fbpx

Tilboð á gripum & frí ásetning

Golfskálinn er nú með tilboð á gripum og ásetningu þeirra. Við erum að bjóða 20% afslátt af öllum gripum og svo kemur frí ásetning í kaupbæti, (frí ásetning á við þegar gripin eru keypt hjá okkur).

Þetta tilboð á við um öll grip sem við erum með í boði í okkar verslun. Reynslan segir okkur að þegar við bjóðum svona tilboð þá verður mikið að gera hjá okkur í gripaskiptum. Við gætum því þurft að lengja afgreiðslutímann í einhverjum tilfellum í 2-4 daga á meðan tilboðið er í gangi.

Við viljum benda á að við erum komnir með fullt af nýjum gripum frá Lamkin, þ.m.t. Sonar tour Calibrate, ST +2 Hybrid Calibrate og Comfort Plus. Svo eigum við góðan lager af vinsælustu gripunum hjá okkur síðustu árin en það eru Crossline gripin frá Lamkin.

Stundum gerist það að kylfingar koma til okkar og vilja fá ný grip á kylfurnar því þau gömlu eru léleg. Þegar við svo skoðum gömlu gripin betur þá sjáum við stundum að þau eru í góðu lagi en það þarf bara að þvo þau almennilega. Eitt besta ráðið við að þvo gripin er að stinga þeim undir rennandi vatn og skrúbba þau með uppþvottabursta og nota uppþvottalög, (skola svo mjög vel). Það er nefnilega oft þannig að mikil fita leggst á gripin sem næst af með uppþvottalegi. Endilega komið við hjá okkur og við metum hvort það sé nauðsynlegt að skipta um gripin eða hvort það dugi að þvo þau.
TILBOÐIÐ ER Í GANGI TIL 31.MARS.

Póstlistinn

Vertu fyrstur til að fá tilboð
og fréttir af nýjum golfvörum
og ferðum Golfskálans
Skráning á póstlista 
Golfskálans
Skrá mig takk!
close-link