46 tommu skaft gefa mikla lengd. Fæst í 9° og 10,5°…

Sjá nánari vörulýsingu

Nánari upplýsingar

Shaft Flex
Regular, Stiff, X-Stiff, Soft Regular
Loft
10.5°, 9°
Club Handedness
Left, Right
30 daga skilafresturSótt í Bíldshöfða 16Örugg afgreiðsla

Vörulýsing

Draw og Draw+ stillingar á lóði Ping G440 SFT

Ping G440 SFT (Straight Flight) er driverinn fyrir þá sem berjast við slice. Stillanlegt lóð aftast ýtir undir draw og skilar lengri og beinni höggum. Hraðari höggflötur, léttari kylfa og 46 tommu skaft gefa mikla lengd. Fæst í 9° og 10,5°.

Helstu kostir

  • Lagar slice. Draw og Draw+ stillingar færa boltann 12 til 18 metra til baka inn á braut.
  • Meiri lengd. Lægsti þyngdarpunktur Ping til þessa og þynnri höggflötur gefa meiri boltahraða.
  • Létt í sveiflu. Léttari haus og sveifluþyngd D0 auðvelda þér að loka höggfletinum.
  • Stillanlegur háls. Loft upp eða niður um 1,5° og lega allt að 3° flatari.

Free Hosel og lágur þyngdarpunktur

Free Hosel hálsinn á Ping G440 driver, skýringarmynd

Þyngd er tekin úr hluta hálsins og færð neðar í hausinn. Útkoman er lægsti þyngdarpunktur sem Ping hefur náð í driver. Hann liggur nær kraftlínu höggsins og það skilar meiri lengd og fleiri höggum á braut.

Þynnri og hraðari höggflötur

Höggflötur Ping G440 driversins, sundurliðuð mynd

Höggflöturinn er lægri en áður, sem gerir kleift að hafa hann þynnri. Það gefur meiri boltahraða og jafnari útkomu yfir allan flötinn, líka ofarlega við hælinn.

Þægilegt hljóð

Carbonfly Wrap krónan á Ping G440 driver

Carbonfly Wrap krónan er úr koltrefjum og sparar þyngd sem fer í að lækka þyngdarpunktinn og auka fyrirgefningu. Hún gefur líka dempaðra og þægilegra hljóð í högginu.

Stilltu loft og legu

Stillanlegur háls á Ping G440 driver

Léttur háls með átta stillingum gerir þér kleift að breyta lofti um 1,5° upp eða niður og legu um allt að 3° flatara en staðall, til að fínstilla boltaflugið.

Tæknilýsing

LoftStilling á loftiLengdLegaStærð haussÞyngd haussSveifluþyngd
9,0°±1,5°46"58,5°460 cc199 gD0
10,5°±1,5°46"58,5°460 cc199 gD0

Þetta eru staðalmál frá Ping og geta vikið lítillega í framleiðslu. Lega er meðaltal stillinganna á hálsinum.

Sköft

SkaftStífleikiÞyngdBoltaflug
PING ALTA CB Blue 50 (grafít)Soft Regular49 gHátt
PING ALTA CB Blue 50 (grafít)Regular51 gMiðlungs til hátt
PING ALTA CB Blue 50 (grafít)Stiff55 gMiðlungs til hátt
PING Tour 2.0 Black 65 (grafít)Stiff60 gLágt
PING Tour 2.0 Black 65 (grafít)X-Stiff66 gLágt
PING Tour 2.0 Chrome 65 (grafít)Regular56 gMiðlungs
PING Tour 2.0 Chrome 65 (grafít)Stiff61 gMiðlungs
PING Tour 2.0 Chrome 65 (grafít)X-Stiff66 gLágt til miðlungs

Fleiri sköft frá Ping og öðrum framleiðendum fást í sérpöntun.

Mæling og sérpöntun

Ef driverinn er ekki til á lager hjá okkur sérpöntum við frá Ping, bæði fyrir rétthentar og örvhentar kylfur. Í sérpöntun er hægt að laga lengd, skaft og grip að þér. Hafðu samband við okkur eða bókaðu mælingu í Golfskálanum og við finnum uppsetninguna sem hentar þér.

Fleiri kylfur í G440 línunni

Sama tækni í öðrum kylfum úr línunni.