einstakt 5* golf resort á Tenerife - Gist er á the ritz carlton hótelinu

Lúxusgolf í suðrænni paradís.   29.janúar – 5.febrúar 2026

Golfskálinn býður nú upp á einstaka golfupplifun á Abama Golf Resort á suðvesturhluta Tenerife, einum fegursta og glæsilegasta golfvelli Spánar.

Gist verður á hinu margrómaða 5* Ritz-Carlton hóteli.
Hér sameinast ævintýralegt landslag, golfvöllur í hæsta gæðaflokki og lúxusþjónusta í mögnuðu umhverfi Abama svæðisins.

ATH sætaframboð í þessa ferð er takmarkað og gildir reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“. Við hvetjum áhugasama til að tryggja sér pláss tímanlega.

  • Glæsilegur 18 holu golfvöllur
  • Fjöldi veitingastaða á hótelinu
  • Michelin stjörnu veitingastaðir
  • Einka baðströnd fyrir hótelgesti
  • Útsýni yfir Atlantshafið og La Gomera
  • 7 sundlaugar á svæðinu
  • 2.500 m² Spa og Líkamsræktarstöð

The Ritz carlton 5* golf resort

The Ritz-Carlton Abama

Glæsilegt fimm stjörnu hótel staðsett beint við hinn fræga Abama Golfvöll á suðvesturhluta Tenerife. Hótelið er hluti af hinu stórbrotnu Ritz-Carlton keðju og býður upp á fyrsta flokks þjónustu og aðstöðu í einstöku umhverfi með útsýni yfir Atlantshafið og eyjuna La Gomera. Á Abama svæðinu eru sjö veitingastaðir sem bjóða upp á fjölbreytt úrval rétta úr hágæða hráefni. Þar af eru tveir Michelin stjörnu staðir.

M.B, undir stjórn stjörnu­kokksins Martín Berasategui, hefur tvær Michelin-stjörnur og er staðsettur á hótelinu.
Kabuki, með eina Michelin-stjörnu, er í klúbbhúsinu og býður upp á japanska matargerð í hæsta gæðaflokki með stórbrotnu útsýni yfir hafið og golfvöllinn.

Á hótelinu eru rúmlega 460 herbergi og svítur sem skiptast í tvo meginhluta – The Citadel og The Retreat – Öll herbergin eru björt, rúmgóð og smekklega innréttuð með svölum eða verönd og öllum helstu þægindum:
þráðlausu interneti, loftkælingu, flatskjá, öryggishólfi, setusvæði og skrifborði.

Ritz-Carlton leggur sérstaka áherslu á svefnupplifunina, öll rúmföt eru úr hágæða egypskum bómull og í hverju herbergi eru sex koddar í mismunandi stærðum. Fyrir þá sem vilja sérsníða svefnþægindin enn frekar er í boði sérstakt „pillow menu“ með fjölbreyttu úrvali fyrir bæði ofnæmis- og stoðþarfir.

Baðherbergin eru marmaraklædd með stóru baðkari, walk-in sturtu, baðsloppum, inniskóm og vönduðum snyrtivörum. í hverju herbergi er einnig mini-bar, persónulegt öryggishólf, sími og sjónvarp með fjölbreyttum rásum.

The Citadel er hjarta hótelsins og þar er að finna fimm veitingastaði, bari, bókasafn, kvikmyndasal, dásamlega heilsulind, sundlaugar og fallega garða. Hótelið er í stuttri göngufjarlægð frá bæði golfvellinum og ströndinni – eða örfáum mínútum með skutl þjónustu.

Allir gestir á vegum Golfskálans gista í Citadel Deluxe Room 50fm herbergi með king-size rúmi og einstaklega fallegu útsýni yfir garð eða haf. Herberginu fylgir aðgangur að líkamsræktaraðstöðu hótelsins.

Á hótelinu er stórglæsileg heilsulind og vellíðunarmiðstöð þar sem gestir geta slakað á eftir dag á golfvellinum. Þar er m.a. boðið upp á gufuböð, heita potta, nudd og sérhæfðar líkams- og andlitsmeðferðir.

Hótelið státar af fjölmörgum sundlaugum og sólarveröndum þar sem hægt er að njóta hlýjunnar og útsýnisins í ró og næði.

Innifalið í öllum ferðum er morgunverður. Í boði er að bæta við kvöldverðarpakka, þá fá gestir €72 inneign á dag sem hægt er að nota á öllum sjö frábæru veitingastöðum hótelsins.

Athugið að borðapantanir á veitingastaði fara fram í móttöku hótelsins eða beint á viðkomandi veitingastað.

Heimasíða The Ritz Carlton Abama

Herbergi og aðstaða:

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

Abama golfvöllurinn

Abama Golf er glæsilegur 18 holu golfvöllur

Hannaður af hinnum kunna golfvallahönnuði Dave Thomas, sem hefur átt þátt í að skapa nokkra af þekktustu völlum Evrópu. Völlurinn er sannkölluð listasmíð þar sem hver hola hefur sinn eigin karakter og veitir stórbrotið útsýni yfir Atlantshafið og eyjuna La Gomera.

Golfvöllurinn liggur í einstaklega fallegu og fjölbreyttu landslagi þar sem víðar brautir, mótaðar flatar og glæsilegar vatnshindranir skapa bæði áskorun og ánægju fyrir kylfinga af öllum getustigum. Um 25 þúsund pálmatré prýða svæðið og mynda ótrúlega umgjörð sem er jafn falleg og hún er krefjandi.

Abama Golf er hannaður fyrir þá sem kunna að meta gæði, fagurfræði og þægindi. Allir kylfingar fá rafmagnsgolfbíl með GPS búnaði og aðgang að einstaklega góðri æfingaaðstöðu þar sem hægt er að slípa alla þætti leiksins.

Klúbbhúsið er glæsilegt og staðsett í miðju Abama golfvallarins. Þar er hægt njóta veitinga á flottum veitingastað og slaka á í afslappaðri stemningu eftir dag á vellinum. Golfsettin eru geymd í klúbbhúsinu á meðan dvöl stendur.

Golfvöllur og klúbbhús:

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

  • Fallegt landslag
  • Stórt æfingasvæði
  • Glæsilegt klúbbhús með útsýni yfir hafið
  • Veitingarstaður í klúbbhúsi
  • GPS golfbíll innifalinn

Heimasíða Abama Golf

VOR 2026

Best að snúa símanum á hlið til að sjá alla töfluna.

DAGSETNINGFLUG ÚTFLUG HEIMFÆÐITVÍBÝLIStaðfestingargjaldBÓKA
29.01 - 05.0209:00 / 14:3515:35 / 21:10Morgunverður499.900 kr.50.000 kr. per farþegaUPPSELT
7 nætur / 5 golfdag.NEOSNEOSMorgun og kvöldverður565.900 kr.50.000 kr. per farþegaUPPSELT
Golfbíll innifalinn
  • Beint flug til og frá Tenerife með Neos. 
  • Farangur: Ferðataska 15 kg. Golfsett 20 kg. Minni handfarangur 8kg sem passar undir sæti. 
  • Flugvallarskattar.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Gisting með morgunverði eða morgun og kvöldverði ( €72 inneign á dag).
  • Akstur milli flugvallar og hótels.
  • Fimm 18holu golfhringir.
  • Golfbíll með GPS búnaði innifalin

Ef það er áhugi á að fara og leika aðra velli þá er best að ræða það við fararstjóra sem aðstoðar við að finna rástíma.

Skoða Verðlista allra ferða / Panta ferð