fbpx

Haust-og áramótaferðir Golfskálans eru komnar í sölu

Það verður ýmislegt spennandi í boði hjá Golfskálanum á Spáni næsta haust og vetur.

Við verðum áfram með okkar eigið leiguflug með vélum Icelandair. Við munum fljúga á Almería á suðurströnd Spánar og þar munu okkar farþegar dvelja og spila á Almerimar, Los Moriscos og Alborán. Það verða þrjár dagsetningar í boði á alla þessa staði:

Eins og áður þá verðum við með tvær útgáfur af Golfskóla í haust. Golfskólarnir verða allir á Alborán. Hefðbundinn Golfskóli fyrir byrjendur og lengra komna verður í boði eins og undanfarin ár en einnig munum við bjóða upp á „Betra Golf“ með Derrick Moore PGA golfkennara. Það er Golfskóli fyrir lengra komna sem vilja verða enn betri í golfi.

30.september – 10 nætur – Almerimar, Los Moriscos og Alborán
10.október – 12 nætur – Almerimar, Los Moriscos og Alborán
22.október – 10 nætur – Almerimar, Los Moriscos og Alborán

Við verðum einnig með ferðir á Villaitana og þá fljúgum við beint til Alicante. Þetta er án efa vinsælasti áfangastaður íslenskra kylfinga á Alicante svæðinu. Það verða alls fimm dagsetningar í boði á Villaitana. Einnig er í boði að bóka bara landpakkann hjá okkur ef farþegar vilja sjá um flugið sjálfir. Við getum einnig klæðskerasaumað pakka á Villaitana.

26.september – 7 nætur – Villaitana
03.október – 9 nætur – Villaitana
12.október – 9 nætur – Villaitana
21.október – 10 nætur – Villaitana
31.október – 7 nætur – Villaitana
26.desember – 11 nætur – Áramótaferð á Villaitana

Auðvitað höldum við svo áfram með vinsælu áramótaferðina okkar á Villaitana. Við tókum þá ákvörðun að setja þessa ferð snemma í sölu þar sem margir farþegar vilja negla niður áramótin tímanlega. Þó að það séu um 10 mánuðir í brottför þá reiknum við með að þessi ferð seljist hratt. Það verður flogið út 26.desember 2023 og heim 6.janúar 2024. Þetta eru 11 nætur og 11 golfdagar, (einnig golf á brottfarardegi).

Hérna að neðan eru svo tenglar inn á hvern stað/ferð fyrir sig þar sem lesa má nánar um staðina, vellina, gistinguna og verðið.

Verðlisti allra golfferða má sjá hérna.

Nánar um Almerimar

Nánar um Villaitana

Nánar um Los Moriscos

Nánar um Golfskólann

Nánar um „Betra Golf“ með Derrick Moore

Nánar um áramótaferðina

Vorferðirnar okkar seldust margar fljótt upp eftir að þær fólu í sölu síðasta haust. Við reiknum með að sala haustferða fari hressilega af stað enda margir kylfingar ferðaþyrstir og munu bóka golfferðina sína snemma. Við viljum sérstaklega benda á að golfskólarnir okkar eru mjög vinsælir og það má búast við því að þau sæti seljist hratt. Ekki geyma það of lengi að bóka golfferðina þína fyrir haustið.

Póstlistinn

Vertu fyrstur til að fá tilboð
og fréttir af nýjum golfvörum
og ferðum Golfskálans
Skráning á póstlista 
Golfskálans
Skrá mig takk!
close-link