sérferð með Steve dagskrá - 10-16 maí 2026

Golfskálinn kynnir til leiks La Envia á Almeria svæðinu á Spáni

Glæsilegt 5* hótel í hlíðum Sierra De Gádor með fallegu útsýni.

La Envia Golf er flottur 18 holu par 70 golfvöllur með skemmtilegu landslagi, brautir eru umlyktar trjám og gróðri.

Aðeins um 30 mín frá flugvellinum í Almeria og innan við 20 mín með leigubíl inní miðbæ Almeria borgarinnar.

  • 18 holu golfvöllur
  • Glæsilegt 5* hótel
  • Fallegt útsýni
  • Herbergi með sólarsvölum og sundlaugarsýn

Hótel la envia

Glæsilegt hótel staðsett við golfvöllinn.

Öll herbergin sem við bjóðum okkar farþegum eru með sólríkum svölum sem snúa að sundlauginni og golfvellinum.

Aðstaðan á hótelinu er til fyrirmyndar, góð setuaðstaða til að ræða golfið yfir góðum drykk.

Á hótelinu er stórt SPA, innifalið er aðgangur í eitt skipti.

Fyrir utan hótelið er sundlaug með aðstöðu til slökunar í sólinni.

  • Sundlaug og sólbekkir
  • Sólríkar svalir
  • Fallegt útsýni
  • Stórt Spa
Heimasíða Hotel La Envia Golf

Herbergi og aðstaða:

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

La Envia golfvöllurinn

Golfvöllurinn er 18 holur, par 70 og liggur í dal með Gádor fjöllin á tvo vegu. Heilmikið landslag er í vellinum sem er virkilega skemmtilegur að takast á við. Fyrri 9 eru nokkuð flatar en langar og undirbúa kylfinga vel fyrir heilmikið landslag á seinni 9. Holur 12,13,14 eru kallaðar „Amen Corner“ það sem tækifærin eru mikil en einnig stutt í refsingar.

Æfingasvæði er til staðar þar sem hægt er að æfa alla þætti golfleiksins. Golfverslun er í klúbbhúsinu sem stendur við hlið hótelsins. Þar má geyma golfsettin á milli þess sem golfið er leikið.

  • Ótakmarkað golf
  • Innifalinn golfbíll 18 holur á dag
  • Æfingarsvæði
  • Fjölbreytt landslag í golfvellinum
  • Golfverslun í klúbbhúsi
Heimasíða La Envia Golf

Golfvöllur og klúbbhús:

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

La Envia Golf – Steve Golfferð

Best að snúa símanum á hlið til að sjá alla töfluna.

DAGSETNINGFLUG ÚTFLUG HEIMFÆÐITVÍBÝLIEINBÝLIBÓKA
10.05 - 16.0509:00 / 15:4523:50 / 02:35 (17.05)Morgun og kvöldverður249.900 kr.282.900 kr.UPPSELT
6 nætur / 5 golfdag.NEOSIcelandairGolfbíll innifalinn 18 holur á dagGolfbíll innifalinn 18 holur á dag
  • Beint leiguflug til Almería með Neos og frá Alicante með Icelandair. 
  • Farangur: Ferðataska 15 kg. Golfsett 20 kg. Minni handfarangur 8kg sem passar undir sæti. 
  • Akstur milli flugvallar og hótels.
  • Flugvallarskattar.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Gisting með morgun og kvöldverði.
  • Ótakmarkað golf. ATH ekki hægt að panta seinni hring fyrirfram.
  • Golfbíll er innifalinn 18 holur á dag.
  • Golf á ferðadögum er ekki innifalið nema það sé sérstaklega tekið fram.
  • Ath. Ekki er mögulegt að innrita sig í flugið á vefnum þar sem um leiguflug er að ræða. Fyrir sætapantanir í almenn sæti og betri sæti er hægt að hafa samband við Golfskálann í síma 578-0120 eða senda póst á travel(at)golfskalinn.is.
    Verð í betri sæti 8.000 kr., sæti við neyðarútgang 4.500 kr. og almennt sæti kr. 2.000 kr., hver leggur. Betri sæti eru fremst í vélinni og er þá miðjusætið ekki setið
Skoða Verðlista allra ferða / Panta ferð