Alicante borg í Valensíu á Spáni er mörgum íslendingum kunn. Reglulegar flugsamgöngur milli Íslands og Alicante hafa verið í áratugi sem hefur gert Alicante einn helsta flugáfangastað íslendinga á Spáni.
Alicante er falleg borg sem hefur upp á margt að bjóða og við mælum eindregið með því að okkar farþegar á Alicante svæðinu heimsæki borgina. Rölti um gamla bæinn, kíki í verslanir og prófi einhverja af fjölda frábærra veitingastaða. Helsta kennileyti borgarinnar er Santa Barbara kastalinn sem gnæfir yfir borginni. Hægt er að taka lyftu upp í kastalann frá ströndinni og ganga svo niður virkisvegginn niður í gamla bæinn og enda niður við smábátahöfnina.
Meðalhitastig í Alicante mælist 24 gráður yfir árið. Yfir vetrarmánuði er sjaldgæft að hiti fari niður fyrir fimmtán gráður en sumrin eru mjög heit og er meðalhiti þá 33 gráður.
Strætisvagnar ganga reglulega um Alicante borg en borgin er í sjálfu sér ekki ýkja stór í sniðum. Dvöl þar og reglulegar léttar gönguferðir í tvo, þrjá daga ættu að duga til að skoða allt það markverðasta sem borgin hefur upp á að bjóða.
Sé vilji eða þörf til að skoða borgina í þaula er ráð að grípa næsta vagn. Subus Tam heitir strætisvagnafyrirtæki borgarinnar og einar sextán mismunandi leiðir í boði innan borgarmarkanna og nokkrir fara til nágrannaborga og bæja. Getur það verið fínasta skemmtun einn daginn að taka vagn í næsta sveitabæ til fjalla ef sá gállinn er á fólki. Miðaverð í strætó innan borgarmarkanna kostar u.þ.b.200 krónur.
Þá er hér alveg ágætt léttlestakerfi, Tram Metropolitano de Alicante, en þar eru einar fimm leiðir í boði. Leiðakort hér.
Fínlistasafnið (Museo Bellas Artes Gravina).
Fornleifasafnið (Museo Arqueológico Provincial de Alicante).
Asegurada safnið (Casa de la Asegurada).
Santa Bárbara kastalinn (Castillo de Santa Bárbara). Í kastalanum er safn tileinkað höggmyndalistamanninum Eduardo Capa.
Kirkja heilagrar Maríu (La Basilica de Santa María). Plaza de Santa Maria torg.
Vatnssafnið (Museo de Aguas de Alicante) – Hvaðan fá borgarbúar vatnið má sjá á þessu safni. Plaza Arquitecto Miguel Lopez.
Ráðhúsið (Ayuntamiento).
Mikið úrval veitingastaða er í borginni og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Gott ráð er að spyrja starfsfólk hótelana varðandi hvaða staðir eru að fá bestu dóma hverju sinni. Einnig má skoða Tripadvisor og sjá hverju þeir mæla með.
El Barrio, elsta hverfi borgarinnar, er vinsælast meðal ferðamanna. Fjöldi verslana finnst við Römblu Alicante, La Rambla, og í götum út frá henni. Auk stórverslunar El Corte Inglés eru hér tvær aðrar slíkar miðstöðvar, Plaza Mar 2 og Gran Vía, þar sem finna má fjölda verslana undir sama þaki. Sú síðastnefnda finnst í norðausturhluta borgarinnar við samnefnda götu.
Markaðir eru hér reglulega en sá frægasti þeirra, Esplanada de España, er aðeins haldinn í miðborginni við sjávarsíðuna og jafnan aðeins yfir sumartímann meðan fjöldi ferðamanna er nægur. Ágætt úrval ýmissa vara en verðin taka mið af áhuga ferðamanna og erfitt að gera sannarlega góð kaup. Þá er fínt úrval í Miðbæjarmarkaðnum, Mercado Central, þar sem sælkerar finna góðgæti á tveimur hæðum, opið 07:00-14:00.