Golfskálinn þarf að fjölga sumarstarfsfólki.
Golfskálinn leitar að sumarstarfsfólki í fullt starf, (hlutastarf kemur einnig til greina). Kostur er viðkomandi getur byrjað fljótlega.
Um er að ræða almenn afgreiðslu-og sölustörf ásamt öðrum tilfallandi verkefnum hjá fyrirtækinu. Við leitum að fólki með ríka þjónustulund sem hefur frumkvæði, getur unnið sjálfstætt og í hóp. Þekking og reynsla af golfíþróttinni er skilyrði.
Við værum glöð ef við fengjum líka umsóknir frá dömunum 🙂
Frekari upplýsingar veitir Adam verslunarstjóri.
Vinsamlegast sendið ferilskrá með umsókn á adam@golfskalinn.is