Ping · Golfvörur
Ping G440 LST Driver

Veldu valkosti hér fyrir neðan
Frí heimsending fyrir klúbbmeðlimi Golfskálans
Þessi vara er pöntuð sérstaklega fyrir þig frá framleiðanda. Við höfum samband varðandi áætlaðan afgreiðslutíma.
Ping G440 LST hentar sérstaklega kylfingum með hraða sveiflu. Hann gefur minni spuna, meiri stjórn og lágt, kraftmikið boltaflug. Hraðari höggflötur, léttari kylfa og 46 tommu skaft skila meiri hraða og lengd án þess að dreifingin aukist. Fæst í 9° og 10,5°…
Sjá nánari vörulýsinguNánari upplýsingar
- Hönd
- Örvhent, Rétthent
- Stífleiki
- Regular, Stiff, X-Stiff
- Loft
- 9°, 10,5°
Vörulýsing

Ping G440 LST hentar sérstaklega kylfingum með hraða sveiflu. Hann gefur minni spuna, meiri stjórn og lágt, kraftmikið boltaflug. Hraðari höggflötur, léttari kylfa og 46 tommu skaft skila meiri hraða og lengd án þess að dreifingin aukist. Fæst í 9° og 10,5°.
Helstu kostir
- Minni spuni. Lágt og kraftmikið flug fyrir hraða sveiflu.
- Meiri lengd. Lægsti þyngdarpunktur Ping til þessa og þynnri höggflötur gefa meiri boltahraða.
- Stillanlegt flug. Lóðið aftast má færa í draw, fade eða hlutlausa stöðu.
- Stillanlegur háls. Loft upp eða niður um 1,5° og lega allt að 3° flatari.
- Nettari haus. 450 cc haus sem betri kylfingar kjósa.
Helstu upplýsingar
| Króna | Carbonfly Wrap úr koltrefjum |
|---|---|
| Lóð aftast | Færanlegt í draw, fade eða hlutlausa stöðu |
| Lengd eftir skafti | 46 tommur með ALTA CB Blue 50. 45,5 tommur með PING Tour 2.0 Chrome eða Black, Mitsubishi Tensei 1K og Project X Denali Red. |
| Sveifluþyngd eftir skafti | Einum punkti hærri með Project X Denali Red 60 og tveimur punktum hærri með Mitsubishi Tensei 1K Black 65 |
| HL uppsetning | 46 tommur með ALTA Quick skafti. Sveifluþyngd D3 (35) eða D4 (45). |
| Sköft | PING ALTA CB Blue 50, PING Tour 2.0 Chrome 65, PING Tour 2.0 Black 65 |
| Önnur sköft í sérpöntun | Mitsubishi Tensei 1K Black 65, Project X Denali Red 50, Project X Denali Red 60, PING ALTA Quick |
| Grip | Golf Pride Tour Velvet 360, Lamkin Crossline og Lamkin UTx Lite |
| Hönd | Rétthent og örvhent |
Free Hosel og lágur þyngdarpunktur

Þyngd er tekin úr hluta hálsins og færð neðar í hausinn. Útkoman er lægsti þyngdarpunktur sem Ping hefur náð í driver. Hann liggur nær kraftlínu höggsins og það skilar meiri lengd og fleiri höggum á braut.
Þægilegt hljóð

Carbonfly Wrap krónan er úr koltrefjum og sparar þyngd sem fer í að lækka þyngdarpunktinn og auka fyrirgefningu. Hún gefur líka dempaðra og þægilegra hljóð í högginu.
Mótaðu boltaflugið

29 gramma lóð aftast í hausnum eykur fyrirgefningu og má færa í draw, fade eða hlutlausa stöðu til að hafa áhrif á sveigju og hæð höggsins.
Stilltu loft og legu

Léttur háls með átta stillingum gerir þér kleift að breyta lofti um 1,5° upp eða niður og legu um allt að 3° flatara en staðall, til að fínstilla boltaflugið.
Meira um driverinn
Grip: Golf Pride Tour Velvet 360
Gripið er úr gúmmíblöndu með mynstri sem rennur ekki í hendi. Plúslaga áferðin dregur raka frá yfirborðinu svo takið helst jafnt.
Tæknilýsing
| Loft | Stilling á lofti | Lengd | Lega | Stærð hauss | Þyngd hauss | Sveifluþyngd |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 9,0° | ±1,5° | 46" | 57,0° | 450 cc | 205 g | D4 |
| 10,5° | ±1,5° | 46" | 57,0° | 450 cc | 205 g | D4 |
Þetta eru staðalmál frá Ping og geta vikið lítillega í framleiðslu. Lega er meðaltal stillinganna á hálsinum.
Sköft
| Skaft | Stífleiki | Þyngd | Boltaflug |
|---|---|---|---|
| PING ALTA CB Blue 50 (grafít) | Soft Regular | 49 g | Hátt |
| PING ALTA CB Blue 50 (grafít) | Regular | 51 g | Miðlungs til hátt |
| PING ALTA CB Blue 50 (grafít) | Stiff | 55 g | Miðlungs til hátt |
| PING Tour 2.0 Chrome 65 (grafít) | Regular | 56 g | Miðlungs |
| PING Tour 2.0 Chrome 65 (grafít) | Stiff | 61 g | Miðlungs |
| PING Tour 2.0 Chrome 65 (grafít) | X-Stiff | 66 g | Lágt til miðlungs |
| PING Tour 2.0 Black 65 (grafít) | Stiff | 60 g | Lágt |
| PING Tour 2.0 Black 65 (grafít) | X-Stiff | 66 g | Lágt |
Fleiri sköft frá Ping og öðrum framleiðendum fást í sérpöntun.
Í boði í sérpöntun hjá okkur
| Stilling á hálsi | Átta stillingar: staðall, loft +1°, +1,5°, -1° eða -1,5°, og flöt lega með staðallofti, +1° eða -1° lofti |
|---|---|
| Gripstærð | Eftir litakóða Ping: Rauður -1/32 tommu, Aqua -1/64 tommu, Hvítur staðall, Gylltur +1/32 tommu, Appelsínugulur +1/16 tommu |
Mæling og sérpöntun
Ef driverinn er ekki til á lager hjá okkur sérpöntum við frá Ping, bæði fyrir rétthentar og örvhentar kylfur. Í sérpöntun er hægt að laga lengd, skaft og grip að þér. Hafðu samband við okkur eða bókaðu mælingu í Golfskálanum og við finnum uppsetninguna sem hentar þér.
Fleiri kylfur í G440 línunni
Sama tækni í öðrum kylfum úr línunni.






