Á morgun hefst tveggja daga Hjóna-og Paramór Golfskálans og GA á Jaðarsvelli.
212 kylfingar eru skráðir til leiks og fyrstu hollin verða ræst út snemma í fyrramálið. Fyrri daginn leika pörin fjórleik en á laugardag er leikinn fjórmenningur. Við segjum nánar frá gangi mála og setjum inn myndir á Facebook síðu okkar næstu daga.