Golfskálinn er kominn með vottun frá Creditinfo um framúrskarandi fyrirtæki 2021.
Til þess að fá þessa viðurkenningu þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði sem aðeins um 2% fyrirtækja Íslands hafa náð á þessu ári.
Það að vera framúrskarandi fyrirtæki er fyrst og fremst viðurkenning á þeirri miklu vinnu sem starfsfólk Golfskálans leggur á sig alla daga fyrir viðskiptavini okkar og fyrirtækið. Svo má ekki gleyma ykkur, viðskiptavinum okkar sem gera okkur betri.
Við erum ákaflega þakklát viðskiptavinum okkar og stolt af starfsfólki okkar og þessari viðurkenningu.